Jazzblaðið - 01.09.1949, Page 18
Benny Good-
man. — Aðalum-
ræðuefni enskra
jazzunnenda og
hl j óðf ær aleikar a
undanfarið, hef-
ur verið koma
klarinetleikarans
og' hljómsveitar-
stjórans Benny
Goodman til Eng
lands. Hann kom fram á hljómleikum á
hverjum degi vikuna 18.—24. ágúst með
enskri hljómsveit og sextet skipuðum ensk-
um jazzleikurum, ásamt píanóleikaranum
Buddy Greco, sem leikur í hljómsveit
Benny. Hljómsveitin var „The Skyrockets",
en þeir sem léku með honum í sextetinum
voru auk Greco, Tommy Polland vibrafón,
Pete Chilver guitar, Charlie Short bassi,
og Flash Winstone trommur. Kenny Baker
trompetleikari tók einnig þátt í hljómleik-
unum og Marcy Lutes söngkona Goodman
hljómsveitarinnar, en hún og Greco voru
þau einu, sem komu fram í Englandi af
meðlimum hennar. Hljómsveitin öll átti að
fara í hljómleikaför til Skandinavíuland-
anna í byrjun ágúst, en úr því varð þó ekki.
Á hljómleikunum í Englandi kom einnig
fram belgíski guitarleikarinn Toots Thiele-
mans, sem Goodman er nýhúinn að ráða
til sín. Hann mátti þó ekki koma fram á
hljómleikunum, sem hljóðfæraleikari, þar
sem erlendir hljóðfæraleikarar mega ekki
leika í Englandi (Goodman og co. höfðu
sérstakt leyfi), en hann er snjall munn-
hörpuleikari og kom fram sem slíkur. Svo
að munnharpa er þá ekki hljóðfæri!
•
Danny Polo, hinn kunni klarinetleik-
ari, lézt í miðjum júlí, 47 ára gamall.
Ilann lék i fjölda ára með amerískum
og evrópískum hljómsveitum og var síð-
ast með Claude Thornhill hljómsveit-
inni, en hún var að leika í Chicago, er
Polo dó.
•
Eddie Shu hljóðfæraleikari, sem nýlcga
er byrjaður í hljómsveit Lionel Hampton,
vekur mest umtal allra jazzleikara í Banda-
ríkjunum um þessar mundir. Hann er stór-
kostlega góður altó-saxafónleikari og
leikur auk þess mjög vel á trompet, trom-
bón, klarinet, tenór-saxafón, fiðlu, guitar,
píanó og auk þess er hann mjög snjall búk-
talari og hefur hann dúkku, sem syngur með
hljómsveitinni. Ekki er allt búið enn, því
hann er sagður fyrsti Bandaríkjamaður-
inn til að leika sannan Be-bop jazz á munn-
hörpu.
•
Itolf Erickson,
sænski trompet-
leikarinn, hefur
leikið í hljóm-
sveit Charlie
Barnet í U.S.A.
í nokkra mánuði
og hefur vakið
eftirtckt meðal
jazzunnenda fyr-
ir góðan leik.
ERLENT.
18 jazzlLU