Iðunn - 01.06.1886, Page 86
Hagur kvenna í Spörtu.
Eptir
'T’ riti sínu »um lyndis-einkunn manna» segir Samúel
sv Smiles A einum stað : hvað úr barninu verður
með tímanum, er mestmegnis komið undir uppeldi
þess og eptirdæmi því, er það hefir fyrir sjer, þar
sem er hinn fyrsti og Ahrifamesti kennari þess ;
en það er móðirin.—Dagleg reynsla færir oss heim
sanninn um, að þetta er hverju orði sannara ; það
sem oss finnst mest um í fari flestra manna, er
að þakka mæðrum þeirra og því uppeldi, er þeir
hafa fengið í foreldrahúsum. þetta sá líka Napó-
leon mikli glöggt; hann sagði, að það sem Frakk-
land vaniiagaði mest um, væri mæður; liann átti
við það, að þjóðin franska þarfnaðist uppeldis
heima fyrir undir handleiðslu góðrar og dugandi
húsmóður, því »hver þjóð hefir upptök sín á heim-
ilunum, og allar kynkvíslir jarðarinnar eiga kyn
sitt að rekja til mæðranna». Og þar sem svo-
mikið ber á guðleysi og siðaspilling á vorum tím-
um, meðal allra stjetta, virðist undirrót þess eink-
um vera sú, að fátt er um alvörugefnar og guð-
hræddar mæður.
Einhver hin frægasta þjóð, er sögur fara af, eru
Spai-tverjar hinir fornu. Allur heimur dáist að þeim.
þeir börðust eigi af drottnunargirnd, eins og Bóm-