Heilbrigðismál - 01.03.1981, Side 18
Fimmta hvert ár
Árið 1977 töldust vera
3144 sjúkrarúm á 35
sjúkrahúsum hér á landi.
Sjúklingafjöldi á árinu var
45006 sem samsvarar því
að hver landsmaður fari á
sjúkrahús fimmta hvert ár.
Fjöldi legudaga var
1.115.704 eða 5.0 dagar á
hvern íbúa landsins (var
2.6 dagar árið 1930). Hver
sjúklingur var að meðaltali
24.8 daga á sjúkrahúsi.
Nýting rúmanna var
91.2%.
Heilbrigöisskýrslur 1976 — 77.
Hvað eru lyf?
„Lyf eru . . . hvers
konar efni eða efna-
sambönd, lífrœn eða
ólifrœn, sem œtluð eru
til lœkninga, fróunar
eða varnar gegn
sjúkdómum eða
sjúkdómseinkennum
i mönnum eða dýrum,
svo og efni eða efna-
sambönd, sem notuð
eru til sjúkdóms-
greininga . . . “
Lvfsölulög, nr. 49/1978,
1. gr. 1. mgr.
Mjólkurþamb
Á aðalfundi Osta- og
smjörsölunnar í vor kom
fram að meðalneysla
landsmanna af nýmjólk
var 212 lítrar árið 1980, en
sé súrmjólk, jógúrt og
undanrenna talið með var
hún 243 lítrar. Sagt er að
það sé mesta mjólkur-
neysla á mann í heimi hcr.
Heilbrigðisfulltrúar
stofna félag
Hinn 10. febrúar 1981
var stofnað Heilbrigðis-
fulltrúafélag íslands.
Markmið félagsins er að
sameina heilbrigðisfull-
trúa um áhuga- og hags-
munamál stéttarinnar og
auka gagnkvæm kynni fé-
lagsmanna, að viðhalda og
auka menntun heilbrigðis-
fulltrúa, að auka þekkingu
og skilning á starfi heil-
brigðisfulltrúa, að efla
samvinnu þeirra um allt
sem horfir til framfara í
heilbrigðismálum þjóðar-
innar og koma á samvinnu
við aðrar heilbrigðisstéttir í
landinu.
í félagslögum segir að
rétt til inngöngu í félagið
hafi þeir sem eru sér-
menntaðir heilbrigðisfull-
trúar og einnig þeir sem
starfað hafa sem heil-
brigðisfulltrúar í fullu
starfi í fimm ár og sótt
námskeið. Aukafélagar
geta þeir orðið sem starfa
við heilbrigðiseftirlit en
uppfylla ekki áðurnefnd
skilyrði.
Samkvæmt lögum um
hollustuhætti og heilbrigð-
iseftirlit skal ráða heil-
brigðisfulltrúa í fullt starf í
kaupstöðum með fleiri en
tíu þúsund íbúa, og í hluta
starf á öðrum þéttbýlis-
stöðum með meira en átta
hundruð íbúa. □
Stjóm, varastjórn og endur-
skoðendur Heilbrigðisfull-
trúafélags íslands. Fremri
röð: FÁnar I. Sigurðsson
ritari (Kópavogi), Kormák-
ur Sigurðsson formaður
(Reykjavík) og Valdimar
Brynjólfsson gjaldkeri (Ak-
ureyri). Aftari riið: Oddur
Rúnar Hjartarson endur-
skoðandi (Heilbrigðiseftir-
liti ríkisins), Sveinn Guð-
bjartsson í varastjórn
(Hafnarfirði), Matthías
Garðarsson í varastjórn
(Reykjavík) og Hróbjartur
Lúthersson endurskoðandi
(Reykjavík).
30 ár
í þjónustu við
sjúklinga
Nú í apríl eru liðin þrjá-
tíu ár síðan „Óskalög
sjúklinga" voru fyrst á
dagskrá í útvarpinu. Fyrsti
umsjónarmaður þáttarins
var Bjöm R. Einarsson en
síðan hafa sjö aðrir stjórn-
að þættinum.
í þættinum eru flutt lög
sem sjúklingarnir óska eft-
ir og mega þeir senda
kveðjur til vina og vanda-
manna. Þáttur þessi hefur
fyrir löngu öðlast sess í út-
varpsdagskránni og munu
fáir þættir hafa verið leng-
ur á dagskrá.
Kristín Sveinbjörnsdótt-
ir hefur séð um „Óskalög
sjúklinga" síðustu 14 ár en
frá því í fyrra hefur Ása
Finnsdóttir annast annan
hvern þátt. □
Afmælisgjöf til Landspítalans:
Tolvustýrt sneiðmyndatæki
Þegar minnst var 50 ára
afmælis Landspítalans,
um miðjan desember, var
kunngert að ríkisstjórnin
myndi beita sér fyrir því að
keypt yrði tölvustýrt
sneiðmyndatæki (CT-
skanner). Við lokaaf-
greiðslu fjárlaga, nokkrum
dögum síðar, var sett inn 7
millj. nýkr. fjárveiting í
þessu skyni (700 millj.
gkr.).
Haft hefur verið eftir
forstjóra Ríkisspítalanna
að leitað verði tilboða
fljótlega og sé þess vænst
að tækið verði tekið í
notkun fyrir lok þessa árs.
Epli
og aðrir ávextir
Nú eru þekkt um 6500
afbrigði af eplum, en fyr*r
tvö þúsund árum voru þau
36. Hver Bandaríkjamaður
borðar árlega um 15 kg af
eplum.
Ekki eru fyrirliggjandi
tölur um neyslu á eplum
hér á landi, en innflutn-
ingur ávaxta til íslands ár-
ið 1980 var um 36 kg á
íbúa.
Weight Watchers, des. 1980.
H agliöindi, 1/1981.
18 Fróttabróf um HEILBRIGÐISMAL 1/1981