Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 20
Afmælisrit B.í. Ritið „Búnaðarsamtök á íslandi 150 ára“ kom út um
miðjan desember. Greint er frá ritun þess í starfsskýrslum fyrir árin 1986 og
1987, en ritun þess var að mestu lokið á árinu 1987. Þó var unnið sleitulaust
að myndasöfnun, yfirlestri og samræmingu á ýmsu svo og gerð nafnaskrár
og annarra skráa, eftir því sem verkinu miðaði í prentsmiðju. Júlíus J.
Daníelsson annaðist myndasöfnun og myndaval í samráði við höfunda,
skráði myndatexta og hafði umsjón með nafna- og myndaskrá. Hann
annaðist og samskipti við prentsmiðju. Ólafur E. Stefánsson las prófarkir
og bar saman leiðréttingar þar til villulaust var talið. Báðir vörðu þeir Júlíus
og Ólafur miklum tíma til að ganga sem best frá bókinni á allan hátt.
Undirritaður fylgdist og með og leit yfir ýmsa hluti og greip í margt með
þeim.
Ritnefnd hélt allmarga fundi og tók ákvarðanir um helstu atriði varðandi
frágang bókarinnar.
Ritið er eins og fram hefur komið í tveimur bindum, 1084 blaðsíður með
rúmlega 900 myndum.
FerSalög, fundir og fl.
Ferðalög innanlands voru með allra minnsta móti. Formaður og búnað-
armálastjóri sátu aðalfund Stéttarsambands bænda á Akureyri dagana 31.
ágúst - 3. september.
Búnaðarmálastjóri sat aðalfund Landssambands veiðifélaga á Hvanneyri
og aðalfund Sambands loðdýraræktenda, sem einnig var haldinn þar, en í
Reykjavík aðalfundi Ferðaþjónustu bænda, Æðarræktarfélags íslands,
Félags hrossabænda og Landssambands hestamanna. Formaður mætti á
100 ára afmælishátíð Búnaðarfélags Svalbarðsstrandar 3. september og
færði því kveðjur B.l. og gjörðabók. Formaður og búnaðarmálastjóri
mættu á 100 ára afmælisfund Búnaðarfélags Sandvíkurhrepps 11. nóvem-
ber og færðu þeim gjörðabók,
Auk þessa fór undirritaður allmargar skemmri ferðir ýmissa erinda.
Utanlandsferð. Formaðurog búnaðarmálastjóri ásamt formanni Stéttar-
sambands bænda fengu boð frá dönsku bændasamtökunum um að vera
viðstaddir hátíðarhöld í Kaupmannahöfn, þar sem minnst var þess að 20.
júní 1988 voru 200 ár liðin frá því að átthagafjötrum var létt af dönskum
bændum.
Þennan atburð árið 1788 telja Danir marka upphafið að framförum í
dönskum landbúnaði og dönsku þjóðlífi og tala um „landboreformati-
onen“.
Hátíðarhöldin, „Stavnsbánds Jubileum“, fóru fram í öllum héruðum
landsins, en aðalhátíðin hófst við „frelsissúluna" í miðborg Kaupmanna-
hafnar, þar sem auk söngs og ræðuhalda var haldin áhrifamikil sögusýning
með þeim hætti, að ótrúlega löng lest hestvagna, búfjár, fólks, dráttarvéla
18