Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Qupperneq 52

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Qupperneq 52
arráði með embættisgengi tókst ekki að fá hækkaða í launaflokki, en í áður nefndu bréfi ráðuneytisins felst, að mati nefndarinnar, fyrirheit um að hlutur þessara manna verði leiðréttur með því að skipa þá í auknum mæli deildar- stjóra. Dómarafulltrúa, eða einstaka hópa þeirra, tókst ekki að fá hækkaða sérstaklega. Á samningafundum var m. a. rætt um fjölgun aðalfulltrúa, þannig að fleiri en einn aðalfulltrúi starfi við stærstu embættin og aðalfulltrúar verði skip- aðir við öll þau dómaraembætti, þar sem nú eru fleiri en einn fulltrúi. Nefndin telur að í bréfi ráðuneytisins felist fyrirheit um breytingu í framan- greinda átt og jafnframt um að komið verði á nýjum stöðum löglærðra inn- heimtu- og skrifstofustjóra við stærri embættin. Ef af verður mun slík breyting leiða til sérstakrar launaflokkahækkunar fyrir allstóran hóp dómarafulltrúa. Um þau ákvæði samningsins, sem ekki lúta að röðun í launaflokka, er það að segja, að í 3. gr. samnings og C-lið bréfsins felst heimild og stefnuyfir- lýsing um að teknar verði upp bakvaktir við þau dómaraembætti, þar sem telst vera sérstök þörf, svo sem þau sem fara með sakamál. í 4. gr. samn- ingsins er ákvæði, sem er í samræmi við heimild í 5. tl. 18. gr. kjaradómsins frá 15. febr. og er þess efnis, að yfirvinna héraðsdómara skuli greidd sam- kvæmt úrskurði 3ja manna nefndar er skipuð verði með tilteknum hætti. Nefndin væntir þess, að þetta ákvæði leiði til þess að nú verði auðveldara fyrir dómara að fá þá yfirvinnu greidda, sem þeir óhjákvæmilega verða oft að inna af hendi vegna könnunar réttarheimilda og dómasamningar utan vinnutíma, svo og ýmissa embættisverka sem ekki þola bið svo sem sjóprófa, lögbannsúrskurða og annars þess háttar. í 6. gr. samningsins er ákvæði sem felur það í sér að áfram verði haldið á þeirri braut að lögfræðingar í ríkisþjónustu eigi þess kost að fá námsorlof um lengri eða skemmri tíma og einnig nýtt ákvæði um greiðslu ferðakostn- aðar, er svo stendur á. I 7. gr. samningsins er ákvæði sem felur það í sér, að hér eftir slysatryggir ríkið lögfræðinga í sinni þjónustu. Fjárhæðin er að vísu lág, en þess er að vænta að þetta ákvæði sé skref í áttina að fullnægjandi tryggingum. í 8. gr. samningsins er kveðið á um að ríkið greiði kostnað við búferla- flutninga þeirra lögfræðinga í ríkisþjónustu sem skipaðir eru til starfs sem gerir kröfu til að þeir flytji milli lögsagnarumdæma, enda uppfylli þeir nánar tilgreind skilyrði. Þetta ákvæði er eins og fleira í þessum samningi nýmæli og að því leyti mikilvægt, að slíkum búferlaflutningum fylgir oft tilfinnanlegur kostnaður fyrir einstaklinginn. Sjálfsagt er mat manna misjafnt á því, hvernig tekizt hafi til við þessa fyrstu sérkjarasmaningsgerð. Að henni var unnið með þeim hætti að fyrst var leitað til hinna einstöku félaga og starfshópa innan ríkisstarfsmanna- deildar L.í. og það kannað hvaða kröfur umræddir aðilar hefðu fram að færa. Nefndin fór ekki þá leið að samræma kröfugerðina, heldur setti fram ýtr- ustu kröfur hvers hóps og jók víða við til samræmis, enda mun það sjónarmið hafa ráðið miklu í nefndinni, að rétt væri að reyna að ná fram sem mestu fyrir hvern og einn hóp, innbyrðis metingur ætti þar ekki við. Þeir menn, sem í nefndinni áttu sæti munu hafa verið valdir með tilliti til þess, að þeir yrðu í raun fulltrúar fyrir sem flesta hópa lögfræðinga í ríkis- þjónustu. 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.