Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða frábær tilboð í 14 nátta ferðir til Costa del Sol í sumar. Í boði er frábær sértilboð á El Griego, Roc Flamingo og Puente Real með allt innifalið. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum. Fyrstur kemur, fyrstur fær! Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í sumar á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum. 8. júní og 22. júní í 14 nætur Verð frá 119.940 allt innifalið Costa del Sol Verð kr. 119.940 Allt innifalið. Ótrúlegt verð. Netverð á mann, m.v. flug og gistingu fyrir tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Roc Flamingo *** eða El Griego *** Mar í 14 nætur. Annað hvort 8 – 22. júní eða 22. júní – 6. júlí. Verð kr. 138.340 Allt innifalið. Ótrúlegt verð. Netverð á mann, m.v. flug og gistingu fyrir tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Puente Real ***+ í 14 nætur. Annað hvort 8 – 22. júní eða 22. júní – 6. júlí. FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Straumhvörf urðu í borgarpólitík- inni um helgina þegar Besti flokk- urinn stóð uppi sem stærsti flokk- urinn eftir sveitarstjórnarkosn- ingarnar á laugardag. Vart þarf að taka fram eftir jafn sögulegar kosningar að þetta er í fyrsta skipti í stjórnmálasögunni sem yfirlýst grínframboð hlýtur því- líkt fylgi í fyrstu atrennu. Hafa úr- slitin vakið heimsathygli. Útkoman er mikið áfall fyrir vinstri flokkanna sem tapa allir miklu fylgi. Þannig hröpuðu Vinstri grænir úr 13,2% 2006 niður í 7,2%, Samfylking úr 26,8% í 19,1% og Framsókn úr 6,1% niður í 2,7% og fór þar með nærri því að þurrkast út. Nemur fylgistap flokkanna þriggja 17,1%. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði einn- ig miklu, fór úr 42% í 33,6%. Besti flokkurinn hefur gefið upp að hann kjósi fremur samstarf með Samfylkingu en Sjálfstæðisflokki en ljóst má vera að hann er í lykilað- stöðu um meirihlutamyndun. Hömpuðu Hönnu Birnu Flokkarnir fjórir lögðu mikla áherslu á oddvita sína í kosninga- baráttunni, einhverri þeirri dauf- ustu sem sögur fara af, og þótti bera lítið á öðrum frambjóðendum. Hjálmar Sveinsson, frambjóðandi Samfylkingar, tekur undir þetta, ef frá sé talin Samfylking. Hann telur einsýnt að sjálfstæðismenn hafi lagt upp með að leggja áherslu á mann- kosti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fremur en hið pólitíska vörumerki Sjálfstæðisflokkinn. Það fór einnig lítið fyrir eiginlegri málefnabaráttu og kosningaloforð- um og viðurkennir Hjálmar að erfitt hafi verið að eiga við Besta flokk- inn, bæði vegna hrunsins og þess að gagnrýni á frambjóðendur hans hafi verið stimpluð sem leiðindi. Blóðug bræðravíg Kaldhæðnislegt er að bræðravíg í Vinstri grænum og Framsókn skuli hafa dregið mátt úr framboði flokk- anna, í ljósi þess að Besti flokkurinn boðar ný vinnubrögð. Flokkarnir tveir lögðu með öðrum orðum grín- framboðinu vopn í hendur vegna innbyrðis valdabaráttu. Heimildir blaðsins herma að inn- an Framsóknar sé litið svo á að flokkurinn hafi tapað fylgi yfir til sjálfstæðismanna. Það er hins vegar ekki úr háum söðli að falla: Framsókn fékk 6,1% atkvæða í kosningunum 2006 þegar Björn Ingi Hrafnsson marði sætið. Verður því að teljast ólíklegt að sjálfstæðismenn hafi grætt mikið á þessu fylgistapi. Einar Skúlason, oddviti Fram- sóknar í borginni, velti Óskari Bergssyni úr oddvitasætinu. Framsókn hefur síðan verið klof- in í borginni og Einar dregur ekki dul á að útreiðin á laugardag sé „persónulegur ósigur“. Með líku lagi gengu Vinstri grænir haltir til kosninga vegna sárinda í kjölfar harðvítugs próf- kjörs. Besti flokkurinn við stýrið  Vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík  Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn næst- stærsti flokkurinn  Framsókn nær þurrkaðist út  Vinstriflokkarnir missa 17,1% atkvæða frá 2006 Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Jón Gnarr og Hanna Birna Kristjánsdóttir fylgjast með fyrstu tölum í Ráðhúsinu á kosninganótt. Talin atkvæði voru: 59.523 Kjörsókn: 63.019 Ákjörskrá:85.808 Kjörsókn:73,4% Auðir seðlar: 3.238 Ógildir: 258 Framsóknarflokkur (1) Sjálfstæðisflokkur (7) Reykjavíkurframboð Frjálslyndir (1) Framboð umheiðarleika Samfylking (4) Vinstri græn (2) Besti flokkurinn 33,6% 34,7% 2,7% 19,1% 7,1% 1,1% 0,5% 1,1% Úrslit í Reykjavík (1) = Sæti 2006 „Ég vil óska Besta flokknum til hamingju með að vera að stíga inn á vettvang borgarstjórnmálanna. Ég hlakka bara til að vinna með þeim,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, við mbl.is þegar ljóst var í hvað stefndi á kosninganótt. Ekki náðist í Hönnu Birnu í gærkvöldi til að inna hana eftir frekari viðbrögðum við úrslit- unum. „Þetta er auðvitað gjörbreyting á landslaginu í borgarpólitíkinni. Þarna eru bara þrír flokkar. Áður hafa þeir verið fimm. Þannig að þetta er mikil breyt- ing á því umhverfi sem hefur verið,“ sagði Hanna Birna á mbl.is. Hún segir sjálfstæðismenn hljóta að vera sátta við niðurstöðuna úr kosningunum. „Við erum að mælast umtalsvert hærra en við höfum verið að mælast í könnunum á nýliðnum vikum,“ sagði Hanna Birna ennfremur. „Við höfum verið í mikilli sókn á undanförnum dögum. Við hljótum að vera sátt við það. Þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem í síðustu Alþingiskosningum var með 22% í Reykjavík.“ Hanna Birna neitaði í gær í Silfri Egils að hún væri á leið í for- mannsframboð í flokknum og sagðist vilja einbeita sér að borginni. Hún neitaði þó ekki að til hennar hafi verið leitað varðandi framboð. Gjörbreytt landslag í borginni „Við erum með 3.000 félagsmenn en fáum 1.600 at- kvæði. Þannig að það er ljóst að margir framsókn- armenn eru ekki að kjósa Framsóknarflokkinn,“ segir Einar Skúlason, oddviti flokksins í Reykjavík, um ástæð- ur þess að Framsókn beið ótvírætt afhroð í borginni. Framsókn fékk aðeins 2,7% atkvæða og náði Einar því ekki kjöri. Líkt og hjá VG skildi prófkjör flokkinn eftir í sárum en Einar fullyrðir að hluti bandamanna Óskars Bergssonar, fv. oddvita, sem vék eftir sigur Ein- ars í prófkjöri, hafi ekki tekið þátt í kosningabarátt- unni. „Ég er ekki að segja að þetta hafi ráðið öllu en þetta hafði áhrif,“ segir Einar sem telur flokkinn standa á krossgötum. Forystan verði að hugsa sinn gang og hvernig hún hagar málflutningi sínum. Einhver skýring sé á því að þau skilaboð að flokkurinn hafi gengið í endurnýjun umfram aðra flokka hafi ekki náð til eyrna kjósenda. Þá þurfi að gera grasrótinni kleift að koma í ríkara mæli að ákvarðanatöku og vali á fulltrúum flokksins. Einar kveðst óákveðinn um það hvað hann taki sér fyrir hendur. Í bili sé eina fullvissan sú að hann sé í atvinnuleit. Bandamenn Óskars neituðu að hjálpa til Ólafur F. Magnússon, oddviti H-listans, var hrærður þegar blaðamaður bað hann í gær um að líta yfir far- inn veg. Ólafur, sem var borgarstjóri Reykjavíkur í um 7 mánaða skeið á síðasta kjörtímabili, náði ekki kjöri, hlaut 0,5% atkvæða, samanborið við 6% og 10% fylgi framboða hans í sveitarstjórnarkosningunum 2002 og 2006. Ólafur er afar stoltur af framlagi sínu til stjórn- málanna. Hann hafi synt á móti straumnum, haft frum- kvæði að stofnun umhverfissamtaka innan Sjálfstæðis- flokksins og beitt sér fyrir lýðræðislegum vinnu- brögðum. Sú þrotlausa vinna hafi sett varanlegt mark á borgarmálin. Hann þakkar Mörtu Guðjónsdóttur, Sjálfstæðisflokki, og Hermanni Valssyni, Vinstri-grænum, sérstaklega fyrir drengskap og góð verk. Þá kveðst hann upp með sér fyrir að hafa lagt sitt lóð á vogarskál- arnar til að tryggja að hann „tæki Framsóknarflokkinn með sér í fall- inu“. Segist kveðja stjórnmálin með stolti Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Þjóðmálin og ríkisstjórnin hefur þó nokkuð um þetta að segja. Okkar kjósendur eru margir mjög reiðir út af einkavæðingu HS Orku og vegna þess að ríkisstjórnin skuli ekki verja almannahagsmuni betur,“ segir Þor- leifur Gunnlaugsson, fráfarandi borgarfulltrúi VG, um ástæður fylg- istapsins í Reykjavík. Þorleifur átelur flokksforystuna. „Okkar forysta samanstendur af millistéttarfólki, háskólafólki, sem hefur það ágætt og hefur misst tengslin við alþýðuna. Þá vill það verða að fólk fer í glerhús og hefur ekki þessi beinu tengsl við alþýðu manna sem berst í bökkum. Það held ég að sé okkar stærsta vandamál.“ Þorleifur skipaði 2. sæti listans og féll þar með út. VG fékk 7% atkvæða en hafði fengið 13,2% 2006. Lengi leit út fyrir að VG fengi engan mann en svo fór að oddvit- inn, Sóley Tómas- dóttir, náði kjöri. Prófkjörsbar- átta Sóleyjar og Þorleifs þótti hörð, átök sem hann telur hafa haft sitt að segja. Sárindi vegna prófkjörsins „Sjálfsagt er það hluti af vanda- málinu að það var ósátt um fram- kvæmd forvalsins. Sumir töldu að ákveðnir aðilar hefðu staðið að því á vafasaman hátt, að það hefði verið farið heim til fólks með kjörseðla og annað slíkt,“ segir Þorleifur sem bendir á þátt femínisma flokksins. „Margir kjósendur sögðu mér að vegna þess hvernig ákveðnir aðilar settu þessa týpu af femínisma fram, þá treystu þeir sér ekki til að kjósa flokkinn. Það er alveg ljóst.“ Spurður hvers vegna kjósendur VG refsi flokknum svo harkalega þrátt fyrir að stutt sé frá hruni og ríkisstjórnin aðeins árs gömul bend- ir hann á stemninguna í grasrótinni. „Kjósendur okkar eru á hávinstri- kantinum og þeir gera ákveðnar kröfur. Þeir upplifa að það sé verið að byggja upp gamla kerfið, að það sé verið að endurreisa fyrirtæki og láta gömlu auðmennina taka við þeim. Og að Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn ráði ansi miklu, meðal annars því að verið sé að setja orkuver og orkuauðlindir á markað. Þeir upp- lifa að það sé ekki verið að taka á málum með aðferðum félagshyggj- unnar.“ „Menntafólk í glerhýsi“ sem er í ekki í tengslum við fólkið  Varaborgarfulltrúi VG gagnrýnir flokksforystuna harðlega Þorleifur Gunnlaugsson Úrslit sveitarstjórnarkosninga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.