Musica - 01.12.1949, Page 12
Jenny Lind.
Eftir árið 1882 söng hún aldrei fyrir minna en
5000 $ á kvöldi og sum kvöld fékk hún 6000 $
I 56 ár söng Patti á söngleikjahúsum, í hljóm-
leikasölum, á góðgerðarsamkomum, hún var á
sífeldum ferðalögum, og allstaðar kom hún, sá og
sigraði, og þeir er voru svo heppnir að hafa hlust-
að á hana hafa ekki næg orð til að lýsa hrifningu
sinni, á röddinni og þeirri tækni og fínleika er
hún hafði yfir að ráða.
Patti giftist þrisvar, í fyrsta sinn 1868 greifanum
af Caux, en skildi við hann 1885 og giftist árið
1886 söngvaranum Ernest Nicolas, og fylgdi hann
henni á hljómleikaferðalögum hennar en dó árið
1898 og árið 1899 giftist hún sænska baróninum
Cederström.
Kveðjuhljómleikur hennar var í Albert Hall í
London, 1. desember 1906, en síðasta lagið er hún
söng opinberlega var „Home, sweet home“ á hljóm-
leik Rauða krossins, 20. október 1914.
Patti dó árið 1919, 27. september í Wales, en var
jarðsett í París.
Þannig var æfi Adelinu Patti eða Adele Juane
Maria Patti sem hún raunverulega hét, og þótt
stiklað hafi verið á stóru, sézt greinilega að Patti
hefir efalaust verið með merkari söngkonum
heimsins, og óumdeilanlega sú söngkona er hefir
haft lengsta starfsæfi.
Árið 1820, 6. október fæddist yndislegt meybam
í Stokkhólmi sem átti eftir að bera hróður Svíþjóð-
ar um heim allan, það varJenny Lind, er fékk
viðurnefnið „sænski næturgalinn“.
Jenny Lind var ekki aðeins dásamleg söngkona,
heldur var framkoma hennar svo yndisleg, og
fegurð hennar svo mikil að þeir er eitt sinn sáu
hana gleymdu henni ekki aftur.
Danska æfintýraskáldið H. C. Andersen fann í
henni dís drauma sinna og bað hennar, hún
varð, hrygg í huga að hryggbrjóta hann, en hann
hefir gert hana ódauðlega í ævintýrum sínum.
Níu ára að aldri fór Jenny Lind í skóla konung-
lega leikhússins, og voru kennarar hennar þar
Croelius og Berg, og átján ára að aldri söng hún
fyrsta hlutverk sitt sem Agatha í „Freischiitz“
eftir Weber.
Hún fékk afar góða dóma og söng fjölda hlut-
verka m. a. aðalhlutverkin í „Euryanthe", „Robert
le Diable“ og „La Vestale“.
Er hún var tvítug varð hún meðlimur konung-
lega sænska listvinafélagsins, enn þrátt fyrir allt
það lof er hún hlaut, var hún ekki ánægð með
framför sína og fór því til Parísar til frekara náms
(1841) og stundaði þar nám í 11 mánuði hjá
Manuel García.
Meyerbeer heyrði hana syngja hjá García og
fyrir atbeina hans fékk hún hlutverk á söngleikja-
húsinu í Berlín, fyrst sem Norma, og svo í söng-
leik Meyerbeers „Feldlager in Schlesien“.
Er hún hafði lokið að syngja í Berlín söng
hún í stærstu borgum Þýzkalands, þarnæst kom
Austurríki, svo London, og Irland, og árið 1850
fór hún til Bandaríkjanna, var á stöðugum ferða-
lögum um landið í tvö ár og lagði fyrir um
130.000. $.
Árið 1850 giftist hún tónskáldinu og hljómsveit-
arstjóranum Otto Goldsmith, er hún kyntist í
Boston, og árið 1852 fluttust hjónin til Dresden, og
bjuggu þar í þrjú ár, en 1856 fluttu þau til Eng-
lands cg þar dó Jenny Lind 2. nóvember 1887,
67 ára að aldri.
Jenny Lind mun ekki aðeins verða minnst sem
mestu söngkonu svía heldur sem dásamlegrar
álfameyjar er heillaði alla er hana sáu og heyrðu.
12 MUSICA