Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Svalasta mynd ársins er komin! HHHHH “Þeir sem missa af þessari fremja glæp gegn sjálfum sér.” – Fbl.-Þ.Þ HHHHH „Fáránlega skemmtileg, fullkomlega uppbyggð og hrikaleg rússíbanareið sem sparkar í staði sem aðrar myndir eiga erfitt með að teygja sig í“ - Empire – Chris Hewitt HHHHH – H.G. – Poppland Rás 2 SÝND Í ÁLFABAKKA allar upplýsingar á www.operubio.is NÚ ER HÆGT AÐ KAUPA ÓPERUPASSA, ódýrara miðaverð og númeruð sæti miðasala í Sambíóunum Kringlunni opnar kl. 17.00 NÆSTA TÍMABIL HEFST Í OKTÓBER... KYNNIÐ YKKUR MÁLIÐ Á WWW.OPERUBIO.IS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI MILEY CYRUS LIAM HEMSWORTH AND GREG KINNEAR HHH - Entertainment Weekly Byggð á sögu Nicholas Sparks sem færði okkur Notebook. Miley Cyrus er æðisleg í sinni nýjustu mynd SÝND UM HELGINA PRINCE OF PERSIA kl. 8 - 10:30 10 THE BACK-UP PLAN kl. 8 12 ROBIN HOOD kl. 10:10 12 PRINCE OF PERSIA kl. 8 - 10:30 10 THE LAST SONG kl. 8 L IRON MAN 2 kl. 10:30 12 PRINCE OF PERSIA kl. 8 - 10:30 10 COP OUT kl. 8 - 10:20 14 / KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI Unglingamyndir eru mis-jafnar að gæðum og ristaekki alltaf djúpt. Það á svosannarlega ekki við um Youth in Revolt, hugvitssamlega kvik- myndagerð samnefndrar skáldsögu C.D. Payne sem kom út 1993. Ef til vill ber þó ekki að flokka hana sem ung- lingamynd þó hún segi af ástum og ör- væntingu unglinga en það skiptir svo sem litlu. Í myndinni segir af bráðgreindum 16 ára dreng, Nick Twisp, sem kann að meta tónlist Franks Sinatra og kvikmyndir Federicos Fellini. Hann er hreinn sveinn, ósýnilegur fögrum meyjum og hefur komist að þeirri nið- urstöðu að góðu gaurarnir næli ekki í sætu stelpurnar, það gerist aðeins í bíómyndum. Jerry, kærasti móður hans, er óttalegt skítseyði og sóði (skemmtilega leikinn af Zach Galif- ianakis úr The Hangover) og óheið- arlegur með endemum. Hann selur þremur sjóliðum ónýtan bíl og þeir banka upp á í þeim tilgangi að taka hann í gegn þegar upp kemst um svik- in. Jerry leggur á flótta með Nick og móður hans, eða öllu heldur í stutt frí og gista þau í niðurníddu hjólhýsi sem kappinn á úti í sveit. Þar hittir Nick draumadísina, Sheeni, sem virðist hafa svipuð áhugamál og hann, kann að meta gáfulegar samræður og dreymir um að búa í Frakklandi. En gallinn er sá að Sheeni á kærasta, Trent, ljóshærðan sundkappa sem að auki er ljóðskáld og altalandi á frönsku; mikill meyja- og tengda- mæðradraumur. Engu að síður fella Nick og Sheeni hugi saman en sam- bandið er stutt þar sem Nick þarf að snúa aftur til síns heima. Sheeni hvet- ur hann til þess að gerast svo mikill óknyttastrákur að móðir hans neyðist til að senda hann til föður síns sem býr nálægt henni. Sprettur þá fram hliðarsjálf Nicks, töffarinn Francois Dillinger, harður nagli sem setur allt á annan endann, kveikir í bíl móður Nicks og að auki í veitingastað. Um svipað leyti dettur kærasti móður hans dauður niður og nýr tekur við samdægurs, lögreglumaðurinn Lance Wescott. Lance tekst að forða Nick frá handtöku fyrir skemmdarverkin en hvetur móður hans til að senda Nick til föður síns, þar til öldurnar lægi. Þegar þangað er komið kemst Nick að því að Sheeni er komin í frönskumælandi heimavistarskóla og að ofurkærastinn Trent er þar einnig við nám. Nick og hliðarsjálfið Franco- is setja sér þá það markmið að komast yfir Sheeni (losa Nick við sveindóm- inn þungbæra) og losna við Trent. En vandinn eykst til muna þegar móðir Nicks hættir með Lance sem sigar lögreglunni á stráksa í kjölfarið. Michael Cera fer með hlutverk Nicks og Francois og stendur sig vel. Cera er afskaplega viðkunnanlegur ungur leikari sem smellpassar í hlut- verkið með sitt barnslega andlit og rýra líkama, allt að því kvenlegur. Inn í myndina er fléttað skemmtilegum teikni- og leirkallamyndum og sagan tekur hressilegar og óvæntar beygj- ur, hún er aldrei fyrirsjáanleg eða langdregin. Samtölin eru á köflum mikið orðskrúð og jafnvel tilgerð- arleg, heldur ólíklegar samræður fólks undir tvítugsaldri. En þessi skrúðmælgi gefur myndinni ferskan blæ og fellur vel við hið sígilda þema um unga elskendur sem ekki er ætlað að vera saman. Ekki er síður sígild til- vistarkreppa unglingsins sem enginn virðist skilja eða hlusta á, unglingsins sem sættir sig ekki við ríkjandi ástand, leitar að ástinni og síðast en ekki síst hinu töfrum sveipaða kynlífi. Hliðarsjálfið Francois er bráð- skemmtileg hugmynd, klisjukennd útgáfa af töffara sem er e.k. blanda Bogarts og Jean-Paul Belmondo. Ef eitthvað skal að myndinni finna er það helst samband Nicks og Sheeni, það er á köflum fullástríðulítið, eins og það vanti neistann. Youth in Revolt er samt sem áður bráðvel heppnuð blanda unglinga- og fullorðinssögu og með vænum skammti af ilmandi fáránleika. Uppreisn ungmennis Smárabíó, Regnboginn Youth in Revolt bbbbn Leikstjóri: Miguel Arteta. Aðalhlutverk: Michael Cera, Portia Doubleday, Steve Buscemi, Justin Long og Ray Liotta. 90 mín. Bandaríkin, 2009. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Francois Hlið- arsjálf Nicks, Francois Dillinger, kemur honum í vandræði í Youth in Revolt. Síðastliðið föstudagskvöld var hald- ið kosningaball með Deild- arbungubræðrum í Iðnó. Þar stigu frambjóðendur í borginni á svið og létu ljós sitt skína í söngvakeppni. Má segja að hitað hafi verið upp fyrir laugardaginn, þeg- ar pólitíkusar og söngvarar létu rækilega til sín taka. Kátir Deildarbungubræður héldu uppi fjörinu. Frambjóðendur láta í sér heyra Sigurvegarar Hjálmar Sverrisson og Bjarni Karlsson, frambjóðendur Sam- fylkingarinnar, báru sigur úr býtum með laginu Hound Dog. Morgunblaðið/Eggert Hress Anna Margrét, Helgi Vífill og Júlíus Vífill skemmtu sér vel. Innlifun Þorleifur Gunnarsson á lista VG söng lagið You Look Won- derful Tonight. Klappað Frambjóðendurnir vöktu mikla lukku viðstaddra. Hlustað Kristján Andri Stefánsson og Guðrún Ögmundsdóttir hlýddu á. Forspár Kalli í Besta flokkn- um söng Pabbi þarf að vinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.