Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 63
Þann 24/11 sat ég fund á Hólum með fulltrúum allra hrossaræktarsam-
bandanna á Norðurlandi og Hólamönnum. Þar var rætt um rekstur
tamningastöðvar fyrir stóðhesta á Hólum (rekstur í samræmi við praktíska
útfærslu á niðurstöðum rannsóknar minnar á kynbótaskipulagi fyrir ís-
lenska hrossarækt), möguleika á hagnýtingu nýrra aðferða við fylskoðun
hrossa (sónar), skýrsluhald í hrossarækt (tilgangur og framkvæmd) og
námskeiðahald í hrossarækt á vegum Hólaskóla nú í vetur.
Þann 30/11 sat ég fund kynbótanefndar Stóðhestastöðvar og lagði fram
kynbótaspá fyrir alla fola, sem til greina gátu komið inn á Stöðina. Úrvalinu
á stöðina var nú í stórum dráttum hagað í samræmi við niðurstöður
kynbótaspár.
í yfirliti mínu um starfið á árinu gat ég um samningu reglna um
kynbótadóma og sýningar (stigunarskali o.fl.), en þau drög (30 bls.) Iagði
ég fyrir fund, sem við ráðunautar B.í. efndum til 14/12 með héraðsráðu-
nautum í hrossarækt og kennurum í faginu. Fund þennan sat Þorvaldur
Árnason, en hann kom til íslands rétt fyrir miðjan desember með nýjustu
niðurstöður BLUP-reikninga og forrit, en við starfsmenn Búnaðarfélags
íslands hyggjumst taka stærri þátt í reikningunum sjálfum en verið hefur. í
sambandi við það áttum við Halldór Árnason, Jón Viðar Jónmundsson
ásamt með Magnúsi B. Jónssyni fund með Þorvaldi 15/12.
Dómstörf og sýningar.
Hér í upphafi vil ég geta þess að um miðjan maímánuð lukum við
Halldór Árnason við forrit til notkunar við skráningu hrossa til sýninga og
úrvinnslu dóma á sýningarstað. Tilkoma þessa forrits auðveldar mjög þá
vinnu og var það notað á flestum stærri sýningum í sumar.
Þann 7/5 fylgdist ég með vorsýningu Stóðhestastöðvarinnar, en dæmdi
ekki. Aftur á móti var ég formaður dómnefndar á eftirfarandi sýningum: Á
Vindheimamelum 31/5, forskoðun vegna fjórðungsmóts á Vesturlandi, 7/8
á aukasýningu kynbótahrossa í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum á Einars-
stöðum og 26/8 á Hofi í Vatnsdal á sambærilegri sýningu fyrir svæði
Hrossaræktarsambands A.-Hún. Ég sat í dómnefnd fjórðungsmótsins á
Vesturlandi, en það var haldið á Kaldármelum 30/6-3/7. Að frekari
dómstörfum vann ég ekki, en á þeim árstíma þegar dómstörfin standa sem
hæst er ég bundinn við annað meginstarf mitt, hrossatamningar.
Dagana 21/10-25/10 ferðaðist ég um með Þorkeli Bjarnasyni og fleirum.
Við mældum hross á S.-Skörðugili í Skagafirði og á Hólum. Einnig
skoðuðum við ýmis hross í Húnavatnssýslu, Skagafirði, Eyjafirði og í
Þingeyjarsýslu í sambandi við Stóðhestastöð.
61