Morgunblaðið - 19.07.2009, Qupperneq 1
1 9. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
194. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
SVIPMYND»4 FASTEIGNAMARKAÐUR»6 TÍÐARANDI»9
Allt stefnir í að a.m.k. þrír nýir
bændamarkaðir verði starf-
ræktir í höfuðborginni með
haustinu. Á Suðurlandi eru sjö
bændamarkaðir miðað við
tvo í fyrra og hafa viðtök-
urnar verið slíkar að
bændur anna varla eft-
irspurninni. Neyt-
endur velja í auknum
mæli íslenskt og æ
fleiri vilja kaupa
afurðir beint frá
býli.
Bændamörk-
uðum fjölgarFasteignamarkaður á Íslandi hefur átt
undir högg að sækja en gagnstætt því
sem margir gætu haldið eru Íslendingar
ekki einir í slíkri stöðu. Afleiðingin af
verðhruni á eftir mikilli fasteignabólu er
sú að margir fasteignaeigendur eru
tæknilega gjaldþrota.
Fasteignaeigendur í Danmörku, sér-
staklega í höfuðborginni Kaupmanna-
höfn, eru einnig í mjög erfiðri stöðu þar
sem tugþúsundir þarlendra eru í svip-
aðri stöðu og íslenskir fasteignaeig-
endur.
Markaðurinn býður upp á tækifæri,
ef aðeins aðgangur að fjármagni væri
auðveldari.
Minnir á Ísland
Hún er orðlögð fyr-
ir alþýðlegt viðmót
og þykir fær í sínu
starfi. Sonia Soto-
mayor hefur staðið
í ströngu í vikunni
en þingnefnd öld-
ungadeildarinnar
metur nú hvort
þessi dóttir inn-
flytjenda frá Pú-
ertó Ríkó sé hæf til
að gegna starfi hæstaréttardómara í
Bandaríkjunum.
Klár og alþýð-
legur dómari
Hæf? Sotomayor
situr fyrir svörum.
FJÁRFRAMLÖG til stuðnings flóttafólki frá
Írak hafa snarminnkað, þrátt fyrir að enn sé
fjöldi flóttamanna í nágrannalöndunum Sýr-
landi og Jórdaníu. Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna sendi út beiðni til ríkja heims
um 400 milljóna dollara framlag fyrir árið 2009
svo aðstoða mætti fólkið. Þrátt fyrir að komið
sé fram í júlí vantar enn meira en helming fjár-
ins.
Talsmaður Flóttamannastofnunarinnar í
Sýrlandi, Sybella Wilkes, bendir á að alþjóða-
samfélagið þurfi að gangast við því að ólíklegt
sé að flóttamannavandinn í Sýrlandi leysist
fljótlega. Mikilvægt sé að tryggja að fólk snúi
ekki aftur til Íraks af illri nauðsyn.
Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Íraka á
flótta, meðal annars flóttakonuna Umm Ah-
med. „Fyrsta árið vorum við vongóð – enda
augljóst að við gætum ekki búið lengur í Írak
sem fjölskylda og að í Sýrlandi væri enga
framtíð að hafa. Svo síaðist það hægt og bít-
andi inn að umheiminum er að mörgu leyti
sama um þetta,“ segir hún. | 22
Heiminum
virðist sama
Minni fjárstuðningur við
íraska flóttamenn
Reuters
Írak Þrýstingur er á flóttafólk að snúa heim.
LEIKARAHJÓNIN Brynhildur
Guðjónsdóttir og Atli Rafn Sigurðs-
son eiga mikið í vændum. Í sept-
ember verður leikritið Frida, viva
la vida, sýnt á stóra sviðinu í Þjóð-
leikhúsinu en Brynhildur, sem
skrifar handritið, mun leika mexí-
kósku listakonuna Fridu Kahlo og
Atli Rafn leikstýra. Undirbúnings-
ferlið hefur verið langt og tókust
Brynhildur og Atli Rafn á hendur
ferðalag til Mexíkó til að kynna sér
ævi Fridu Kahlo en ekki síður til að
öðlast dýpri skilning á því umhverfi
sem Frida mótaðist af.
Ótrúlegt lífshlaup
Ævi Fridu Kahlo var ekki sér-
lega löng, en þeim mun ótrúlegri.
Frida Kahlo lenti ung í skelfilegu
slysi og var ekki hugað líf. Hún
þjáðist stöðugt af verkjum en listin
veitti henni vissa lausn. Hún giftist
eldri manni, þekktum mexíkóskum
málara, Diego Rivera, og áttu þau í
stormasömu sambandi enda bæði
blóðheitar og óvenjulegar mann-
eskjur.
Frida Kahlo laðaði að sér ótrú-
lega litríkt fólk og í ævi hennar
koma við sögu margir frægir og
ólíkir einstaklingar eins og Joseph-
ine Baker, Pablo Picasso og Leon
Trotskí, eins og Brynhildur og Atli
Rafn leiða okkur fyrir sjónir. | 10
Morgunblaðið/Heiddi
Tilbúin Brynhildur og Atli Rafn hafa lagt mikla vinnu í undirbúning leikritsins um Fridu Kahlo sem verð-
ur tekið til sýningar í september í Þjóðleikhúsinu en leikritið verður sýnt á stóra sviðinu.
Heilluð
af heimi
Fridu
BLUNDAR í þér rithöfundur eða tónlistarmaður enda þótt útgef-
endur séu ekki tilbúnir að veðja á þig? Leggðu þá ekki árar í bát
heldur gakktu sjálf(ur) í málið.
Blurb heitir bandarískt fyrirtæki sem gefur út bækur fólks
með tiltölulega litlum tilkostnaði. Allt sem þarf er að skila hand-
riti tilbúnu til prentunar og ábyrgjast að a.m.k. eitt eintak af
bókinni seljist. Óski fólk þess eru bækurnar kynntar á
heimasíðu Blurb, þar sem almenningur getur pantað þær,
látið prenta og fengið sendar heim.
Vilji menn koma tónlist sinni á framfæri er bandaríska
vefútgáfan TuneCore tilvalinn vettvangur. Þar gefst tón-
listarmönnum tækifæri til að senda inn lag eða lög sem
TuneCore hefur gegn vægu verði milligöngu um að selja á
netinu.
Ódýr útgáfa með óhefð-
bundnum hætti
BÆÐI RAUNGÓÐ
OG RITFÆR
TENGSL:
BRAGI OG JÓHANNA
KVIKMYNDIR
Skilaboð
í duldum
boðskap
MANSTU EFTIR
CLAIROL
?
VARAMENN
Ávallt viðbúnir
að skipta
sköpum
SUNNUDAGUR
ÚTGÁFA»18