Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 28

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 28
aðilinn, og leggi þar með grundvöllinn að meðfei'ð fram- kvæmdarvaldsins. Hitt er annað mál, að okkur, sem við lög og lagaframkvæmd sýslum, þætti stundum æskilegt, að löggjöfin, sem alþingi lætur frá sér fara, væri nokkuð vandaðri. Stjórnarskrárákvæði og þingsköp eiga að vísu að tryggja rækilega meðferð lagafrumvarpa, bæði með því að lögbjóða um þau þrjár umræður í hvorri deild og at- hugun í þingnefnd miili umræðna. En þetta hrekkur ekki ætíð til. Að vísu eru frumvörp að lögum, einkanlega stjórn- arfrumvörp, oft rækilega undirbúin, enda eru þau oft sam- in af kunnáttumönnum í viðkomandi ráðuneyti eða af sér- stökum nefndum. Vansmíð á lögum á stundum rætur að rekja til þess, að lögin hafa með allskonar afbrigðum verið keyrð í gegn um þingið á skömmum tíma. Ekki er þó ástæðan ávallt sú.* 1) En spurningin er, með hverjum hætti hægt sé að bæta löggjafakstarfið. Ymis ráð eru hugsanleg. Þegar mál þessi voru rædd á 3. norræna embættismanna- fundinum í Kaupmannahöfn 1925, var stungið upp á því, að starfsmenn eða kunnáttumenn úr viðkomandi stjórnar- deildum skyldu eiga sæti í þeim þingnefndum, sem frum- vörpu fengju til athugunar, eða skyldu vera starfsmenn slíkra þingnefnda.1) Átti þessi hugmynd rætur að rekja til þýzkrar fyrirmyndar. Sjálfsagt gæti slík samvinna milli þingnefnda og stjórnvalda orðið að ýmsu leyti til góðs. Það mun raunar tíðkast nokkuð hér, að þingnefndir leiti álits viðkomandi embættismanna, en í þeim efnum ríkir þó algert handahóf. Ég skal engu spá um, hvernig slík föst lögboðin samvinna þessara aðila myndi gefast hér. En mér finnst, að þessu megi gjarna hreyfa til athugunar. Þá væri hugsanlegt að setja hér á stofn lagaráð eftir sænskri fyrirmynd eða sérstaka lagaskrifstofu samkvæmt fordæmi Norðmanna, er verið gæti með í ráðum við undir- J) Nokkur dœmi um stórfellda vansmið laga nefnir dr. Björn Þórðar- son i bók sinni Alþingi og konungsvaldið, bis. 141—143. l) Sbr. Aage Snks 1 N.A.T. 1025, bls. 238. 22

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.