Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 ✝ Ásgerður Krist-jánsdóttir fædd- ist að Fremri- Hjarðardal í Dýra- firði þann 9. júlí 1918. Hún lést á dvalarheimilinu Skógarbæ 24. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Jón Benónýsson, bóndi, f. 25. ágúst 1885, d. 2. október 1969, og Kristín Þórðardóttir, f. 30. mars 1881, d. 18. desember 1941. Eftirlifandi systir Ásgerðar er Jónasína Þrúð- ur, f. 1914. Bræður þeirra voru Þórður, f. 1917, d. 2004, og Ben- óný, f. 1920, d. 1992. Ásgerður giftist Sigmundi Þórðarsyni, f. 14. júní 1920, d. 4. apríl 1973. Synir þeirra eru: 1) Kristinn, f. 1. mars 1951, söngvari, kvæntur Ásgerði Þórisdóttur hjúkr- unarfræðingi. Synir þeirra eru a) Gunn- ar, f. 14. nóvember 1979, sonur Gunn- ars er Mikael Bjarni, f. 21. sept- ember 2000. b) Jó- hann, f. 6. maí 1988. 2) Þórður, f. 26. júní 1956, geð- læknir. Hann kvæntist Guðnýju Dóru Gestsdóttur ferðamála- fræðingi. Þau skildu. Dætur þeirra eru a) Ásgerður, f. 19. mars 1988, og b) Helga, f. 20. mars 1992. Útför Ásgerðar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 31. maí 2010, og hefst athöfnin kl. 11. Mín elskulega tengdamóðir er nú búin að kveðja í hinsta sinn. Sú kveðjustund hefur spannað langan tíma eða allt frá því að heilabilunarsjúkdómurinn fór að gera vart við sig fyrir nokkrum árum. Fyrir rúmum tveimur árum flutti hún í hjúkrunarheimilið Skógarbæ en þar hefur hún hlotið frábært atlæti og umönnun. Hún var þar hvers manns hugljúfi. Hennar er sárt saknað þaðan. Um síðustu jól varð hún fyrir því óhappi að detta og lærbrotna og þurfti þess vegna að fara í að- gerð. Batinn var hægur og hún varð æ þreyttari við allar hreyf- ingar og vildi helst vera við rúm- ið. Það var mikið frá henni tekið að geta ekki hreyft sig og tekið sín léttu dansspor hafandi alltaf verið svo lipur og liðug að með eindæmum var. Að kvöldi annars í hvítasunnu þegar verið var að hjálpa henni að rísa á fætur fékk hún skyndilega slæman verk fyrir brjóstið og inn- an stundar var hún skilin við þetta líf. Ég var einstaklega lánsöm að eignast Ásu sem tengdamóður. Á milli okkar var sérstakt trúnaðar- samband og hún hefur alltaf tekið mér eins og ég væri dóttir henn- ar. Ása hafði alveg sérstakan frá- sagnarhæfileika og það var gam- an að hlusta á hana segja sögur úr sínum heimahögum í Hjarð- ardal í Dýrafirði. Þaðan komu sögur af álfum, sleðaferðum í skólann og gönguferðum öslandi snjóinn, óveðurssögur svo það brakaði og brast í bænum og ekki má gleyma sögunum af bláberj- unum og hvítu krækiberjunum. Þegar hún var ung fór hún að heiman til þess að vinna á Ísa- fjarðarspítala. Það vafðist ekki fyrir henni ungri stúlkunni að að- stoða þar við ýmsar aðgerðir þeg- ar skortur var á hjúkrunarnem- um. Hana langaði til að læra hjúkrun. Örlögin höguðu því þannig að hún lærði hjúkrun af eigin raun því hún þurfti að fara aftur heim í Hjarðardal til að hjúkra móður sinni dauðveikri í banalegu hennar. Ása var mikil barnakona og hafði alveg sérstaka natni, kímni og umhyggjusemi í samskiptum við börn. Það fengu synir mínir að upplifa ríkulega enda var hún allt- af boðin og búin að annast þá, leika við þá og syngja. Ég vil þakka henni allt sem hún hefur gefið mér, gott fordæmi, samveruna, samfylgdina og ynd- islegan eiginmann. Að lokum vil ég þakka starfs- fólki Skógarbæjar á þessari litlu prinsessudeild á þriðju hæðinni frábæra umönnun þar sem allt er reynt að gera til þess að ein- staklingarnir haldi virðingu sinni, reisn og gleði. Með saknaðarkveðju, Ásgerður Þórisdóttir. Elsku amma mín, Þegar ég hugsa til baka þá fyll- ist hjarta mitt þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Þakklæti fyrir að hafa átt þessa elskulegu, skiln- ingsríku og þautseigju manneskju í mínu lífi sem mína ástkæru ömmu. Ávallt geislaði úr augum þínum kærleikur og gleði, sama hvað bar upp á. Ástin sem skein af þér í hvert sinn sem ég sá þig var jafn falleg og dagurinn sem þú valdir til þess að yfirgefa þennan heim. Þegar mér var eitthvað þungt fyrir brjósti og þurfti að létta á hjarta mínu og sál þá var alltaf gott að leita til þín. Þegar ég var búinn að deila með þér mínum vandamálum sama hvers efnis þau voru þá sýndir þú mér fullan skilning, bentir mér á það já- kvæða og léttir af mér allan þungann. Eftir það gekk ég frá þér léttur og áhyggjulaus í burtu. Fyrir rétt svo rúmum 37 árum áttu sér stað eflaust stærstu þáttaskil í þínu lífi er þú misstir eiginmann þinn hann Sigmund Þórðarson afa minn sem mér gafst því miður aldrei tækifæri til að kynnast þar sem ég var ekki fæddur fyrir andlát hans. Að missa maka og föður tveggja sona sinna er eflaust versti harmleikur sem nokkur tveggja barna móðir getur hugsað sér en í stað þess að dvelja í depurð þá kaust þú að lifa lífinu á jákvæðan hátt alveg þar til þú varst vel komin á 93. aldursárið. Þú kaust að fylgjast með sonum þínum og styrkja þá í því sem þeir voru að gera með því fallega og gefandi hugarfari sem einkenndi þig. Þú kaust að fá að upplifa fjögur barnabörn og eitt barnabarnabarn. Þú kaust að vera til staðar fyrir mig og gefa mér þá reynslu að hafa fengið að kynnast þínu elskulega viðhorfi á lífið og það í rúm 30 ár sem ég er þakklátur fyrir hverja mínútu af. Ég hef verið búsettur erlendis þar til síðastliðið haust og þegar ég fluttist út þá varst þú þegar farin að veikjast og svo með tím- anum þá frétti ég reglulega um ástand veikinda þinna og ég bað þess margoft að þú myndir þrauka þar til ég væri fluttur aft- ur til landsins og hversu þakk- látur ég er að þú náðir því. Elsku amma mín, nú ert þú kominn á þann stað sem hefur beðið þín í rúm 37 ár og þú ert búin að skila þínu og margfalt það hér á jörð og það huggar mig að vita til þess að þín hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu hinum megin handan lífsins. Elsku amma mín, þakka þér fyrir allt það góða, elskulega, skilningsríka og þann kærleika sem þú hefur fært mér og sáð í mína sál. Elsku amma mín, ég elska þig og þú munt alltaf lifa í sál minni og hjarta. Gunnar Kristinsson. Ásgerður Kristjánsdóttir Elsku besta amma mín, þú varst mér mjög góð amma. Ég trúi varla ennþá að þú sért farinn frá okkur. Þú varst alltaf að gefa mér perlur, hálsfestar og svoleiðis. Ég man þeg- ar við vorum að borða saman sam- lokur, drekka gos og spila saman, það voru góðir tímar. Þú varst mjög, mjög stór hluti af mér, jafnstór og jörðin. Við tvær og Ólöf vorum alltaf að horfa saman á Nágranna og það var gaman. Ég þakka Guði fyrir að taka á móti ömmu svona blíðlega og vera góður við hana. Ég vil sérstaklega segja við þig, amma mín, að ég sakna þín rosalega mikið og vonandi líður þér vel þarna uppi og ég elska þig mjög mjög heitt. Ég gæti farið að gráta, ég sakna þín svo mjög, mjög mikið amma mín. Mér finnst eins og þú sért við hliðina á mér núna. Þegar við og Ólöf vorum saman í bílnum varst þú alltaf að hlusta á Michael Jackson lög og sérstaklega „I will be there“. Þú hjálpaðir mér oft við lærdóm- inn. Þú varst svo góð í íslensku og varst alltaf að hjálpa mér. Sakna þín sárt og mikið. Alltaf saknað, aldrei gleymd, hvíl í friði, elsku amma mín. Birta Íva Birkisdóttir. Elsku amma mín, vonandi líður þér vel núna. Þú varst yndisleg manneskja og alltaf með húmorinn til staðar. Mér finnst sárt að það hafi verið lagt svona mikið á þig, sein- ustu andartök þín var erfitt að horfa uppá, en þú sagðir við mig daginn áður en þú kvaddir að þú vildir helst fara, því þetta væri orðið svo þján- ingarfullt. Það hefur svo sannarlega sýnt okkur að þú varst rosalega sterk og þrjósk, ég dái þig fyrir það. Mér finnst heiður að hafa verið skírð í höfuðið á þér. Minningar okkar munu lifa alltaf í hjarta mínu. Mér dettur eitt skemmtilegt í hug. Það var þegar ég fékk alltaf að vera hjá þér í gömlu búðinni þinni og fá að máta ballerínu- og brúðarmeyja- kjólana og þóttist vera gína fyrir þig, þú varst alltaf svo montin með mig og það gerði mig virkilega glaða. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Dóra Sveinsdóttir. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ókunnur.) Dóra kvaddi þegar sumarið og birtan eru að færast yfir landið okk- ar, eftir löng og erfið veikindi. Ég kynntist Dóru og Jóni fyrir um 19 árum þegar Elín dóttir mín og Sveinn sonur þeirra fóru að draga sig saman. Það hafa verið góð ár og vinátta þar til staðar. Dóra var skemmtileg kona og hafði glaðværa lund. Guð blessi minningu þína, elsku Dóra mín og hafðu góða heimkomu. Kæri Nonni og fjölskylda, mínar dýpstu samúðarkveðjur. Rannveig Leifsdóttir. Elsku duglega og góða Dóra okk- ar er farin eftir erfiða baráttu við krabbamein. Með þessu fallega ljóði eftir Bubba Morthens viljum við kveðja þig og þakka þér allar góðu og skemmtilegu stundirnar, elsku vinkona. Þar sem englarnir syngja sefur þú. Sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú. Að ljósið bjarta skæra. veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljótt. svo vöknum við með sól að morgni. Við vottum fjölskyldunni þinni okkar innilegustu samúð. F.h. saumaklúbbsins, Margrét S. Guðmundsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN ELÍSA ÓLAFSDÓTTIR fyrrv. varaformaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 23. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 1. júní kl. 14.00. Ómar Már Magnússon, Jóhannes Rúnar Magnússon, Andrea Guðmundsdóttir, Ólafur Sævar Magnússon, Sólbjörg Hilmarsdóttir, Viðar Magnússon, Emelía Bára Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Móðir mín og tengdamóðir, amma okkar og lang- amma, JÓHANNA SÆMUNDSDÓTTIR fyrrv. handavinnukennari og húsmóðir á Ísafirði, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum mánudaginn 17. maí, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 1. júní kl. 15.00. Sighvatur og Björk, Elín og Sigþór, Björgvin og Dóra Valdís, Rúnar og Alma, Bryndís og Nicolas og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR HALLDÓRSSON, sem lést á heimili sínu á hvítasunnudag 23. maí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 3. júní kl. 15.00. Erla Durr, Helgi Þórhallsson, Ingibjörg Pálsdóttir, Rósa Þórhallsdóttir, Ólafur Torfason, Halldór Þórhallsson, Stefanía Þóra Flosadóttir, Guðmundur Þ. Þórhallsson, Guðrún Hannesdóttir, Magnús H. Guðjónsson, Ása V. Einarsdóttir, Páll R. Guðjónsson, Sigurlaug Á. Sigvaldadóttir, Kristinn Guðjónsson, Marianne E. Klinke, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR, Langholtsvegi 174, Reykjavík, sem andaðist á Landspítalanum mánudaginn 24. maí, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 1. júní kl. 13.00. Guðbjörg Erlingsdóttir, Bergur H. Birgisson, Þóra Erlingsdóttir, Einar Leó Erlingsson, Sigríður Ásdís Erlingsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR ÁLFAR JÓNSSON, Grænumörk 2, Selfossi, andaðist á Ljósheimum laugardaginn 22. maí. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 1. júní kl. 13.30. Unnur Einarsdóttir, Einar Gunnarsson, Kristín Álfheiður Fjeldsted, Jón S. Gunnarsson, Elínborg Högnadóttir, Gunnar Páll Gunnarsson, Steinunn H. Sigurðardóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Ari Björn Thorarensen og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.