Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 7

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 7
TIMARIT LOGFRÆÐINGA 1. hefti 19 5U- Tímarit þetta hefur komið út í 3 ár Undir ritstjórn dr. Einars Arnórssonar. Nú hefur hann eindregið óskað þess að verða leystur frá ritstjórninni og má segja, að það sé ekki vonum fyrr, því að reyndin hefur orðið sú, að lögfræð- ingar-hafa mjog látið það undir höfuð leggjast að senda ritgerðir um „áhugamál sín á lögfræðilegum efnum“, gagnstætt vonum stjórnar Lögmannafélagsins, sem í ljós voru látnar í inngangsorðum 1. heftis. Ritstjórinn hefur því, eins og ritið sýnir, borið þung- ann, ekki aðeins af ritstjórninni, heldur og af því að leggja til efni. Því' þakkarverðara er, að honum hefur tekizt að forða ritinu frá „hordauðanum", sem stjórn Lögmannafélagsins telur rrieð réttu öllurri dauða óvirðulegri fyrir blað heillar stéttar, sbr. ávarpsorðin í 1. hefti. Ég býst við, að allir íslenzkir lögfræðingar séu mér sam- mála, er ég þakka dr. Einari starf hans í þágu ritsins, bæði sem ritstjóra og höfundi. Það hefir orðið úr, að ég taki að mér ritstjórn um stund, en um framhald þess er allt óráðið og veltur þar m. a. á því, hvort þeir lögfræðingar, sem aðstöðu hafa og getu til þess að leggja til efni, vilja gerast liðsmenn ritsins eða ekki. Er ritið hóf göngu sína, komst ritstjórinn svo að orði: „Tímarit lögfræðinga þarf að vera fjölbreytilegt. Fyrst og fremst þarf það að flytja alls konar ritgerðir um lög- fræðileg efni, hæfilega langar, svo að þær verði tímarit- 1

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.