Musica - 01.12.1949, Síða 11
Nellie Melba fæddist árið 1861, nálægt Melbo-
urne í Ástralíu, og hét upphaflega Helen Porter
Mitchell, en nafnið Melba var eftir fæðingarstað
hennar, hún dó í Sindey, Ástralíu, árið 1931 sextíu
og níu ára að aldri.
Er Nellie Melba féll frá (eða réttara sagt um
1924, er hún hætti að syngja á söngleikjahúsunum)
komu að sjálfsögðu fram margar söngkonur, með
þá tækni og hæfileika, er þurftu til að skipa sæti
Melbu, en enga rödd hefi ég heyrt jafn silfurskæra
og rödd Melbu, og mun líklega aldrei heyra.
Ég verð að biðja lesandan velvirðingar á, að ég
skyldi byrja á Melbu, en bæði er hún mér svo
minnisstæð, vegna persónulegra kynna okkar, og
svo fannst mér persónuleiki hennar svo mikill og
dásamlegur, að mér fannst skylda að setja nafn
hennar og sögu efst á blað.
Árið 1850 kom undrabarn til New York sem
setti borgina á annan enda, þetta undrabarn var
Adelina Patti, og var hún þá aðeins sjö ára að aldri.
Patti fæddist 19. febrúar árið 1843, og voru
foreldrar hennar báðir söngvarar, Salvatore Patti,
og Catherina Barili.
Fæðingarborg hennar, Madrid hefir löngum alið
fræga tónlistarmenn, en sjaldan jafn gagntón-
menntaða fjölskyldu eins og fjölskylduna Patti.
Eins og áður var sagt voru foreldrar Adelinu
báðir söngvarar, Charlotte Patti systir hennar var
afar fræg söngkona, er söng á öllum frægustu
söngleikjahúsum álfunnar, þar til hún fékk lömun-
arveikina, en eftir það söng hún eingöngu á hljóm-
leikum, sagt var að rödd hennar hefði haft tónhæð
Adelinu (F 3) enn verið fínlegri og beitt af enn
meiri leikni.
Bróðir hennar, Carlo Patti, var þekktur fiðlu-
leikari, og varð m. a. konsertmeistari við hljóm-
sveit söngleikjahússins í New Orleans tvítugur að
aldri, og hélt hljómleika viða um Bandaríkin.
Hálfbróðir hennar Ettore Barili var þekktur
söngkennari og kendi hann Adelinu.
Adeline byrjaði að syngja opinberlega 5 ára
að aldri, og söng með litlum hvíldum þar til er
hún var 12 ára að aldri, en í fjögur ár frá 12—16
ára söng hún ekki opinberlega, en helgaði sig alger-
lega æfingum undir handleiðslu Ettore hálfbróður
síns og Strakosch mágs síns (giftur Amelíe elstu
systir hennar) en Charlotte kenndi henni píanó-
leik.
Rúmlega sextán ára hóf hún aftur hljómleika-
ferðir sínar, fyrst til Vestur-Indía, svo til Banda-
ríkjanna, og þaðan til London, og flestar höfuð-
borgir álfunnar buðu hinni dásamlegu söngkonu
heim.
Adelina Patti.
MUSICA 1 1