Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 53
Landnýtingar- og sauðfjárráðunautur
Skrifstofu og nefndarstörf. Þessi störf voru
meö svipuðum hætti og áður, þó heldur
vaxandi. Einkum var um að ræða símtöl,
bréfaskriftir og viðtöl á skrifstofu auk setu í
ýmsum nefndum. Að venju voru samin nokk-
ur erindi og greinargerðir fyrir fundi og skrif-
aðar greinar til birtingar á prenti, einkum
fyrir búnaðarblaðið Frey. Nokkur vinna var
við lokafrágang þeirra kafla, sem ég skrifaði í
afmælisrit Búnaðarfélags íslands. Ég kom
einu sinni fram í viðtalsþætti í útvarpi auk
þess að hafa umsjón með búnaðarþætti ríkis-
útvarpsins til 1. október eins og síðar verður
vikið að. Eftirfarandi voru helstu nefndir, stjórnir og ráð, sem ég sat fundi í
á liðnu ári: Kynbótanefnd sauðfjárræktar sem ritari hennar, ritnefnd
Búvísinda (áður Islenskar landbúnaðarrannsóknir), vinnuhópur Náttúru-
verndarráðs og Búnaðarfélags Islands, sem samið hefur bæklinginn „Land-
búnaður í sátt við náttúruna", Tilraunaráð Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins, Búfræðslunefnd, matsnefnd vegna beitarréttinda á Miðnesheiði,
yfirlandskiptanefnd vegna landamerkjamáls í Eyjafirði, nefnd landsráðu-
nauta, sem gerði könnun á starfsemi Búnaðarfélags íslands, stjórn Félags
íslenskra náttúrufræðinga, undirbúningsnefnd vegna Ráðunautafundar
Búnaðarfélags íslands og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins 1989,
stjórn Minningarsjóðs dr. Halldórs Pálssonar, fyrrverandi búnaðarmála-
stjóra, stjórn Sauðfjárverndarinnar og Markanefnd, en hún hélt samtals 38
fundi á árinu, aðallega vegna úrskurða sammerkinga, og sat ég þá alla.
Nánar verður greint frá öðrum skrifstofu- og nefndarstörfum í köflunum
hér á eftir.
Ferðalög. Að venju skoðaði ég hrossa- og sauðfjárhaga á ýmsum stöðum
og kom í nokkrar réttir á Suðvesturlandi. Þótt vorkuldar og sums staðar
þurrkar háðu sprettu leit úthagi víðast hvar vel út þegar leið á sumarið og
vænleiki dilka var í heildina vel í meðallagi. Seint fór að frjósa og haustbeit
var óvenju góð. Þriðjungsfækkun sauðfjár á undanförnum áratug hefur
dregið mikið úr beitarálagi. í ágúst tók égsæti í nefnd, sem landbúnaðarráð-
herra skipaði til að kynna sér ástand heimalanda og afrétta í Mývatnssveit.
Við ferðuðumst um svæðið um miðjan ágúst og fórum aftur norður í lok
Ólafur R. Dýrmundsson
51