Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Nú kveðjum við ljúfan dreng sem fall- inn er frá í blóma lífs- ins. Sigþór var ljúfur drengur sem öllum þótti vænt um og litu upp til. Alltaf boðinn og búinn að hjálpa öllum. Hann fór út í hinn stóra heim og ferðaðist um allt, alltaf reyndum við að fylgjast með í hvaða landi hann væri að vinna, við vorum svo stolt af honum, alltaf sami ljúfi góði dreng- urinn þegar hann kom í heimsókn á heimaslóðir. Hann kom í heimsókn til okkar vestur á Ísafjörð fyrir ári og hann var ákveðinn að koma aftur með konunni sinni sem hann elskaði svo heitt og sýna henni Vestfirði. Hann sendi henni í sífellu símamyndir af fallegu landslagi og sagði konan mín verður að sjá þetta. Hann átti eftir að skoða svo margt með ást- inni sinni. Þeir Ástþór, frændi hans, fóru að skoða næturlífið, komu svo heim eftir rölt um bæinn í næturkyrrð- inni og fóru að spila á gítarana það var gaman hjá þeim. Sigþór var Birtu Dögg eins og besti bróðir þennan stutta tíma, henni fannst svo gaman að spila við hann yatzy og hlakkaði svo til að hitta hann aftur á Stapa og fara með honum á fjórhjólið, það var svo gaman hjá þeim í fyrra. Guð passar núna Sigþór eins og mömmu. Þau sitja saman með ömmu og afa á Sel- hól og spila og syngja saman. Að geta verið með honum og foreldrum hans aftur um áramótin var ynd- islegt. Ljúfar minningar lifa í hjört- um okkar. Við munum ávallt sakna hans en okkur er það huggun í harmi að nú er hann laus við þraut- ir og líður vel. Elsku Karina, Guðbjörg, Ægir, Agnes, Linda Ýr og Þórður. Guð veri með ykkur og styrki ykkur í sorg ykkar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við kveðjum þig, elsku Sigþór, með miklum söknuði Guðbjartur, Sigríður, Ástþór og Birta Dögg. Elsku Sigþór, þér hefur verið ætlað stærra verkefni annars stað- ar en hér hjá okkur því það hefur vantað einhvern yndislegan og ljúf- an dreng. Það eru margar minningarnar sem leita á hugann en sú fyrsta er frá því á leikskóla þegar við ákváðum að verða kærustupar bara fimm ára kvikindi, og nánast alla okkar skólagöngu vorum við kær- ustupar, ég efast um að pabbi þinn muni hvað ég heiti, hann kallaði mig alltaf tengdadótturina. Minningarnar eru margar, við gerðum mörg prakkarastrikin, m.a. fórum við rúnt á dráttavélinni á Selhól og náðum að velta henni, ótrúlegt að sleppa ómeidd. Ég minnist þess nú ekkert sérstaklega að það hafi komist upp um okkur en Sigþór Ægisson ✝ Sigþór Ægissonfæddist í Hafn- arfirði 27. október 1975. Hann lést hinn 6. maí 2010 á sjúkra- húsi í Tókýó. Útför Sigþórs fór fram frá Ingjalds- hólskirkju 16. maí 2010. þið vitið það þá núna hverjir veltu dráttar- vélinni. Einu sinni lágum við niðri í fjöru og ræddum framtíðar- plönin. Ég ætlaði að verða búðarkona og eignast sex börn og þú svona slengdir því fram að það væri nú gaman að verða fræg- ur fyrir eitthvað og þú varst nú ekki svo viss með barnafjöld- ann sem þú ætlaðir að eignast og viti menn, í dag á ég sjoppu og fimm börn og þú sóttir frægð og frama erlendis. Elsku vinur, það er komið að kveðjustund. Takk fyrir samfylgd- ina og það var mér sannur heiður að hafa fengið að kynnast þér. Minning þín mun varðveitast í hjörtum okkar sem þekktum þig. Hvíldu í friði, kæri vinur. Elsku Carina, Ægir, Guðbjörg, Agnes og aðrir aðstandendur ég votta ykkur mína dýpstu samúð og Guð gefi ykkur öllum styrk til að takast á við þá miklu sorg sem á ykkur hefur verið lögð. Hallfríður (Didda.) Elsku Sigþór minn, ég næ því ekki alveg að eiga aldrei eftir að njóta samvista þinna hérna megin. En ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum í gegnum ár- in. Ekki hvarflaði það að mér þegar ég samdi brúðkaupsræðuna ykkar Karinar að ég myndi vera að skrifa minningargrein þína að 17 mánuð- um liðnum. En svona getur lífið verið kalt og ósanngjarnt. Kynni okkar Sigþórs hófust á Hellissandi, ekki get ég sagt ná- kvæmlega hvenær, hann er búinn að vera stór hluti í mínu lífi síðan ég man eftir mér. En seinna uppgötv- uðum við að ég kom í þennan heim á sama tíma og hann var getinn. Margar minningar honum tengdar rifjast upp þessa dagana. Saman áttum við margar góðar stundir á Hellissandi og þótti okkur ekki leið- inlegt að kíkja á fólkið á Selhól, lék- um við okkur þar oft í hlöðunni. Og fullt af prakkarastrikum var gert sem ekki verður farið út í. Þegar við fórum á puttanum til Ólafsvíkur til að skoða stelpurnar. Ógleyman- legt er þegar Ægir, pabbi Sigþórs, kom með töfratæki eitt, sem kall- aðist „vidó“, inn á heimili þeirra. Margar minningar honum tengdar rifjast upp þessa dagana. Þegar þú svo fórst út í hin stóra heim pössuðum við okkur ávallt að vera í sambandi, ég alltaf á leiðinni að kíkja á þig. Og þegar þú bjóst í New York var ég búinn að fá frí á sjónum og ætlaði að kaupa flugmið- ann hinn 11. september 2001 og láta verða af heimsókn minni. Þá sagð- irðu mér seinna meir þegar þú hefðir vaknað við lætin þegar fyrri flugvélin skall á turninn og litið út um gluggann og séð þegar sú seinni skall á hann. Það varð til þess að ekkert varð úr heimsókn minni í það skiptið. Í apríl 2007 heimsótti ég þig til Tókýó, þá fyrst kynntist ég Karinu. Engum sem sá ykkur saman leynd- ist að þarna var virkilega ástfangið fólk á ferð, mér varð ljóst hvað þú varst hamingjusamur. Einnig sjá ég það sem þú varst búinn að gera öll þessi ár, virkilega góða hluti í kringum gott fólk. Þú gleymdir aldrei uppruna þín- um, hvaðan þú varst, sterkum fjöl- skylduböndum og öllu því góða fólki sem þú kynntist á þinni stuttu lífsleið og kíktir reglulega á okkur hérna uppi á klakanum. Þú hringdir í mig 19. desember 2007 og spurðir hvað ég yrði að gera hinn 20. desember að ári, vegna þess að þú hefðir beðið Kar- inar með lagi sem þú hefðir samið og hefði hún játast kallinum, svo nú ætti að halda brúðkaup að ári liðnu í heimabæ Karinar í Brasilíu. Þú baðst mig um að verða svara- maður þinn sem ég þáði með stolti. Brúðkaupið var það fallegasta sem ég hef farið í og held ég að ég hafi aldrei verið eins stressaður og þeg- ar ég gekk inn kirkjugólfið og hélt ræðu fyrir ykkur brúðhjónin með fjölmiðla ofan í mér. Við áttum margar ógleymanlegar stundir í Brasilíu og voru það ófá kvöldin sem við vorum úti í garði og spjöll- uðum um alla heima og geima og einnig spiluðuð þið feðgar á gítar við góðar undirtektir. Það er svo erfitt að trúa því að þú sért farinn, elsku besti vinur minn. Ég á eftir að sakna þín, það var ómetanlegt að fá að kynnast þér, alltaf jafn gott að talað við þig um hvað sem var og þú gafst mér góð ráð þegar þess þurfti. Einlægni þín og góð nærvera gleymist aldrei, engin orð fá lýst því hvað þú varst mér góður vinur. Megi Guð veita ykkur styrk, elsku Karina, Ægir, Guðbjörg, Agnes og fjölskyldur ykkar. Einar Ingi Reynisson. Elsku vinurinn minn, þá er þrautagöngu þinni lokið. Alltaf héldum við í vonina um að þú mynd- ir sigra að lokum en nei, þér var greinilega ætlað eitthvað annað og meira. Það er á svona stundum sem maður trúir máltækinu þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Ég gleymi því aldrei þegar við hittumst fyrst árið 1998, þá var ég að leita að fulltrúum í keppnina Herra Vest- urland. Ég hafði fengið ófá símtöl um að ég yrði að hafa samband við Sigþór Ægisson frá Hellissandi. Ég hringdi nokkrum sinnum í þig og þú varst svo sem ekkert að tapa þér yf- ir þessu en ákvaðst að hitta mig á Klifi þegar ég yrði með fyrstu æf- inguna. Það sló þögn á hópinn þeg- ar þú birtist, minn kæri, og svo sem ekkert skrítið þvílíkt myndarlegur og nærvera þín yndisleg. Þú leist yfir hópinn og sagðir já, ég ætla að vera með. Þessi hópur minn var frá- bær og myndaðist mikill vinskapur á milli okkar og eiga nú þessar elsk- ur um sárt að binda og votta ég þeim mína dýpstu samúð með þakklæti fyrir góðar stundir þarna um árið. Þú sigraðir í keppninni, elsku vinur, og þá byrjaði allt á fullu hjá þér. Andrea Brabin hafði samband við mig og vidil fá þig til sín sem módel. Þú spurðir mig hvort ég héldi að sjóari frá Hellis- sandi hefði eitthvað að gera í þetta, ég svaraði: ekki spurning, elskan, þú ert flottastur. Þú lést slag standa og ferðaðist um heiminn sem módel og áttir farsælan feril. Ég fylgdist með þér úr fjarlægð með stolti. Við hittumst fyrir ári, þá komst þú með elskuna þína, hana Karinu, til okkar. Einar Karl og Jói Ár- manns, vinir þínir úr keppninni, komu líka. Mikið óskaplega þótti mér vænt um þetta kvöld með ykk- ur. Síðasta heimsókn þín til okkar Sigga var í janúar, þá færðir þú mér blóm. Við settumst eins og allt- af og spjölluðum. Þú þakkaðir mér fyrir að hafa tekið þig í þessa keppni mína, því ef ekki þá hefðir þú aldrei hitt Karinu og gert allt það sem að þú hafðir upplifað. Það er á svona stundum sem maður spyr sig hver sé tilgangur- inn með þessu öllu, ungur maður tekinn frá okkur í blóma lífsins og þvílíkur drengur, yndislega vel gerður í alla staði. Ég og fjölskyldan mín kveðjum þig með harm í hjarta og biðjum al- mættið að vefja þig örmum sínum og alla þína ástvini. Ástarþakkir, elsku Sigþór og Karina, fyrir að taka hana Villimey mína að ykkur í nokkra daga í fyrra þegar hún var í Japan, þú fársjúkur og vildir allt fyrir okkur gera, við getum aldrei fullþakkað ykkur það. Takk fyrir að hafa fengið að kynnast þér, elsku vinur, og fyrir okkar góða og ynd- islega vinskap í gegnum árin, þín verður sárt saknað af mér og minni fjölskyldu. Elsku Karina, Ægir, Guðbjörg, Agnes, Linda, fjölskyldur og vinir. Megi allt það góða styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Hvíl í friði, elsku vinurinn minn, kveðja Silja, Sigurbjörn og fjölskylda. Sigþór frændi og vinur er geng- inn. Horfinn er drengur góður, margar eru minningarnar allt frá því hann var lítill drengur í faðmi mömmu og pabba síns þar til hann varð að glæsilegum ungum manni sem við öll vorum stolt af. Sigþór ólst upp á Hellissandi og átti hamingjuríka æsku. Hann var mörgum stundum hjá móðurömmu sinni og afa á Selhól en hann hafði mikla ánægju af sveitastörfunum og var mjög duglegur að hjálpa til við heyskapinn og ekki þótti honum leiðinlegt að fá að taka þátt í erl- inum í kringum sauðburðinn. Minnisstætt er mér þegar Sigþór var á áttunda ári og fór að fara með mér í veiðiferðir, hann var mjög áhugasamur og fljótur að tileinka sér hvernig fara ætti að, hvort sem það var að beita, kasta eða gera annað það sem góður veiðimaður temur sér. Síðar þegar Sigþór komst á unglingsárin vorum við saman til sjós og þá upplifðum við skemmtilega tíma. Sigþór var glað- lyndur, jákvæður og naut sín vel, syngjandi og spilandi á gítarinn sinn. Það sem einkenndi hann var hve stutt var ávallt í brosið og gleðina. Hann var afar vel liðinn af skipsfélögum sínum sem sóttust ávallt eftir félagskap við hann. 1998 urðu stór þáttaskil í lífi Sig- þórs en þá var hann valinn herra Vesturland og varð síðan annar í röðinni um titilinn herra Ísland og eftir þessa sigra buðust honum ótal fyrirsætutilboð erlendis og starfaði hann þar meðan heilsan leyfði. Þeg- ar tækifæri gafst kom hann heim til Íslands og dvaldi þá með fjölskyld- unni sem var honum svo kær. Sigþór gekk í hjónaband í Bras- ilíu hinn 20. desember 2008. Eft- irlifandi eiginkona hans er Karina Caetavo Fugita Ægisson. Í byrjun árs 2009 fóru veikindi að gera vart við sig, allt var gert til að öðlast bata, hann barðist sannarlega hetjulega við veikindin, allt til hinstu stundar. Hann lést hinn 6. maí sl. á sjúkrahúsi í Tókýó. Kveðja. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Sigþór var okkur mjög kær, bæði sem frændi og vinur og minning- arnar um hann munum við um alla tíð varðveita. Hvíl í Guðs friði, haf þú þökk fyrir allt og allt. Foreldrum, systrum og fjöl- skyldu sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Kveðja, Sigurpáll og Gréta. Það er þyngra en tárum taki að kveðja þig, kæri Sigþór, þó erum við þakklát fyrir allt sem þú gafst með veru þinni hér. Fallegar minningar um atburði sem við upplifðum með þér fá okkur til að brosa í gegnum tárin. Þó svo að þetta séu aðeins minningar núna þá eru þær gulls ígildi og streyma ljúfsárar í gegnum huga okkar. Þegar við hugsum til þín sjáum við þig fyrir okkur lífsglaðan og brosandi við varðeldinn á Dönskum dögum í Stykkishólmi fyrir fjórum árum, syngjandi og spilandi fram á nótt. Þú, pabbi þinn og Bubbi frændi voruð hrókar alls fagnaðar með gítarana ykkar. Þar var stór- fjölskyldan saman komin, allir glað- ir og hamingjusamir að skemmta sér og sínum. Það er sorglegt og sárt þegar ungt fólk er tekið frá okkur. Allt líf- ið virtist blasa við þér, allt lék í lyndi þú búinn að finna stóru ást- ina, glæsilegt brúðkaup í Brasilíu, allt virtist svo bjart framundan þegar vágesturinn knúði dyra hjá þér, yndislegi frændi. John Lennon sagði einhvern tím- ann eitthvað á þessa leið „Life is what happens when you’re busy making other plans“. Þannig grípa oft önnur og æðri öfl í taumana þeg- ar maður á síst von á. Það er stutt stórra högga á milli í fjölskyldunni, það eru rétt rúm tvö ár síðan við fylgdum Álfhildi, systkinabarni við þig, til hinstu hvílu. Harmur nístir hjarta og sporin eru þung fyrir fjöl- skylduna þegar tvö systkinabörn á besta aldri kveðja þennan heim. Kveðja Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljóss lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni þú vekur hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Höf. Bubbi Morthens) Sigþór, kæri frændi, megir þú hvíla í friði, við söknum þín öll sárt um leið viljum við óska þér alls hins besta í því verkefni sem þér verður falið á æðri stöðum. Elsku Karina, Guðbjörg, Ægir, Agnes, Páll, synir og Linda Ýr, megi Guð og englar himins gæta ykkar og heila. Megi fallegar minn- ingar um Sigþór ylja ykkur, þær getur enginn frá okkur tekið, því þær hafa eilíft líf í sálum okkar. Guðfinna og fjölskylda. Það er sárt að þurfa kveðja elsku Sigþór minn, en eftir stendur minn- ing um yndislegan og góðan dreng jafn fallegan að utan sem innan, ég mun seint gleyma því þegar þú varst 6 ára og ég 16 ára þegar þú kenndir mér Gamla Nóa á píanó, og alltaf varstu klár með gítarinn og tókst nokkur lög með Nýdanskri fyrir mig sem var ein uppáhalds- hljómsveita okkar beggja, nú síðast heima á Hellissandi um áramótin þá áttum við góða stund saÓmþýð röddin er þögnuð, einlægt bros hans er horfið sjónum og fegurð hans að innan sem að utan mun ekki vera í boði framar. Söknuður- inn eftir að heyra rödd hans eða finna fyrir vinarþeli frá jafn fagurri sál og Sigþór hafði að geyma, mun trufla tilveru mína um stund, en hamingja mín mun felast í þeim minningum sem ég á um hann og því gríðarlega stolti sem ég á bara við það að hafa fengið að kynnast honum. Sigþór var eins og sól um nótt og tungl á heitum degi, vatn í eyðimörk eða gjöfult tré í auðn, kostirnir yfirstigu galla hans svo þeirra var ekki vart. Ég mun aldrei gleyma því er Sig- þór kom fyrstur vina minna á sjúkrahúsið þar sem ég lá illa slas- aður eftir mótorhjólaslys, ég man að það birti upp í herberginu þegar hann gekk inn og ekki minnkaði birtan þegar hann sagði mér sögur af líðandi helgi en sögur hans og hlátur lífguðu yfirleitt upp dauðan rósaakur og frosna kjúklinga. Megi allir englar Guðs vaka yfir mínum kæra vini og ekki er ég í nokkrum vafa um að þeir munu njóta þess til hins ýtrasta að gæta þessarar fögru sálar og varðveita í hvívetna. Ég vil nota tækifærið og votta fjölskyldu Sigþórs mína dýpstu samúð því missir þeirra er mikill og sár, en Sigþór átti góða að og var mikið elskaður af sinni fjölskyldu sem og vinum. Mín hinsta kveðja, Þorleifur Jónsson (Tolli.)  Fleiri minningargreinar um Sig- þór Ægisson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.