Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 175
eyðleggja landið. Því er von, að Búnaðarþingi berist erindi af því tagi, sem
hér er fjallað um. Umræða almennings og fjölmiðla um gróðureyðingu er
mikil og neikvæð í garð bænda, og þeim fellur hún þungt vegna þess, hve
þeir hafa þegar hneigt búhætti sína til meiri beitarstjórnar auk mikillar
fénaðarfækkunar. íslendingar, bændur sem aðrir, eru sómakærir fyrir hönd
sinna æðstu valdsmanna, og þegar menn úr þeim hópi taka að hlaupa á sig
með yfirlýsingum og ummælum um ofbeit og bera fyrir sig vísindamenn,
meðal annars Rannsóknastofnun landbúnaðarins, þá verður mönnum bilt
við.
Af hálfu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er því haldið fram, eflaust
með réttu, að mikils misskilnings gæti í þessu máli. Það hafi frá upphafi átt
að vera ljóst, að beitarþolsmatið, sem afhent var, væri ekki nothæft sem
grundvöllur beitarstjórnar nema að takmörkuðu leyti, ennfremur að þjóð-
félagsumræðan byggist á misskilningi að því leyti, sem hún vitni til
starfsmanna Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Skal það ekki véfengt,
en umhugsunarefni er það fyrir stofnunina, hvort hún þarf ekki fremur að
láta aðra túlka sitt mál en þá, sem svo mjög misskiljast.
En fyrir Búnaðarþing skiptir ekki mestu máli að leita sökudólga. Það á
ekki „að koma til að niðurbrjóta, heldur til að uppfylla". Því er hér lagt til,
að þær stofnanir, sem hér um ræðir, taki höndum saman um að leysa þetta
ágreiningsmál. Það verða þær að gera, því að sameiginlegt ætlunarverk
þeirra allra er þjónusta við landbúnað samtíðar og framtíðar. Þær verða
einnig að taka höndum saman um að sýna þjóðinni sem réttasta mynd af
sambúð lands og landbúnaðar og leiðrétta það spégler, sem fjölmiðlar
bregða fyrir augu þjóðarinnar í þessu máli. Öfgar leiða hvarvetna til ills, en
„aftur hverfur lygi, þá sönnu mætir“.
Mál nr. 30 og 37
Erindi Einars Þorsteinssonar um setningu nýrra búfjárrœktarlaga og van-
efndir á greiðslum lögboðinna framlaga og erindi Stefáns Halldórssonar og
Sveins Jónssonar um frumvarp til búfjárrœktarlaga.
Málin afgreidd með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing ályktar að kjósa þriggja inanna nefnd til að endurskoða
búfjárræktarlög nú í vetur í samráði við stjórn Búnaðarfélags íslands og
ráðunauta þess í búfjárrækt.
Kvatt verði til aukafundar Búnaðarþings að endurskoðun lokinni.
GREINARGERÐ:
Landbúnaðarráðuneytið hefur kynnt búfjárræktarnefnd áform um að
endurskoða lög um búfjárrækt og lögfesta að nýju á Alþingi, sem nú situr.
173