Hlín - 01.01.1919, Page 71

Hlín - 01.01.1919, Page 71
Hlin 71 i livern hátt, þá kom óðara þessi spurning: „Gefur ekki þessi maður ofmikið fyrir pípuna sína?“ En pípan getur merkt svo margt; það getur verið fyrsta gangan á gilda- skálann, að spilaborðinu, fyrsti fjelagsskapurinn við gróðabrallsmanninn, lyrsta freyjusporið í öfuga átt, með freyjufár og „upplitaða ást“ í eftirdragi, og ótal margt fleira getur það verið, sem menn borga altof dýrt, miðað við gildi þess og ánægjuna, sem það -veitir. — En jeg get ekki annað en hugsað stundum um það, að margur mundi athuga betur sinn g'ang, ef hann gerði sjer það ljóst, að ýmislegt, sem hann vonaði og treysti að væri vandlega í myrkrunum hulið, það stendur þá skrifað með skýru letri í glaða sólskininu utan á hans eigið skinn! — Já, „það er lleira milli himins og jarðar en heimspekina okkar dreymir um,“ og margt af því væri gaman að geta brotið til mergjar betur en er, en skortur á tíma og þekkingu hamlar því. Svo vil jeg að endingu mega óska íslensku kvenþjóð- inni þess, að sá verði lófinn betri, er hún mótar sjálf, þegar fram líða stundir, hversu góður sem stofninn er. Þá er hún „á framtíðarvegi". Þórunn Richardsd. Sivertsen, Höfn, Borgarfjarðarsýslu. Tvær systur. Eftir Jóhann Sigurjónsson. Snemma í morgun heyrði jeg samtal lyrir utan glugg- an minn. Mjer fanst jeg þekkja hvorntveggja málróm-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.