Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 89
MORGUNN
83
kona ein, sem þjáðist mjög af taugaveiklun, hafði árum
saman sofið í rúmi þessu.
Á einum slíkum fundi var Bland fengin brjóst-
nál til athugunar. Rétt eftir að hann hafði tek-
ið brjóstnálina í hönd sína kvaðst hann verða var
við einhvern undirbúning undir ferðalag, sagði því
næst, að sér virtist allt vera að komast á hreyfingu,
hann væri úti á sjó, hann kvaðst greina vesturströnd
írlands og kvað skipið nú stefna beint til vesturs, það
hefði farið til New-York. Því næst lýsti hann ferðalagi
með járnbrautarlest, lestin hefði stefnt í suðvesturátt,
eigandi brjóstnálarinnar myndi hafa dvalið kringum ár
á þessum slóðum og horfið svo aftur heim til Englands.
Þetta reyndist rétt að vera, að öðru leyti en því, að kona
sú, sem brjóstnálina átti, hafði. aðeins dvalið þar í þrjá
mánuði. Hvernig stendur nú á þessari skekkju, sem
virðist í fljótu bragði koma fram í lýsingu Blands? Frú-
in upplýsti, að hún hefði í upphafi verið mjög ákveðin
í því, að dvelja þarna vestra ekki skemur en eitt ár og
sér hefði þótt miklu miður, þegar ófyrirsjáanleg atvik
hefðu knúið sig til að hverfa aftur heim til Englands
eftir þriggja mánaða dvöl. Hugsun frúarinnar um að
dvelja þarna í eitt ár virðist hafa mótast skýrt og greini-
lega í vitund hennar og það er auðsætt, að hún hefir
aldrei mótað hugsunina um að dvelja þarna aðeins í þrjá
mánuði í vitund sína, aldrei gefið henni fasta og ákveðna
mynd, enda sýnist hugsun hennar um þetta ekki hafa
verið gædd neitt líku orkumagni og hin áðurnefnda. Ef
hér væri aðeins um hugsanalestur að ræða, þá er ekk-
ert líklegra en að miðillinn myndi hafa náð hugsun frú-
arinnar um það, að hún gat aðeins dvalið þarna í þrjá
mánuði, sem vafalaust hefir einnig komið fram í huga
hennar, þegar hún heyrði að hann var farinn að minn-
ast á þetta ferðalag hennar í lýsingu sinni.
Á samkomu einni, þar sem líkar tilraunir fóru fram
að viðstöddum mannfjölda, æskti psychometristinn þess,
6*