Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 129
Jón Gíslason, bóndi, Stóra-Búrfelli,
Jón Guðmundsson, bóndi, Óslandi,
Jón Kristinsson, bóndi, Lambey,
Jón Ólafsson, bóndi, Eystra-Geldingaholti,
Jón Hólm Stefánsson, bóndi, Gljúfri,
Jósep Rósinkarsson, bóndi, Fjarðarhorni,
Magnús Sigurðsson, bóndi, Gilsbakka,
Páll Ólafsson, bóndi, Brautarholti,
Sigurður Þórólfsson, bóndi, Innri-Fagradal,
Stefán Halldórsson, bóndi, Hlöðum,
Sveinn Jónsson, bóndi, Ytra-Kálfsskinni.
Þessar skýrslur voru fluttar á þinginu:
Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri: Skýrsla um framvindu mála frá
síðasta Búnaðarþingi.
Konráð Guðmundsson, framkvœmdastjóri: Reikningar Bændahallarinn-
ar árið 1988.
Jón Hólm Stefánsson, bóndi: Skýrsla stjórnskipaðrar nefndar um skipu-
lag leiðbeiningaþjónustu o.fl.
1 varamaður Össurar Guðbjartssonar, Láganúpi.
Málaskrá Búnaðarþings 1989
1. Reikningar Búnaðarfélags íslands fyrir árið 1988.
2. Fjárhagsáætlun Búnaðarfélags íslands fyrir árið 1989.
3. Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um skipan leiðbeiningaþjónust-
unnar.
4. Erindi stjórnar Búnaðarfélags Islands um búreikningastofu og
bókhaldsmál bænda.
5. Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands til Búnaðarþings 1989 um
rýmkun lagaheimilda sveitarfélaga til að takmarka lausagöngu búfjár.
6. Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um gróðurverndarmál.
7. Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um ritun og útgáfu íslenzkrar
landbúnaðarsögu.
8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45 16. apríl 1971 um
Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveit-
um, með síðari breytingum - 59. mál 111. löggjafarþings. Frá landbún-
aðarnefnd efri deildar Alþingis. Lagt fyrir af stjórn Búnaðarfélags
íslands.
9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 46/1985, um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum - 60. mál 111. löggjafarþings. Frá
127