Hlín - 01.01.1919, Page 42

Hlín - 01.01.1919, Page 42
42 Hlín lendum blöðum; vonandi tekst henni, að gera föður- landi sínu sóma með list sinni. En jeg veit aðeins um eina íslenska konu, sem hefur getið sjer orðstír utan- lands, svo nafni liennar sje haldið á lofti bæði í ræðu og riti. Það er Ólafía Jóhannsdóttir. Það er því ekki margt að segja frá utanferðum ís- lenskra kvenna til landa hjer í álfu. — Sjálfsagt væri hægt að segja rnargt frá íslenskum konurn í Vesturheimi, en saga þeirra er mjer ókunn. Það er gott að fara utan, el það fólk, sem siglir, hef- ur bæði vit og dugnað til þess að læra eitthvað og hag- ar sjer sómasamlega; en ekki megum við gleynia því að margar af hinum ágætustu sómakonum íslands hafa ekki átt þess kost, að iara til annara landa, og hafa þó gert ættjörð sinni mikið meira gagn en margar af þeim, sem hafa sigjlt. Jeg er sammála því, sem Kristbjörg Jóntansdóttir segir í hinu skemtilega ferðabrjefi sínu „Frá Skotlandi" ("Hlín I), að óskandi væri, að sem flestar íslenskar stúlk- ur ættu kost á því að búa um tírna á fallegu heimili utanlands. En þó verð jeg að játa, að þrátt fyrir það, að jeg hef dvalið þriðjung æfi minnar í öðrum löndum, og þótt jeg viti vel að mikið vanti á, að íslensku heim- i'lin sjeu svo falleg utan og innan, eins og þau ættu að vera, þá finst mjer þó — getur verið að fjarlægðin geri mjer sjónhverfingar — að ekkert sje svo yndislegt og huga mínum jafn lijartfólgið og góðu, gamaldagslegu, íslensku sveitaheimilin. Ingibjörg Ólafsson (ferðafulltrúi K. F. U. K. í Danmörku). Skólar. Það ber ekki sjaldan við, að ungar stúlkur, sem hafa utanferðir í huga, spyrjast fyrir um skóla erlendis: hús-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.