Hlín - 01.01.1919, Page 43

Hlín - 01.01.1919, Page 43
Hlin 43 stjórnarskóla, heimilisiðnaðarskóla, garðyrkjuskóla o. s. frv. Það er nokkur vandi að gefa upplýsingar um þessi efni. Verklegu skólarnir útlendu eru flestir, ef ekki allir, að meira eða minna leyti óhentugir fyrir okkur íslendinga. Þeir leggja, eins og gefur að skilja, alla áherslu á, að samsvara sem best sjerkröfum sinnar þjóðar og síns lands. Þar er því ýmislegt kent, sem ekki er nothæft lijer á landi, en sitthvað vantar aftur, sem brýn þörf er á að kunna hjer. Auk þess hlýtur það að draga úr fram- förum, einkum' framan af, að staðhættir, siðir og nrál er allólíkt því, sem nemandinn hefur átt að venjast, en námstíminn svo stuttur, að ekki má við töfum. Þá er vitanlega ekki hægt að byggja á þekkingu nemenda eða reynslu, sem þó er svo nauðsynlegt við a'lla kenslu. Kenn- arinn er þar alókunnugur, þekkir ekki þau lífsskilyrði, sem nemandinn á við að búa, og getur þar af leiðándi síður búið hann undir það starf, sem hann á að takast á hendur. Oss dylst ekki, að eigi námið í útlendu skólunum að verða að góðu gagni, verður nemandinn, er hann fer að notfæra sjer lærdónrinn síðar, að geta samlagað það út- lenda við Irið íslenska, að svo miklu leyti, senr það á við hjer, lagað það eftir okkar þörfum, gert það í besta máta þjóðlegt, en til þess þarf hann að vera vel þroskaður og mentaður, og námstíminn í útlendu skólunum að vera lengri en alment gerist lijá íslenskum stúlkum. Fjöldinn allur af stúlkum siglir árlega til að nrentast einnig í nefndum fræðunr. Ófriðurinn hefti för margra, en nú byrjar straumurinn aftur. Eflaust bera margar nrentun og menningu úr býtum frá ferðunr þessum, en hætt er þó við, að ekki verði þar allar ferðir til fjár. Stafar það oftar af ókunnugleika hlutaðeigenda eða stefnuleysi' en af gjálífi og eyðslusenri. Oft eru stúlk- urnar líka lítt mentaðar, ungar og óþroskaðar; ættu því fremur að leita sjer mentunar innanlands én utan, og

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.