Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1953, Page 31

Ægir - 01.05.1953, Page 31
Æ G I R 141 Úr ræðu Ólafs Thors á sjómannadaginn. ólafur Thors siglingamálaráðherra flutti ræðu á sjómannadaginn 7. júní og fjallaði hún eingöngu um landhelgismálið. Fara liér á eftir þættir úr ræðunni: Þá stund, sem mér er ætluð að tala hér, mun ég nota til þess að víkja að síðustu orðsendingu Breta í landhelgismálinu, en hún barst stjórn íslands hinn 20. f. m. Staður og stund er rétt valin. Fátt hefur jafn bein og djúptæk áhrif á afkomu íslenzkra sjómanna og útgerðar- manna, og raunar Islendinga allra, sem það að takast megi að hindra, að á ný hefjist rányrkja fiskimiðanna, sem hlyti að leiða til gereyðingar þeirra. Fyrir því er það ís- lendingum höfuðnauðsyn, að fast og mynd- arlega sé haldið á rétti þeirra í friðunar- málinu. Það er því næsta eðlilegt, að útvegsmála- ráðherra íslands ræði einmitt síðustu við- hurði þessa máls, þegar hann ávarpar sjó- mennina á hátíðisdegi þeirra. Ég ætla, að óhætt sé að treysta því, að háttvirtir hlustendur þekki efni málsins og sögu í aðalatriðum, og vík því beint að siðustu orðsendingu Breta. í orðsendingu þessari segir: .,Að lokinni mjög gaumgæfilegri athug- rm þykir brezku stjórninni það leitt, að hún verður að skoða svar íslenzku ríkis- stjórnarinnar sem neitun á tillögum brezku hjálmsson útgerðarmaður í Reykjavík, Sig- urður Ágústsson, alþingismaður, Stykkis- hólmi, Sveinbjörn Árnason útgerðarmaður, Garði, Ólafur H. Jónsson, framkvæmdar- stjóri, Reykjavík, og Ásberg Sigurðsson framkvæmdarstjóri, ísafirði. ríkisstjórnarinnar um að leggja málið fjnir alþjóðadómstólinn.“ Samúðin mikils virði. Á því leikur ekki vafi, að þessi fullyrðing brezku stjórnarinnar er til þess fallin að draga úr þeirri miklu samúð, sem ísland hefur átt að fagna með frelsisunnandi þjóð- um, en þær hafa dæmt málstað íslendinga sterkan og málsmeðferð fram að þessu í fullu samræmi við venjur og hætti siðaðra þjóða. Þessi samúð er og verður Islending- um mikils virði. Þykir því rétt, að staðhæf- ingar brezku stjórnarinnar séu betur athug- aðar í Ijósi staðreyndanna. Handhægast er að athuga rök sjálfrar brezku stjórnarinnar fyrir henni. Þau eru tilfærð í nefndri orðsendingu og eru svo- hljóðandi: „Eins og íslenzku rikisstjórninni er kunn- ugt, getur brezka ríkisstjórnin ekki undir- gengizt slíka ábyrgð (þ. e. a. s., að löndun- arbanninu verði aflétt), þar eð þær aðgerð- ir brezkra útgerðarmanna, að setja á lönd- unarbann, eru ekki brot á brezkum lögum.“ Ekki skal það véfengt, að brezkum út- gerðarmönnum sé heimilt að óbreyttum lögum að hindra íslendinga í því að selja fisk sinn í Bretlandi. En það sker ekki úr, heldur hitt, að það er stjórn Bretlands og þing, sem ræður löggjöf landsins, en ekki brezkir útgerðarmenn. Og það sem brezka stjórnin getui' ekki gert í dag, vegna þess að hana skortir lagaheimild, getur hún á morgun, skorti liana ekki viljá til að afla sér slíkrar heimildar. Úr vöndu að ráða. Hitt er svo annað mál, að án efa er úr vöndu að ráða fyrir brezku stjórnina. Hún

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.