Fréttablaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 04.01.2010, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR.IS 4. JANÚAR 20101. TBL. Fasteignamarkaðurinn hefur til sölu fallegt og nýlegt raðhús á einni hæð í Viðarási í Árbæjar- hverfi. R aðhúsið í Viðarási er 172,5 fm með innbyggð-um 28,2 fm bílskúr sem innangengt er í. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, stofa bað- herbergi og gestasalerni. Komið er inn í forstofu með fataskápum. Hol er parketlagt. Við hol er flísalagt gestasalerni. Barna- herbergin eru þrjú og öll parketlögð auk þess sem fataskápar eru í öllum herbergjum. Hjónaherbergi er parketlagt og með fataskápum. Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum og er bæði með hornbaðkari og sturtuklefa. Baðher- bergisinnréttingarnar eru með graníti á borðum. Rúmgóðar parketlagðar stofur með útgangi á ver- önd til austurs með skjólveggjum. Í stofum er gert ráð fyrir arni. Eldhúsið er stórt og með fallegum innrétt- ingum úr kirsuberjaviði með graníti á borðum. Vönd- uð tæki eru í eldhúsi, tengi fyrir uppþvottavél og út- gangur á verönd til suðurs og vesturs. Góð borðað- staða er í eldhúsi. Þvottaherbergi er inn af eldhúsi og er það með glugga og vinnuborði. Sjónvarpsaðstaða er framan við eldhús. Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Loft í bílskúr er óklætt. Geymsla er inn af bílskúr. Hiti er í innkeyrslu framan við húsið. Húsið er í góðu ástandi að utan og lóð er nánast alveg fullfrágengin. Raðhús á einni hæð Raðhúsið er um 172 fm, fallegt og nýlegt. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki heimili@heimili.is Sími 530 6500

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.