Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 102
96
M O R G U N N
sóknin varð miklu meiri að prestinum en áður, því að nú
var hann orðinn píslarvottur.
Á liðnu ári gaf hann út aðra bók sína um sálræn c,-fni.
Bókin heitir ,,Mine Möten med Ljusets Yánner“ og er
myndin af Ástríði drottningu tekin úr þeirri bók.
Meðal enskra spiritista er það opinbert leyndarmál,
að Leopold Belga-konungur er spiritisti, og að hann
hefir hvað eftir annað lcomið til Englands til þess að
ná sambandi við konu sína hjá þarlendum miðli.
Sænsku blöðin virðast yfirleitt hafa tekið ljósmyndinni
af Ástríði drottningu með meiri skynsemi og skilningi en
sænsku kirkjuhöfðingjarnir tóku tiltæki Liljeblads
prests, er hann gerðist spiritisti. En dönsku blöðin virð-
ast enn ekki vera búin að hlaupa nóg á sig í árásum á
Einer Nielsen, því að danska blaðið „Berlingske Tidende“
reis upp til handa og fóta, þegar myndin var birt, og
taldi hana einber svik.
En enska blaðið „Psychic News“ tók málið til alvar-
legrar rannsóknar og knésetur heldur óþyrmilega spek-
ingana í „B. T.“.
Afstaða dönsku blaðanna til spiritismans þykir oss
jafn furðuleg og ensku blöðunum sumum virðist þykja.
Hvernig er hægt að fullyrða að svik séu höfð í frammi
þegar 20 manns horfir á drottninguiia um leið og mynd-
in er tekin af henni? Myndavélar séra Liljeblads stað-
festu aðeins það, að þetta fólk hafði ekki orðið fyrir
blekkingum; hann tók myndir sínar með þrem mynda-
vélum samtímis.
Miðillinn hafði komið út úr byrgi sínu og drottningin
líkömuð með honum, en hann fór inn í byrgið aftur er
taka skyldi myndina í mjög sterku ljósi, því að sterk ljós
þola miðlarnir, oftast miklu ver, en hinir ójarðnesku
gestir.