Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 21
og bifreiða fór um götur borgarinnar, framhjá hátíðargestum og staðnæmd-
ist síðan og stillti sér upp á Ráðhústorgi. Þar var síðan haldið áfram með
hátíðarhöldin. Mannfjöldi var mikill sem fyllti götur og torg. Ljóst var að
hér var um þjóðhátð að ræða, sem sæmdi dönskum landbúnaði og stöðu
hans fyrr og síðar í þjóðlífinu. Móttökur Dana voru hinar ágætustu og
daginn eftir var erlendum gestum boðið í skoðunarferð um Sjáland og
haldið áfram að kynna sögu og framþróun landbúnaðar í Danmörku.
Að loknum þessum hátíðarhöldum gerðu formaður qg undirritaður
ásamt konum sínum sér 10 daga ferð suður um Evrópu á leigðum farkosti og
töldu sig verða margs vísari um land, fólk og búhætti, en það er önnur saga.
Samskipti við Grænland
Undirritaður annaðist sem áður vistun grænlenskra sauðfjárræktarnema
hjá bændum. Haustið 1987 komu fjórir nemar, sem fengu vist á Lækjamóti,
Ytra-Álandi, Gunnarsstöðum og Sauðanesi. Þeir ákváðu allir að vera hér
annað ár og fóru í byrjun nóvember s.l. að Gilsbakka, Stóru-Giljá, Syðra-
Skörðugili og Uppsölum. Þá komu fimm nýir nemar, sem nú dveljast á
Lækamóti, Leirhöfn, Ytra-Álandi, Gunnarsstöðum og Sauðanesi. Nenii,
sem verið hafði á Leirhöfn í tæp tvö ár, hóf nám á Hvanneyri s.I. haust.
Forfalla- og afleysingaþjónusta í sveituni
Búnaðarfélagið hefur yfirumsjón með forfallaþjónustunni og annaðist
Gunnar Hólmsteinsson, skrifstofustjóri, hana alfarið þar til á rniðju árinu
að Þorbjörg Oddgeirsdóttir, fulltrúi á Búreikningastofu, tók við því starfi
undir handleiðslu Gunnars.
Verðlaunasjóður bændaskólanna
Búnaðarfélag Islands veitti að venju þeim búfræðingum, sem brautskráðust
með bestum vitnisburði frá skólunum, bókaverðlaun. Að þessu sinni hlutu
verðlaunin Jóhannes Ríkharðsson, Brúnastöðum í Fljótum, búfræðingur
frá Hvanneyri, og Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir, Kagaðarhóli, búfræðing-
ur frá Hólum.
Stóðhestastöð
Búnaðarfélag íslands sér um fjárhagslegan rekstur Stóðhestastöðvar ríkis-
ins í Gunnarsholti. Umsjónarmaður stöðvarinnar var Eiríkur Guðmunds-
son og með honum við tamningar var Rúna Einarsdóttir.
Hafin var bygging hesthúss fyrir stöðina og lokið við að steypa áburðar-
kjallara. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri og formaður stjórnar, hafði
veg og vanda af þeim framkvæmdum og nýtur stöðin hans og Landgræðsl-
unnar í mörgu tilliti. Nánar er greint frá stöðinni í skýrslu Þorkels
Bjarnasonar.
19