Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 11
tegund og heimilismyndavélin, sem þau notuð saman við framkvæmd ljósmyndamaraþonsins, nema hvað sú vél er stærri og betri að gæðum. Sá allt í einu tvo svani Viðfangsefnin sem þátttakend- urnir áttu að mynda voru „Bærinn minn“, „Hafið“ og „Lestur er lífs- stíll“. Að sögn Péturs Darra var mikil pæling og tími á bak við myndina af bænum hans, en fjölskyldan hefur að- eins búið einn vetur í Reykjanesbæ og því enn að kynnast honum. „Ég sló inn Reykjanesbæ á leit- arvél og þá kom bæjarmerkið upp. Ég var búinn að ákveða að hafa mynd af svani að blaka vængjunum, eins og er í bæjarmerkinu, en eftir að hafa verið búinn að bíða lengi og taka nokkrar myndir var ég ekki ánægður með neina þeirra. Svo allt í einu sá ég þessa tvo svani og smellti af.“ Sann- kallað rétt augnablik eins og sést á mynd Péturs Darra, jafnvel þótt svanur sé ekki fugl bæjarmerkisins heldur Súla. Svanirnir sem svamla á Fitjatjörnum og þiggja brauð af bæj- arbúum eru mikil bæjarprýði og gleðigjafar. Vala Rún var einstaklega heppin á göngu sinni um bæinn þegar kom að því að mynda viðfangsefnið „Lest- ur er lífsstíll“. „Ég sá bara þennan mann niðri í bæ að lesa í bók og spurði hann hvort ég mætti taka af honum mynd. Hann sagði já, svo ég smellti af,“ sagði Vala Rún en mynd- in vakti mikla at- hygli hjá aðstand- endum maraþons- ins. „Önnur viðfangsefni var ég nokkuð fljót að ákveða hvernig ég vildi hafa,“ sagði Vala Rún og benti blaðamanni á að sér fyndist nafn Reykjanesbæjar á grjóthleðslu við innkomuna í bæinn mjög einkennandi fyrir bæinn og það fannst greinilega fleiri ungum ljósmyndurum í þessu maraþoni. Það má sjá á sýningunni sem sett var upp í Kjarna í kjölfar verðlaunaafhendingarinnar í apríl. Túlkun Völu Rúnar á hafinu er ekki síður skemmtileg en þar fangaði hún smábát við smábátahöfnina í Gróf, lagði áherslu á að ná sem mestu af spegluninni í hafinu og sneri mynd- inni svo á hvolf. Í túlkun sinni tók Pétur Darri mynd af ryðguðu akkeri sem stendur neðan við Ægisgötu með hafið í baksýn og „Lestur er lífstíll“ kemur nokkuð á óvart. „Við vorum að keyra í áttina að Grindavík og allt í einu datt mér í hug að setja bókina í hraunið og taka mynd,“ sagði Pétur Darri um þá mynd. Leika á píanó og mála Eins og myndirnar bera með sér lék veðrið við þátttakendur ljós- myndamaraþonsins og útfærslurnar voru eftir því. Það vakti líka athygli blaðamanns að systkinin fóru saman út með eina myndavél að mynda, svo það lá beinast við að spyrja hvort aldrei hefði komið til ágreinings þeg- ar flott útfærsla varð á vegi þeirra. „Nei, því að við vorum með ólíkar hugmyndir um hvernig við vildum hafa myndirnar okkar,“ sögðu systk- inin með næmu augun. Pétur Pétursson, faðir barnanna, var staddur í húsinu þegar viðtalið fór fram og upplýsti blaða- mann um að þau systkinin væru mjög listræn. Hann sagði Pétur Darra spila á píanó þótt hann hefði aldrei lært og upp um alla veggi hanga mál- verk eftir Völu Rún og reyndar einn- ig stóru systur þeirra beggja, Heklu, sem um þessar mundir er í listnámi. „Þau hafa þetta úr móðurættinni. Það er mikið af listrænu fólki þar,“ sagði Pétur við blaðamann. Bærinn minn Pétur Darri sá allt í einu þessa tvo svani og smellti af. Daglegt líf 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010  Ræst var út í ljósmynda- maraþonið laugardaginn 13. mars en þá var Safnahelgi á Suðurnesjum og mikið um að vera í Reykjanesbæ. Þátttak- endur þurftu að vera búnir að senda eina mynd af hverju við- fangsefni fyrir miðnætti þann dag.  Í dómnefnd sátu Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar, og atvinnuljósmyndararnir Odd- geir Karlsson og Sólveig Þórð- ardóttir.  142 börn skráðu sig til þátt- töku og 339 myndir bárust í maraþonið frá 113 þátttak- endum. Verðlaunaafhending fór fram á Barnahátíð 22. apríl og þá var jafnframt opn- uð sýning á mynd- unum í Kjarna.  Sýningin verður síðar í þessum mánuði flutt í Bíósal Du- ushúsa og verður lið- ur í Listahá- tíð í Reykja- vík en Lista- safn Reykja- nesbæjar tekur þátt í Listahátíð í ár. 339 myndir bárust LJÓSMYNDAMARAÞON Listræn systkini með næm augu Barnabókin um Greppikló er komin aftur, bókin kom fyrst út 2003 og er nú endurútgefin í vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns. Sagan er eftir Julia Donaldsson og Axel Scheffler myndskreytti. Hún hefur notið mikilla vinsælda um allan heim undanfarin ár. „Greppikló? Hvað er greppikló? Hva, greppikló? Það veistu þó!“ Þetta segir litla músin við refinn, ugl- una og slönguna sem hún mætir á göngu sinni um skóginn. Þau verða hrædd og þjóta burt þótt músin viti vel að það er ekki til nein greppikló. Og þó … Endilega... ...kynnist Greppikló Yfirdráttarlán eru með dýrustu lánum sem bjóðast og hár, viðvar- andi yfirdráttur getur verið vís- bending um að pottur sé brotinn í fjármálum einstaklinga og heimila. Yfirdráttarlán bera afar háa vexti. Þau eru yfirleitt neyslulán og eru merki um fyrirframeyðslu launa. Það er erfitt að finna betri sparnað en að greiða niður yfirdráttarlán. Þess vegna ætti að vera keppikefli allra að greiða upp yfirdráttarlán sín sem fyrst. Seðlabankinn hefur nú í fyrsta sinn frá því fyrir bankahrun birt bráðabirgðagögn um íslenskt bankakerfi. Þegar rýnt er í töl- urnar kemur fram að yfirdrátt- arlán til heimila í lok september 2008 námu rúmum 78 milljörðum króna. Þremur mánuðum síðar, í desemberlok 2008, höfðu þau lækk- að um 40% og námu tæpum 47 millj- örðum. Af því mætti draga þá ályktun að meðalyfirdráttur hvers einasta heimilis hefði lækkað úr tæpum 590.000 kr. í rúmar 350.000 kr. Miðað við algenga vexti ætti meðalheimilið nú að greiða um 50.000 kr. á ári í vexti af yfirdrátt- arlánum í stað rúmra 80.000 kr. miðað við stöðuna eins og hún var fyrir hrun. Eða hvað? Er önnur skýring á þessari lækkun yfirdráttar heim- ilanna? Getur verið að hagur heim- ilanna hafi vænkast svo á þessum þremur mánuðum sem liðu eftir hrun að þau gátu greitt niður 40% af yfirdráttarlánum sínum? Voru yfirdráttarlán afskrifuð í bönk- unum? Fyrirspurn frá Stofnun um fjár- málalæsi til Seðlabanka Íslands leiddi í ljós að bankinn færir yf- irdráttarlán ekki sem stöðu gagn- vart viðskiptavinum, heldur eins og þau eru bókfærð í bönkunum. Gögn Seðlabankans sýna þannig ekki hvort yfirdráttarlán heimilanna hafi hækkað eða lækkað. Þau sýna bara að bókfærður yfirdráttur heimilanna í gömlu bönkunum var lækkaður um 40%. Með nokkurri einföldun og með fyrirvara um að tölur Seðlabankans séu einungis til bráðabirgða, má leiða að því líkur að nýju bankarnir hafi keypt yf- irdrátt heimilanna með 40% af- slætti. Það er vel að yfirdráttur heim- ilanna sé að lækka í bókum bank- anna. Vonandi fá heimilin notið þess og að hann lækki líka í bók- haldi heimilanna. Breki Karlsson er for- stöðumaður Stofnunar um fjár- málalæsi og vinnur að eflingu fjármálalæsis Íslendinga. Fjármálalæsi Hvað varð um yfirdráttinn? Morgunblaðið/Kristinn Neyslulán Yfirdráttarlán eru með dýrustu lánum sem bjóðast. Námsmannaíbúðir í fjölskylduvænu samfélagi á Ásbrú í Reykjanesbæ: Hagstæðasta leiguverðið Á Ásbrú eru stórglæsilegar námsmannaíbúðir sem ætlaðar eru einstaklingum, pörum og fjölskyldufólki sem stundar nám, hvort sem það er í stað-/fjarnámi hjá Keili eða í námi annars staðar á landinu. Á Ásbrú er leikskóli, grunnskóli, verslun, fullbúin íþróttamiðstöð og kaffi- og veitingahús. Innifalið í leigu er internettenging og ferðir með Reykjanes Express milli Ásbrúar og höfuðborgarsvæðisins. Á S B R Ú - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T *Verð miðast við verðskrá í maí 2010, birt með fyrirvara um prentvillur. Við leigu bætist hússjóður, hiti og rafmagn. 3ja herbergja íbúð Tekið á móti umsóknum og nánari upplýsingar á www.keilir.net Dæmi um íbúð Tvö rúmgóð svefnherbergi, stór stofa og borðstofa. Eldhús með eldavél, ofni og ísskáp. Baðherbergi með baðkari. Geymslur, hjólageymsla og setustofa í sameign. Stærð: 101-135 m2 Verð: frá 60.138,-*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.