Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Síða 20
EINAR BJARNASON:
ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR
aaa. Greipur Sigurðsson
er staddur við dánarbeð föður síns, væntan-
lega í Haga, enda hefur hann gefið fyrr-
greinda yfirlýsingu um veru sína þar. Hann
var fæddur um 1405. 30. maí 1459 votta
það 6 menn á Eyri í Tálknafirði, að síra
Greipur Sigurðsson hafi handlagt Þórði
bróður sínum hálfan sinn þriðjung í jörð-
inni Haga.34)
bbb. Þórður Sigurðsson
27. nóvember 1439 er í Bæ á Rauðasandi
skrifaður kaupmáli þeirra Þórðar Sigurðs-
sonar og Ingibjargar Halldórsdóttur, sem
gerður var á brúðkaupsdegi þeirra, en ekki
er sagt hva'r eða hvenær brúðkaupið var.
Varla hefur það þó verið löngu fyrir ritun
kaupmálans. Þórður hafði til kaups við
Ingibjörgu hálfan Haga á Barðaströnd fyr-
ir 60 hundruð, en hún hafði jörðina Þor-
finnsstaði í Valþjófsdal og jrar til sex
liundruð, fyrir 30 hundruð. Oddfríður Ara-
dóttir kjöri Ingibjörgu dóttur sína mála-
konu í garð Þórðar.35)
21. febrúar 1438 fór í Haga á Barða-
strönd fram gerningur um það af annarri
liálfu Þórðar Sigurðssonar og Ingibjargar
Halldórsdóttur konu hans, en af hinni hálfu
Halldórs Hákonarsonar, hálfbróður Ingi-
bjargar, að þau gáfu Halldóri alla þá til-
tölu, sem þau áttu til Kirkjubóls í Valþjófs-
dal.36) Halldór var sonur Hákonar Jóns-
sonar og konu hans, Oddfríðar Aradóttur,
móður Ingibjargar, og var Hákon síðari
maður Oddfríðar, sem var óskilgetin dóttir
Ara sýslumanns á Reykhólum Guðmunds-
sonar, en fyrri maður hennar, Halldór Jóns-
son, var faðir Ingibjargar.
34) D. I. V, bls. 179.
35) D. I. IV, bls. 602-603.
36) D. I. V, bls. 159-160.
Það er líklega Þórður frá Haga Sigurðs-
son, sem er vottur í Berufirði 4. maí 1442 og
undirritar gerninginn, sem hann vottaði, á
Brekku í Dýrafirði 17. júní s. á.37)
30. maí 1459, á Eyri í Tálknafirði, hand-
leggur síra Greipur, bróðir Þórðar, honum
til fullrar eignar helminginn af sínum þriðj-
ungi í Haga.38) 11. júní 1463 er Þórður
meðal dómsmanna í Hvestu í Arnarfirði.33)
Þórður Sigurðsson er meðal þeirra lög-
réttumanna, sem eru í dómi Brands lög-
manns Jónssonar á Torfustöðum í Miðfirði
4. sept. 1467 og undirrita dómsbréfið á Þing-
eyrum 6. s. m., og er líklegast, að um Þórð
frá Haga sé að ræða.
22. apríl 1473 votta það 4 menn í Vatns-
firði, að þeir hafi verið í Haga á Barða-
strönd 24. maí 1472 og heyrt og séð orð og
handaband Gísla Filippussonar og Sigríðar
Þórðardóttur, að Sigríður seldi Gísla lögveð
upp í fjórðunginn í jörðinni Haga, sem
Þórður faðir hennar og Ingibjörg Halldórs-
dóttir, móðir hennar, gáfu henni á gifting-
ardegi hennar til kaups við Orm Bjarna-
son.40) Ekki hefur þessi gerningur Sigríðar
við Gísla fallið í góðan jarðveg, með því að
2. maí 1473, á Eyri í Arnarfirði, seldi Sigríð-
ur Þórði föður sínum fjórðunginn í Haga,
eflaust þann sama sem hún hafði veðsett
Gísla, og lýsti Sigríður yfir því,' að faðir sinn
hefði á brúðkaupsdegi hennar skilið sér aft-
ur fjórðunginn í Haga til kaups. Gegn þessu
áskildi Sigríður börnum sínum |rremur
framfæri hjá Þórði föður sínum og móður
sinni.41)
3. ágúst 1473 selur Þórður Sigurðsson
með samþykki Ingibjargar Halldórsdóttur,
37) D. I. IV, bls. 628.
38) D. I. V, bls. 179.
39) D. 1. V, bls. 380.
40) D. I. V, bls. 667-668.
41) D. I. V, bls. 695-696.