Heilbrigðismál - 01.03.1981, Qupperneq 9
6.
Reykingar á vinnustað auka slysa-
hættu. Rannsóknir hafa sýnt, að
hætta reykingamanna á að lenda í
vinnuslysum er tvöföld á við þá
sem ekki reykja. Meðal ástæðna
þess má nefna, að reykingar draga
að sér athygli frá öðru, hendi er
upptekin við reykingar, menn
hósta og þeim súrnar í augum. Auk
þess leiða reykingar oft til íkveikju
og sprenginga, enda mikið um eld-
fim efni á mörgum vinnustöðum.
Reykingamenn bera eldfæri.
Nokkur dauðaslys hafa orðið
vegna neista frá logsuðu- eða raf-
suðutækjum, sem hafa brennt sig
gegnum föt og plasthylki á kveikj-
urum og valdið sprengingu.
7.
Mikið er nú rætt um orsakasam-
band milli fósturskemmda og
skaðlegra umhverfisáhrifa. Athygli
beinist að vinnuumhverfi sérstak-
lega. Vert er að muna eftir sam-
verkun þess og reykinga.
Reykingar eru hættulegar, en hér
hefur verið drepið á ýmislegt, sem
magnar hættuna. Auk félagslegra
sjónarmiða mælir því margt gegn
reykingum á vinnustað. En fyrir
menn í sumum störfum dregur það
lítið úr hættunni að reykja ein-
göngu utan vinnu. Hin samverk-
andi áhrif minnka ekki nóg við
það. Vissulega þarf einnig að
kappkosta að draga sem mest úr
allri mengun á vinnustöðum, en
slíkar aðgerðir hafa í sumurn til-
vikum lítið að segja, ef starfs-
mennirnir reykja.
Helstu heimildir:
1. Adversc Health Effects of Smoking and the
Occupational Environment. NIOSH Current Intelli-
gence Bulletin 31. U.S. Departmcnt of Health, Edu-
cation and Welfare. NIOSH Pub. No. 79-122. 1979.
2. Kotin P.. Gaul L.A. Smoking in the Workplace:
A Hazard Ignored. Am. Journal of Public Health.
June 1980. Vol. 70. No. 6. 575-576.
3. Selikoff I.J., Hammond E.C. and Cheng J.: As-
bestos Exposure, Smoking and Neoplasia. JAMA
1968; 204; 106-112.
Helgi Guðbergsson lœknir hefur slarf-
að á alvinnusjúkdómadeild Heilsuvernd-
arslöðvarinnar i Reykjavík en er mi við
framhaldsnám I atvinnusjúkdómum I
Finnlandi.
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur:
Séð yfir hluta af fundarsalnum
á aðalfundi Krahhameinsfélags
Reykjavíkur. í rœðustól er Baldvin
Tiyggvason gjaldkeri félagsins.
Heilbrigðis-
fræðsla og
happdrættis-
rekstur
Aðalfundur Krabbanreinsfélags
Reykjavíkur var nýlega haldinn.
Formaður félagsins, Tómas Árni
Jónasson læknir, og framkvæntda-
stjóri þess, Þorvarður Örnólfsson,
fluttu skýrslur um starf félagsins en
gjaldkerinn, Baldvin Tryggvason
sparisjóðsstjóri, gerði grein fyrir
ársreikningunt.
Meginviðfangsefni félagsins
hafa sem fyrr verið víðtækt
fræðslustarf og rekstur á Happ-
drætti Krabbameinsfélagsins.
Veigamesti þáttur fræðslustarfsins
fer fram í grunnskólum landsins. Á
skólaárinu 1979—1980 heimsóttu
starfsmenn félagsins bekki með
samtals unt sautján þúsund nem-
endunt í unr 100 skólum víðs vegar
um landið og í vetur hefur þessi
starfsemi verið með svipuðu sniði.
Auk fastra starfsmanna félagsins
tekur nú hópur læknanema þátt í
þessu fræðslustarfi sem nær eink-
um til nemenda 5.-9. bekkjar,
þ. e. 11 ára og eldri.
Félagið gefur út blaðið Takmark
í 30 þúsund eintökum þrisvar til
fjórum sinnurn á vetri og dreifir
rneðal þessara sömu aldursflokka í
grunnskólum um land allt. I haust
var í fyrsta sinn gefið út sérstakt
kennarablað af Takmarki með
ýmsum upplýsingum varðandi
fræðslustarfið í skólununr. Lita-
bókarblöð handa 8 ára börnuni
voru endurútgefin á árinu og dreift
urn allt land.
Nú í vetur hefur félagið látið
grunnskólunum í té nýja gerð við-
urkenningarskjala í tengslum við
baráttuna gegn reykingum. Þá hafa
verkefni fyrir hópvinnu um áhrif
og afleiðingar reykinga enn komið
út í endurbættri útgáfu.
Félagið hefur um nokkurra ára
skeið fengið árleg framlög frá ríki
og Reykjavíkurborg til fræðslu-
starfsins í grunnskólunum en
stendur þó sjálft undir stærstum
hluta kostnaðar við það.
Fræðslustarf félagsins i öðrum
skólum fer óðum vaxandi og stefnt
er að aukinni almenningsfræðslu
urn krabbamein og krabbameins-
vamir. í því skyni hefur verið aflað
nýrra fræðslugagna og nokkur ný
fræðslurit um krabbamein eru ým-
Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL 1/1981 9