Melkorka - 01.03.1955, Side 6
börn. í því starfi nutu sín vel margir beztu
eiginleikar Þuríðar: dugnaður, hugkvæmni
og hjartalagið, sem kann að hafa dulizt fyrir
þeim sem mest höfðu kynnzt hinni aðsóps-
miklu baráttukonu. Og lærdómsríkt var að
ganga með Þuríði að kvöldi dags milli litlu
rúmanna og ldusta á skýringar hennar um
það sem þyrfti að gera, allt sem enn væri
eftir að bæta og fegra.
Þuríður var fríð kona sýnum, bæði um
andlitsfall og limalag og gædd mjög ríkurn
kvenlegum þokka. Þegar hún hreifst af ein-
hverju, brunnu augu hennar og eins og lýsti
af henni allri.
Þuríður Friðriksdóttir minnti mig stund
um á hafið. Það rís af mætti sínum og lýtur
aðeins eigin lögmáli. Fagurt er það, milt og
laðandi, þegar það breiðir út lognvakinn
faðm sinn, en í djúpinu býr það yfir dýr-
gripum sínum og óteljandi leyndardómum,
sem það á ef til vill eftir að bera að landi á
fjarlægri, ókunnri strönd.
Við fögnurn ráðstefnu Alþýðusambandsins
um launamál kvenna
Efrir Nönnu Olajsdóttur
Svo sem lesendur Melkorku munu hafa
veitt athygli skeði sá merki atburður í janú-
ar síðastk, að hin nýkjörna stjórn heildar-
samtaka verkalýðsins boðaði til kvennaráð-
stefnu uni launamál, hinnar fyrstu, dagana
22.-23. janúar. Ráðstefnuna sátu m. a. for-
ystukonur kvenna í kjarabaráttunni. Af því
tilefni sneri Melkorka sér til Guðrúnar
Finnsdóttur, formanns A.S.B., Félags af-
greiðslustúlkna í brauða- og mjólkursölu-
búðum, og spurði hana frétta af ráðstefn-
unni.
„Það var mikill hugur í konum á þessari
ráðstefnu að vinna að launajafnrétti kynj-
anna,“ segir Guðrún,. „og einnig hinu, að
samræma kvennakaupið víðs vegar á land-
inu. Það eru a. m. k. 7 kaupstig í dagvinnu
kvenna nú, eða allt frá kr. 6.00 og upp í kr.
7,20 í grunnlaun um klukkustundina, á sama
tíma sem kaup karla er víðast hvar á landinu
í sama verðflokki, kr. 9.24 um klst. Það talar
sínu máli. Með þessari ráðstefnu hafa vafa-
laust orðið tímamót í þessu baráttumáli
kvenna.“
„Þegar maður hugsar um launamál
kvenna, finnst manni oft álakanlegur skyld-
leiki með þeim og ástandi í nýlendum stór-
veldanna: deyfð, ogsljóleiki um eigin hag og
rétt og eitthvert œgilegt umkomuleysi. Oft-
lega auglýsa atvinnurekendur eftir kvenfólki
með fyllstu menntun til skrifstofustarfa, en
leyfa sér svo að bjóða smánarlaun. Þannig fá
þeir fyrsta flokks starfskrafta fyrir litið verð.
Geta menn á vinnumarkaðnum verið arnað
en sammála um, að það er líka hagur karla
að aflétta þessu ófremdaráslandi?“
„Það kom líka vel í ljós við umræður, að
deyfð kvennanna sjálfra er alveg ótrúleg.
Misrænrið í kaupi á ýmsum stöðum á land-
inu er eitt dæmið um það. Og þá er hitt ekki
síður athyglisvert, hve langan tíma getur tek-
ið fyrir kvenfólk að komast í hæstu laun í
grein sinni. / sumum iðngreinum geta kon-
ur verið allt að 7 árum að komast upþ i fullt
kaup. Svo er t. d. um aðstoðarstúlkur við
bókband. En margt og margt fleira mætti
segja sem dæmi um deyfðina."
„Þetta er nú bara kaupkúgun að mínum
6
MELKORIÍA