Jazzblaðið - 01.09.1952, Blaðsíða 11

Jazzblaðið - 01.09.1952, Blaðsíða 11
Harry Klein Sá blásturshljóðfæraleikarinn, sem mér fannst skemmtilegast að hlusta á og held að mundi falla íslenzkum jazzáheyrendum bezt í geð er baritón og altó-saxófónleikar- inn Harry Klein. Hann er fremsti baritón- saxófónleikari Englendinga en er nokkurn- veginn jafngóður á altó, sem var hans fyrsta hljóðfæri. Harry hefur leikið í öll- um fremstu hljómsveitum Englands. Leikur hans einkennist af skemmtilegri tækni og stó'rkostlegum hugmyndum ásamt óþrjót- andi krafti. Harry tekur leik sinn mjög alvarlega, æfir mikið og hlustar mjög mikið á plötur enda á hann það skemmtilegasta plötusafn sem ég hefi komist í kynni við. Hann hefur leikið á millilandaskipum og kynnst amerískum jazzleikurum og leik þeirra. Hafði hann lengi vel miklar mætur á Lee Konitz og leik hans, og tileinkaði sér jafnvel stíl hans, en eftir að hann kynntist Charie Parker betur þá sannfærðist hann um, að Parker sjálfur og enginn annar er fremsti maður nútíma jazzins. Klariknetleikarinn Vic Ash er annar jazz- leikari, sem maður kemst ekki hjá að dást að. Hann er tiltölulega nýr í ensku jazzlífi. Tók ekki að vekja athygli á sér, að verulegu ráði fyrr en á þessu ári. Nú leikur hann á altó-saxófón og klarinet í einni af fremstu hljómsveitum landsins, Vic Lewis hljómsveitinni. Leikur Vic Ash minnir mann talsvert á leik ameríska snillingsins Buddy De Franco, ekki vegna þess að sólóar þeirra séu líkar heldur vegna hins, að Vic notar neðra „registrið“ á klarinetinu talsvert mikið, en það gerir De Franco einmitt. Vic lék á plötur þeirri sem leikin var inn af fremstu jazzleikurum Englands um síðustu áramót og á hann þar eina beztu sólóana. Jimmy Deauchar Aðrir blásturshljóðfæraleikarar sem nefna má eru trompetleikarinn Bert Court- !ey, trombónleikarinn Ken Wrey, tenór- istinn Bob Burns, sem er Kanadamaður nýfluttur til Englands. Allt eru þetta af- bragðs jazzleikarar. Ogekki mágleymablás- urunum úr liljómsveit Jack Parnell sem flestir léku þarna eina kvöldið sem þeir áttu frí í London yfir miðsumarstímann. Trompetleikarinn Jimmy Deauchar bar af. Telja allir hann mesta trompetleikara, sem nú er uppi í Evrópu. Leikur hans minnir nokkuð á stíl Miles Davis. Yfirlætislaus tækni og hnitmiðaðar sólóar. Trombón- leikarinn Mack Minshull var fremsti tromb- ónleikari Englendinga á síðasta ári. Mack er skemmtilegur trombónleikari og áreiðanlega langbezti trombónleikari Breta, Han-y Klein Jimmy Deauchar Tommy Whittle Myndlr frá „Melody Maker".

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.