Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 127
MORGUNN
121
reynt að draga fjöður yfir það, að því fer ákaflega
fjarri, að allir séu færir um að ganga að tilraunum með
miðla, og að séu þær tilraunir reknar með dómgreindai'-
leysi og barnalegri trúgirni, geti blekkingunum verið
opin leið. Um þetta efni erum vér fyllilega sammála
biskupinum og efum ekki, að hann, sem hefir þá þekk-
ing á mistökum kirkjunnar þjóna, sem hirðisbréfið hans
ber vott um, muni vera oss sammála um það, að krist-
indómurinn og spiritisminn eigi það sameiginlegt með
öllum öðrum málefnum, að hafa stundum sætt óviturlegri
meðferð í höndum skammsýnna manna.
Um þetta efhi vísast að örðu leyti til niðurlagsorðanna
í erindinu: ,,Hvað segir spiritisminn um Krist?“
Af hirðisbréfi herra biskupsins sér Morgunn til þess
ástæðu í annað sinn, að bjóða hann hjartanlega velkom-
inn til síns tigna embættis.
íslenzkir spiritistar munu undantekningarlítið óska
þess, að þeir geti verið góðir synir og góðar dætur kirkj-
unnar. Vér þykjumst mega ætla, að það skifti kirkjuna
ekki litlu máli, svo mikill fjöldi þjóðarinnar getur telcið
undir orð biskupsins: „Ég á spiritismanum mikið að
þakka“; og vér teljum jafnframt mikla tvísýnu á, að
spiritismanum verði til framdráttar sú leiðin, sem þröng-
sýni kirkjunnar hefir sumstaðar erlendis knúið spiritist-
ana inn á, að þeir segi skilið við kirkjuna og myndi eig-
in söfnuði.
Á 20 ára afmæli S.R.F.l. barst félaginu mjög vinsam-
leg afmæliskveðja frá prófasti og prestum Skagafjarð-
arprófastsdæmis. 1 svari forseta S.R.F.Í. til prestanna
var látin sú ósk í ljós, að ,, sálarrannsóknirnar og kirkjan
mættu alltaf standa saman um sannleikann“.
Sú er ósk vor enn, og á meðan hirðisstafurinn er í
höndum víðsýns biskups, ætti engu að þurfa að kvíða í
því efni.