Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 163
forgangsréttar s.k.v. a) og b) eigi rétt á kauptryggingu, þegar
vinna fellur niður af ýmsum ástæðum t.d. veðurfars, árstíðar
o.fl.
5. Fjárfestingar vegna sauðfjárbúskapar - úrelding. Vegna búhátta-
breytinga úr sauðfé í skóg verður öll fjárfesting á bújörðum vegna
sauðfjárbúskapar arðlaus. Hér er um að ræða fjárhús, hlöður, önnur
hús, tún og jafnvel vélar. Þessar fjárfestingar ganga fljótt úr sér,
þegar hætt er að nota þær, og grotna niður. Því þarf að koma til móts
við sauðfjárbændur, sem breyta vilja í skógarbúskap að hluta eða
öllu leyti, t.d. með því að gefa þeim kost á:
a) Langtíma leigusamningi á ónýttum fullvirðisrétti t.d. til 15 til 20
ára. Jarðir, sem leigja Framleiðnisjóði og/eða ríkissjóði fullvirð-
isrétt sinn í sauðfé vegna búháttabreytinga í nytjaskóg, eigi fullt
og óskorað tilkall til að endurheimta hann að leigutímabili
loknu.
Ennfremur eigi þær óskoraðan rétt til að endurheimta fullvirðis-
rétt sinn, hvenær sem er á samningstímabilinu, ef opinber
fjárframlög til nytjaskóga á Héraði yrðu stórlega skert eða felld
niður með stjórnvaldsaðgerðum. Ráðstafi Framleiðni- og/eða
ríkissjóður, tímabundið, leigðum fullvirðisrétti skógarbænda á
Héraði til framleiðslu sauðfjárafurða, eigi bændur á svæði
B.S.A. forgangsrétt til hans.
b) Úreldingu framangreindra fjárfestinga v/sauðfjárbúskapar með
beinni greiðslu, t.d. úr Framleiðnisjóði, á2-3 árum. Við ákvörð-
un verðmætis verði tekið mið af brunabóta- eða fasteignamati.
6. Fjármögnunarmöguleikar til nytjaskógræktar á Héraði, þ.e. bú-
háttabreytinga úr sauðfé í skóg allt að 100 milljónum á ári, eru
þessir:
a) Árleg fjárveiting á fjárlögum hvers árs úr ríkissjóði.
b) Fast árlegt framlag úr Byggðasjóði.
c) Árlegt fjárframlag úr Framleiðnisjóði til þessara búháttabreyt-
inga svo sem annarra, sem hann hefur veitt fé til.
d) Árlegt framlag úr Stofnlánadeild landbúnaðarins. Deildin hefur
á undanförnum árum lánað mikið fjármagn til nýbúgreina, sem í
vissum skilningi má líta á sem framlög. Vafasamt mun um
endurgreiðslu þeirra lána sökum rekstrarerfiðleika þessara
greina.
Minna má á, að hinar hefðbundnu búgreinar íslenzks landbún-
aðar hafa á undanförnum 20 árum lagt Stofnlánadeildinni til
óafturkræft fjármagn með skattgreiðslu, sem nú er notuð til
útlána í þessar nýbúgreinar.
e) Þá má benda á, að við búháttabreytingu úr sauðfé í skógarbú og
n
161