Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 128
122
MORGUNN
Cambridgehó í minning- F. W. H. Myers hefir
skóli og sálar- ^erið efnt til sálarrannsókna við Trinity
rannsóknirnar. College í Cambridge-háskóla Stefnu-
skráin var birt í sunnudagsútgáfu enska stórblaðsins
,,Times“, þann 11. febrúar síðastliðinn, og samkvæmt
henni er ætlunin að „rannsaka hugræn og líkamleg fyr-
irbrigði, sem virðast í fljótu bragði benda á: a) yfirnátt-
úrlega þekking eða yfirnáttúrlegt starf í manninum þeg-
ar í þessu lífi, eða b) framhaldslíf mannssálarinnar eftir
Jíkamsdauðann".
Rannsóknunum á að haga með algjörlega vísindalsg-
um hætti. Félagið velur karla og konur, áem fá ákveðið
verkefni í hendur, sem þeim er ætlað að vinna því nær
eingöngu að um tiltekinn tíma og birta síðan árangurinn
af rannsóknum sínum. Fyrsti kandidatinn verður kosinn
í maí og á að hefja rannsóknastarf sitt í okt. n. k.
Fram til þessa hefir andað heldur köldu frá háskólun-
um til sálarrannsóknanna, enda þótt nokkrir af frægustu
háskólakennurum heimsins hafi gerst forystumenn hinna
ungu vísinda. Þessi fregn bendir til þess að breyting sé að
verða á þessu, og einkum hlýtur oss að þykja vænt um,
að fyrsta sálarrannsóknafélag stúdenta skuli stofnað við
hið fræga Trinty College, þar sem hinn heimskunni
brautryðjandi sálarrannsóknanna, Myers, starfaði lengst
og með honum menn eins og Balfour lávarður, fyrrum
forsætisráðherra Breta o. fl.
Það má engan furða, þótt sálarrannsóknamálinu gangi
seint að vinna fulla viðurkenning vísindanna, hitt er
fyrir öllu, að það er alltaf að vinna á.
Fyrir stuttu fór af þessum heimi einn af
frumherjum spiritismans í Hollandi, dr.
van Holthe tot Echten, 85 ára gamall.
Light minnist hans sem óvenjulega ástúðlegs og göfugs
manns, sem unnið hafi mikið gagn sem ritstjóri mánað-
arrits spiritista í föðurlandi sínu og með óteljandi rit.
gerðum og blaðagreinum. Kona hans var fyr á árum
Einn aí frum-
herjunum.