Musica - 01.12.1949, Qupperneq 26
Undrabarnið okkar
Þórunn Jóhannsdóttir
ísland hefir ekki verið auðugt af hinum svo-
kölluðu undrabörnum, enda hafa fæstir íslenzkir
foreldrar, fram til seinni ára a. m. k. haft nokkra
fjárhagslega möguleika, til að hlúa að efnilegum
börnum. Fyrst eftir að börnin eru kominn úr föð-
urgarði, hafa þau haft möguleika til að hlúa að
hæfileikum sínum, og þá hefir það oft verið um
seinan.
Þórunn litla Jóhannsdóttir er svo hamingju-
söm að eiga góða og skilningsríka foreldra, sem
allt hafa viljað fyrir hana gera, viljakraft og
ástundun og hæfileika af guðs náð.
Það er mjög erfitt fyrir foreldra að ala upp
börn er skara mjög frammúr, ef ekki er að gáð,
verða þau oft spillt af eftirlæti, dekri og sjálfs-
hrifningu, eða beygð, pínd og ofþreytt.
Þórunn litla er barnsleg, yfirlætislaus og glað-
leg, og áhugi hennar við að æfa sig á píanó er svo
mikill, að foreldrar hennar verða að halda aftur
af henni.
Hún gengur í barnaskóla jafnframt námi sínu
við Royal College of Music, hún gengur í skólann
vegna þess að hún veit, að í skóla verða allir að
ganga, en hún hefir ekki áhuga á öðru en píanóinu,
og strax og hún kemur úr skólanum sezt hún við
hljóðfærið og sökkvir sér niður í verk meistaranna.
Það er miklum erfiðleikum bundið að komast
að við Royal College of Music í London, og börn-
um er afar sjaldan hleypt þangað inn, en vegna
mikilla hæfileika Þórunnar litlu gerði prófessorar
skólans undantekningu frá reglunni, og leyfðu
henni skólavist, að undangengnu erfiðu prófi.
Jóhann Tryggvason, faðir Þórunnar hefir hlotið
atvinnuleyfi í Englandi, en eins og allir vita er það
miklum erfiðleikum bundið vegna mikils atvinnu-
leysis meðal enskra tónlistarmanna, en atvinnu-
leyfið gerir Jóhanni kleyft að standast straum af
námskostnaði Þórunnar.
Þórunn litla Jóhannsdóttir er stolt okkar allra,
og við eigum öll miklar vonir bundnar við frægð
hennar og frama.
H. Ó.
Chopin-tónleikar í minningu Frédérich Chopin
voru haldnir í Háskólanum sunnudagana 23. okt.
og 1. nóvember.
Meðal listamanna er fram komu voru, Þuríður
Pálsdóttir, Jórunn Viðar, Árni Kristjánsson, Björn
Ólafsson og Einar Vigfússon. — Tónleikanna
verður getið nánar í næsta tölublaði.
Karl Jónatansson hélt jazz-hljómleika í Gamla
Bíó, þriðjudaginn 15. nóvember.
Á hljómleikum þessum léku þrjár hljómsveitir,
Hljómsveit Björns R. Einarssonar, K. K. sextettinn
og hljómsveit Karls sjálfs, og var Sigrún Jónsdóttir
einsöngvari með henni. — Hljómleikanna verður
nánar getið í næsta tlb.
Tímaritið „MUSICA".
Tónlistartímarit, kemur út 6 sinnum á ári. — Útgefandi: Drang-
eyjarútgáfan. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Tage Ammendrup.
Ritstjórn og afgreiðsla Laugaveg 58, símar 3311 og 3896. — Áskrift-
arverð 40 kr. fyrir árið. — Sent burðargjaldsfrítt um allt land.
5 MUSICA