Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 132
126
M O R G U N N
Það væri ósanngjarnt að efa að hr. Ólafur Ólafsson
eigi marga ágæta samherja í trúboðsstrfinu í Kína, en ég
efa að nokkur þeirra sé ágætari en norski kristniboð-
inn Reichelt, sem vegna lærdóms og vits-
HvaS gera munk-muna jr jnikig unnið á meðal kín-
armr 1 Kma? , , .
verskra menntamanna. Hann segir m. a.
frá því dæmi um bænaáhuga Búdda-munkanna í heims-
styrjöldinni síðustu, að í sumum þessara klaustra hafi
þeir skiftzt á að vaka og biðja, bæði nætur og daga, fyrir
sálum hermannanna, sem voru að falla á vígvöllum Norð-
urálfunnar. Ég held að hr. Ól. Ól. mundi vera í fuliu
samræmi við trúarskoðanir ísl. þjóðkirkjunnar ef hann
kenndi oss að biðja af trú og kærleika fyrir sálum þeirra,
sem á undanförnum árum hafa verið að falla á vígvöll-
unum austur í Kína. En hann er einhvers staðar fyrir ut-
an íslenzku þjóðkirkjuna ef hann ætlar að fara að taka
sér vald til að banna oss að biðja fyrir framliðnum ást-
vinum vorum. Enda geri ég ráð fyrir að honum veitist
álíka örðugt að sannfæra oss um það, og að sannfæra
Búdda-munkana í Kína um að þeir eigi ekki að vera að
biðja fyrir sálum hermannanna, sem falla á Vesturlönd-
um.
Próf. Sigurður Nordal flutti í vetur fyrirlestraflokk
um líf og dauða, sem mikill hluti þjóðarinnar hefir vafa-
, „ , laust hlustað á gegn um útvarpið og flest-
Lif og dauði. ,. ,
ír ser til anægju, svo hispurslaus og em-
arður, og þó að mestu leyti sanngjarn, var málflutn-
ingur prófessorsins. Erindin snertu mjög það málefni,
sem Morgunn berst fyrir, en vér væntum þess að þau
verði birt almenningi innan skamms og mun þá gefast
tækifæri til margskonar hugleiðinga í sambandi við þau.
Margir halda því fram, og þykjast bera
Er miöilsstarfið jærga menn 0g iækna fyrir því, að miðils-
heilsuspillandi? ,
starísemi spilli hedsu manna. Veikbyggð-
ir menn geta vissulega ofboðið sjálfum sér við það starf
eins og öll önnur, þegar óviturlega er unnið; en ekki hef-