Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 68
62
MORGUNN
lifandi manna eru rækilega sönnuð fyrir rannsóknir
og óteljandi tilraunir gætinna og viturra manna,
2) vildi ég sýna með hve mikilli varúð og vakandi dóm-
greind menn verða að ganga að tilraunum með miðla,
sjálfsagt miklu meiri varúð en margir eiga til að
bera, sem við þau efni fást. Með ósanngjörnum þver-
girðingshætti er vissulega hægt að eyðileggja ár-
angurinn, en með dómgreindarlítilli trúgirni vinnst
sannarlega ekki það, sem vert er að sækjast eftir,
— og loks
3) vildi ég benda á það, að margir misnota fjarhrifa
tilgátuna vegna þess, að þeir vilja fyrir alla muni
komast hjá að viðurkenna að miðlafyrirbrigðin geti
að nokkru leyti stafað frá framliðnum mönnum, og
að þeir ganga miklu lengra í þá áttina en tilraunir
vísindamannanna með fjarhrifin gefa nokkurt
minnsta tilefni til.
Jón Auðvns.
Frú Leonard fer sálförum.
Morgunn hefir ali-oft getið þessarar frægu konu, sem
um langt skeið hefir verið talin einn af ágætustu sann-
anamiðlum veraldarinnar, og má þar einkum nefna tvær
ritgerðir Einars H. Kvarans: „Fyrsti miðill Raymonds“,
Morgunn I, 1 og „Frægasti sannanamiðill Norðurálfunn-
ar“, XIII, 2.
Frú Leonard er frægust fyrir endurminningasannanir
þær, sem hjá henni hafa fengizt og sannfært hafa geysi-
fjölda manna um framhaldslífið, en á miðilsgáfu henn-
ar eru einnig aðrar merkilegar hliðar, t. d. sálfarirnar.
Þeirri reynslu sinni lýsir hún þannig sjálf:
,,Það var síðla dags, að ég lá á rúmi mínu og hálf-