Melkorka - 01.03.1955, Blaðsíða 24
(22i4) frá fit er prjónað stuðlaprjón, ein sl„ ein br. Eftir
1% era. er prjónaður gataprjónn: *1 sl., 1 br. Bregðið
bandinu um prjóninn, prjónið saman 2 br. Endurtekið
frn * og endað á 1 sl. I’rjónið síðan 114 cm. Fellt af.
Bakslykkið prjónist eins og frainstykkið, nema þá er
fellt af geiranum sjötta hvern pr. í staðinn fyrir annan
hvern. Pegar buxnastykkið mælist 20(4 (22%) cm. frá fit
er prjónað eins og nú segir til þess að bakstykkið verði
nógu stórt: Prjónið einn pr. þar til eftir eru 4 1„ snúið þá
við og prjónið næsta pr„ þar til eftir cru 4 1. Snúið þá
aftur og prjónið þar ti) eftir eru 8 1. Snúið og prjónið
þar til eftir eru 8 aftur. Haldið svona áfram fram og aftur
og prjónið alltaf 4 1. minna í hvert sinn. Þegar 16 1. eru
eftir á pr. hvorum megin, er prjónað stuðlaprjón 1 sl„ 1
br„ eftir 1% cm. er gataprjón, eins og á framstykkinu.
Síðan 1% cm. og fellt af.
Frágangur: Hinir ýmsu hltitar eru prcssaðir lítillega á
röngu. Saumið kjólinn saman og hneppið á öxluin með
hekluðum lykkjtim og hnöppum. Saumið upp faldinn.
Saumið buxurnar saman í hliðum og í klofi og takið síð-
an upp.85 1. á pr. nr. 2% í kringum hvorn fót og prjónið
2 cm. stuðlaprjón, 1 sl„ 1 br. Fellið síðan af og látið
teygjuband í liuxurnar að ofan.
t
Úoalj? Jjía jaj>önslzum konum til allía Izúenna í Leimi
Snemma morguns 1. marz 1954 var bandarískri vetnis-
sprengju varpað í tilraunaskyni á Bikinieyjar í Suður-
Kyrrahafi. Þrem stundum eftir að sprengingin var gerð,
tók geislavirk aska að falla í sjóinn. Tuttugu og þrír jap-
anskir fiskimcnn á skipinu Fukuryu-Maru, sem höfðu
verið að veiða túnfisk um 150 sjómílur frá eyjunum,
fcngu yfir sig þessa geislavirku ösku.
Suzue, kona Shinzo Suzuki, sem var á Fukuryu-Maru,
hefur skýrt frá líðan hans eftir að hann kom heim, þann
14. marz. „Maðurinn minn var nærri óður af kláða um-
hverfis eyrun og f hnakkanum. Morguninn eftir var hann
þakinn útbrotum og þjáðist af kláða um allan lfkamann.
Hann bylti sér fram og aftur f rúminu, eins og maður
með hitasótt og hl jóðaði af viðþolslausum kvölum." Hin-
ir sjómennirnir voru einnig illa haldnir af magaverk,
niðurgangi, þreytu og öðrum sjúkdómseinkennum, sem
er greinilegt mcrki geislaverkunar.
Engin lækning ó sjúkdómnum
Nú sem stendur eru sjómennirnir undir læknishendi
á ríkisspítala og þeir eru enn, jafnvel eftir 120 daga,
hættulega veikir. Þeir hafa hita, lystarleysi, hárlos og
sár um líkamann. Alvarlegasta afleiðing sjúkdóms þeirra
er samt sem áður skemmdir á blóðmyndunarlfffærum,
meðal annars á beinmergnum. Á húðinni voru ekki ein-
ungis brunasár, heldur voru húðfrumurnar einnig eyði-
lagðar af geislavirku ryki og drep hlaupið í holdið. Þetta
leiddi til þess að rauðu og hvftu blóðkornunum hafði
fækkað að miklum mun. Læknavísindi nútfmans hafa
ekki fundið ráð við sjúkdómnum. Sjúklingarnir eru rúm-
fastir og mega ekki umgangast fjölskyldur sínar. Þeim
hefur verið sagt að þeir verði að vera undir læknishendi
á meðan þeir lifa. • . ■
Fjórtán af þessum tnttugu og þrem sjúklingum eru ó-
kvæntir menn. Vegna geislasjúkdómsins hafa þeir misst
löngun til að kvænast, þar sem þeir eru hræddir um, að
þeir eignist vansköpuð börn. Einn þeirra hefur í örvænt-
ingu sinni látið þau orð falla, að hann hefði viljað varpa
vctnissprengju á Bandaríkin, til þess að Bandaríkjamenn
gætu gert sér ljóst, hvflfka eymd og kvalir hann og félag-
ár hans þurfa nú að þola. Samt segja flestir þeirra, að
þeir álíti að enginn maður ætti að líða slíkar andlegar og
líkamlegar þjáningar, og að þeir óski þess af heilum hug,
að atóm- og vetnissprengjur verði bannaðar.
Við, þorum varla að snerta mat
Það eru ckki einungis þessir 23 sjómenn, sem verða að
gjalda þessarar hræðilegu sprengjutilraunar. Vetnis-
sprengjutilraunirnar hafa valdið ósegjanlegum kvfða, og
ógna bæði lífi og neyzluvöru Japana. Japanir lifa aðal-
lcga á fiski. Það var því mikið áfall fyrir þá, þegar þeim
var sagt að ýmsar tegundir þess fiskjar, sem veiddur hef-
ur verið, sé geislavirkur. Ástæðuna er ekki að rekja til
geislavirks ryks, heldur stafar hún frá sjónum og geisla-
virkri átu, sem fiskurinn hefur nærzt á. Við erum mjög
hrædd um að gcislaverkun hafi áhrif á fiskistofninn og
leiði til þess, að ýmsum fiskitegundum fækki og að fiski-
mið hverfi.
Grænmeti, ávexlir og drykkjarvatn sýna einnig mikla
geislaverkun og það veldur okkur áhyggjum að þurfa að
neyta þcirra. Eftir að heilbrigðismálaráðuneytið hafði
rannsakað aflann með geiger-mælita:kjum, fleygðu sjó-
mcnn þúsundum tonna af túnfiski og öðrum fiskiföng-
um. Margir hafa neitað að kaupa fisk til matar. Af þcssti
leiðir efnislcgt og andlegt tjón, sefn orð fá ekki lýst.
Végfia þessarar ægilegu reynslu hafa Japanir lýst skelf-
ingu sinni oggreinju yfir tilraunum mcð vetnissprengjur
og framleiðslu þeirra.
24
MELKORKA