Melkorka - 01.03.1955, Qupperneq 25
Varahlutir
irfyrir: /jllíCí^lHU, 0(j
laHcfbúHaðaiOélina
Þ. P. Sigurjónsson
Hverfisgötu 57 • Sími 6765
20 miljónir manna haía undirritað mótmæli
gegn vetnissprengjum
Konur í Landssambandi japanskra kvenfclaga, en for-
maður þeirra er frú Raicho Hiratsuka, hafa gengizt fyrir
undirskriftasöfnun í Tokyo, þar sem þær krefjast banns
á atóm- og vetnissprengjum. Undirskriftasöfnunin held-
ur áfram og nær ekki aðeins til stórborganna, heldur
einnig til sveita og sjávarþorpa um gervallt landið. Víðar
cn í Tokyo standa konur fyrir þessari undirskriftasöfnun,
en menn af öllum stéttum þjóðfélagsins og hinir ýmsu
trúarbragðaflokkar hafa veitt stuðning sinn. Um þessar
mundir hefur meir en 20 milljón undirskrifta verið safn-
að. Snemma í apríl samþykkti japanska þingið einróma
fundarályktun þess efnis að banna skyldi atóm- og vetnis-
sprengjur og krefjast alþjóðaeftirlits með kjarnorkunni.
Margar bæjar- og sveitarstjórnir hafa samþykkt svipaðar
ályktanir. Ennfremur hafa menntamenn, prófessorar,
stiidentar, listamenn og ýmis félög sameinazt í kröfunni
um að þessi vopn verði bönnuð.
Börn okkar fæðast vansköpuð
Við munum aldrei gleyma dögunum 8. og 9. ágúst.
I>á var varpað atómsprengjum á Hiroshima og Nagasaki.
Borgirnar voru þurrkaðar út og hundruð þúsunda gam-
almenna, kvenna og barna voru drepin. Þótt nú séu liðin
9 ár frá því að þetta var gert, má enn sjá eyðilegginguna
og margir íbúanna bíða þess aldrei bætur, að þeir urðu
fyrir þessum hörmungum. í Hiroshima hafa 120 manns
dáið af völdum atómsjúkdóma frá byrjun þcssa árs.
Læknar fylgdust með 11 kon'um, sem voru barnshaf-
andi um það leyti er sprengjunum var varpað. Þær
bjtiggu innan við 1100 metra frá sprengingarstaðnuin.
Það kom 1 Ijós, að aðeins eitt af 11 börnum þeirra hafði
eðlilega höfuðstærð, er þau voru rannsökuð fimm ára að
aldri. Höfuð hinna barnanna voru á stærð við höfuð eins
árs gantals barns. Vansköpun þcirra er aðeins ein af af-
leiðingum atómsprengjunnar.
Við skjótum máli okkar til allra hugsandi manna
Japanir hafa þrisvar orðið fyrir atóm- og vetnissprengj-
um. Við, seni erum liin einu, sem hafa verið svo ólánssöm
að kynnast áhrifum þessara vopna, getum ekki annað en
snúið okkur til allra hugsandi manna i heiminum og
farið fram á að bönnuð verði framleiðsla, tilraunir og
notkun á slíkum ógnarvopnum. Við krefjumst þess, að
bundinn verði skjótur endi á tilraunir á höfuin úti, sem
ógna viðskiptum og neyzluvörum friðsamra og saklausra
borgara. Við erum ekki aðeins að ræða um öryggi og
hamingju japönsku þjóðarinnar. Við viljum bjarga öllu
mannkyninu frá tortímingu og byggja upp heim, þar sem
ríkir friður og velmegun.
Við biðjum ykkur að scgja frá í samtökum ykkar og fé-
lögum þeirri heitu ósk okkar, að atóm- og vetnissprengjur
verði bannaðar og að friður ríki í heiminum. Við biðjum
þau utn að ljá okkur lið, því við getum ekki hafið víðtæk
mótmæli gegn þessum hræðilegu vopnum og gegn styrj-
öld, ncnra með aðstoð og samstarfi allra kvenna í lieirn-
inum.
Það er von okkar að þið viljið taka þátt í baráttu okkar.
Undirritað af:
liaicho Hiratsuka
Varafonn. í alþjóðasamlökum lýðræðissinnaðra kvenna.
Formaður landssambands japanskra kvenfélaga.
Hideko Maruoka
Formaður samtaka kvenfélaga í sveitunr.
Itoe Hamada
Meðlimur í landssatnbandi japanskra kvenfélaga.
Setsuko Hani
Varaformaður Barnaverndarfélagsins.
Naolto Takada
Fulltrúi vinstri sósialista í bæjarstjórn.
Chiyose Chiba
Formaður sambands kvenkennara í Japan.
Október, 1954.
MELKORKA
25