Hlín - 01.01.1919, Síða 35

Hlín - 01.01.1919, Síða 35
Hlin 35 í. Skinnið þarf að vera niðri í 3—4 dægur, þá tekið upp úr og þurkað holdrosamegin, lielst við sólarhita. Hann brennir fitu úr skinninu og herðir það. Endurtaka aðferð þessa þrisvar sinnum, og oftar á leðri ('stórgripahúðum) og á því skinni, sem nýtt er og ólitað af blásteini áður. Öll ný skinn, er geymast til heimanotkunar, ætti að blá- steinslita strax, og lrelst geyma þau árið yfir í eldhúsi. Þannig undirbúin taka þau best sortulyngslitnum. Hella verður við og við sjóðandi vatni á lyngið, svo lögurinn haldist jafnmikill, en auðvitað mega þá ekki skinn liggja niðri í. Æfing og eftirtekt kennir best, hve- nær þörf er á að skifta um lyng. Varast má að nota það ílát undir sortulyngslög, er saltað hefur verið í áður. Eirlitur. Eirplata er lögð i keytu fstækt þvag) og látin liggja eitt dægur, þá nudduð út i löginn. Þetta er endurtekið þar til litarbreyting sjest á keytunni; setja má þá skinn- in ofan í, en varast má að þau liggi lengur en eitt til tvö dægur; að öðru leyti er aðferðin sama og við sortu- lyngslit. Fer eftir þykt sauðskinns eða leðurs, hve oft þetta er endurtekið. Betra að lita lint en sterkt, því þessi litur brennir, ef um of er. Líka má sverfa af eirplötu og láta svarlið í keytuna og hræra það þá upp, í staðinn fyrir að nudda. Einnig má Itleyta skinnið í keytu og bera eirsvarfið í leðrið og láta það liggja jrannig einn eða tvo daga. Mismunandi mikið skal bera í, eftir þykt leðursins; athuga vel að ekki sje ofmikið af áðursögðum ástæðum. Margrjet Simonardóttir, Brimnesi. 3* L

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.