Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Sorgin hefur enn á ný knúð dyra hjá okkur fjölskyldunni af Stekkjarflöt 15. Það er erfitt og sárt að kveðja fólk sem manni þyk- ir vænt um, þó dauðinn hafi verið líkn og Tóti hafi svo sannarlega unnið fyrir hvíldinni. Tóti var rólyndismaður í eðli sínu en í veikindum sínum gaf hann orðinu stríð nýja merkingu, hann sagði veikindunum svo sannarlega stríð á hendur og ætlaði sér ekki að tapa því. Baráttan var erfið en aldrei kvartaði hann, heldur setti undir sig höfuðið og hélt af stað af ný. Þegar hvorki gekk né rak heima fyrir leitaði hann lækninga erlendis. Hann hafði svo margt að lifa fyrir, Systu sína, strákana þeirra og litlu afabörnin, Kristínu Sif, Freyju, litla nafnann Þórarin Bjarka, og 59 ára afmælisgjöf Tóta, litlu Emblu. Nú ganga litlir fætur um Heiðvanginn og skilja ekkert í því hvar afi Tóti sé. Lífið á Heiðvanginum er tómlegt núna, það vantar einn í sæti. Lífið hjá föður mínum og systkinum hans er tómlegt núna, það vantar tvö í hópinn, það er skrítin tilhugs- un. Liðið er ekki fullskipað nema allir séu með. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Tóti minn, hvíldu í friði og kysstu móttökusveitina frá mér. Dagný. Kveðja fá æskuvinum. Það er sárt og illskiljanlegt að sjá á bak vinum sínum langt fyrir aldur fram. Sjá þá ekki aftur, ekki geta rætt málin við þá eins og forð- um heldur aðeins geta hugsað til þeirra. Við kveðjum Tóta vin okkar í dag eftir hartnær hálfrar aldar vináttu og félagsskap. Hann var kvaddur frá okkur allt of snemma, aðeins sextugur að aldri. Við kynntumst í Garðabæ snemma á sjöunda áratug síðustu aldar þegar hann flutti með fjöl- skyldu sinni á Flatirnar rétt eins og við. Bærinn var í mótun. Hann var að breytast úr sveit í bæ með öllum þeim krafti og umbrotum sem því fylgja. Við krakkarnir vor- um að eignast nýja vini, nýjan leik- völl og ný viðfangsefni í nýju um- hverfi. Þarna kynntumst við Tóta og reyndar öllum systkinum hans. Tóti var kvikur í hreyfingum, Þórarinn Sigurðsson ✝ Þórarinn Sigurðs-son fæddist í Reykjavík 26. apríl 1950. Hann lést 17. maí sl. á Krabba- meinslækningadeild Landspítalans. Útför Þórarins fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 26. maí 2010. brosmildur og léttur í lund. Við náðum strax vel saman. Vinaböndin hafa ver- ið órjúfanleg allar götur upp frá því. Við undum okkur saman við íþróttir einkum á vettvangi Ungmenna- félagsins Stjörnunnar sem við gerðumst snemma félagar í. Tóti var snemma virkur í starfi Stjörn- unnar. Hann tók að sér stjórnarstörf í handknattleiksdeildinni þegar hún var stofnuð og einnig þjálfun til margra ára í öllum flokkum. Það voru margir fundirnir haldnir í gráa „voffanum“ hans þar sem brennandi framfaramál félagsins voru rædd langt fram á nótt. Með meiri þroska unglingsáranna var leitað út fyrir bæjarfélagið um skemmtun og lífsreynslu. Seint líða úr minni margar góðar ferðir okk- ar félaganna á dansiböll suður með sjó og austur fyrir fjall um helgar. Oft var farið á „voffanum“ sem Tóti keyrði af stakri prýði. Allir komu heilir heim glaðir, reifir og reynsl- unni ríkari. Þetta voru æðislegir tímar fyrir lífsglöð ungmenni sem áttu lífið fyrir sér. Smám saman tóku línur að skýr- ast. Kærustur, giftingar og börn komu í spilið og lífsbaráttan hófst fyrir alvöru. Tóti menntaði sig á sviði upplýsingatækni og gegndi margvíslegum störfum um dagana á því sviði, einkum við bókhald, stjórnun og forritun. Leiðir lágu saman af og til í gegnum árin í fjöl- skylduboðum eða við önnur tilefni. En þó voru vinafundir flestir í litlu kaffistofunni hjá Gunna í Skúlason & Jónsson hf. í Skútuvoginum. Þar komum við vinirnir mikið enda oft glatt á hjalla í stuttu kaffispjalli hjá Gunna. Tóti var vinmargur sem best sást eftir að hann veiktist. Fjöldi studdi hann í baráttunni við krabbameinið með einum eða öðrum hætti. Tóti sýndi þá aðdáunarverðan styrk og æðruleysi og gaf sig ekki fyrr en í fulla hnefana. Hann var alltaf vilja- sterkur og harður af sér og fullur lífsgleði þótt á móti blési. Vort líf er oft svo örðug för og andar kalt í fang, og margur viti villuljós og veikum þungt um gang. En Kristur segir: Kom til mín, og krossinn tekur vegna þín. Hann ljær þér bjarta sólarsýn, þótt syrti um jarðarvang. (Kristján frá Djúpalæk.) Við minnumst góðs félaga og vottum honum virðingu okkar við ferðalok. Kæra Systa, synir og fjölskylda Tóta; Guð veri með ykkur og styðji ykkur í sorginni. Gunnar H. Magnússon. Stefán Þórarinsson. Það er sárt að kveðja góðan vin, en við kveðjum þó með hjartað fullt af þakklæti fyrir þær ótal góðu minningar liðinna áratuga sem hann skilur eftir hjá okkur. Við ætlum hér að minnast fyrstu kynna okkar af Þórarni Sigurðssyni – honum Tóta. En það var um 1970, þegar við ungir að árum stigum fyrstu handboltaskrefin innan vé- banda Stjörnunnar. Félagið var þá uppburðarlítið æskulýðsfélag, þar sem þá hét Garðahreppur. Rekið af áhugasömum ungmennum í bæn- um. Þar fór Tóti fremstur í flokki bæði sem þjálfari, stjórnarmaður, dómari og allt annað sem til féll í rekstri þessarar ungu handbolta- deildar. Æfingar fóru fram í litlum sal í kjallara barnaskólans. Hann sýndi þar hæfni sína sem þjálfari, þrátt fyrir bágbornar æfingaaðstæður og hafði mikinn metnað fyrir okkar hönd á handknattleikssviðinu. Kom okkur m.a. í úrslit í Íslandsmóti. Í fyrsta sinn í sögu félagsins sem þeim árangri var náð. Undir for- ystu Tóta fórum við jafnframt í tvær ógleymanlegar keppnisferðir til útlanda árið 1973 og ’74, þá 16 og 17 ára gamlir. Þar braut hann einnig blað í sögu Stjörnunnar, því þetta voru fyrstu keppnisferðir fé- lagsins á erlenda grund. Hann sá um allt er viðkom þessum ferðum. Var skipuleggjandi, þjálfari, farar- stjóri og umsjónarmaður. Þessar ferðir reyndust ógleym- anlegt ævintýri fyrir okkur óharðn- aða unglingana. Þarna lærðum við af Tóta margt um lífið og tilveruna sem við búum enn að í dag. Í seinni ferðinni, sem var mánaðarlöng, sá hann m.a. til þess að við skrifuðum sameiginlega dagbók. Fyrir nokkr- um árum héldum við upp á afmæli þessara ferða. Af því tilefni hafði Tóti slegið alla dagbókina inn í tölvu og afhenti okkur hverjum og einum í hópnum, útprentað eintak. Það var honum líkt. Tóti var allt í senn alvörugefinn, ákveðinn, glað- sinna og skemmtilegur drengur, en umfram allt var hann þó fjöl- skyldumaður og sannur vinur. Vináttan og tengslin hafa haldist alla tíð frá æskuárunum í Garða- hreppi. Fyrir nokkrum árum tók hann að kenna sér meins sem við greiningu reyndist krabbamein. Hann tókst á við sjúkdóminn af ótrúlegu þreki og æðruleysi. Þetta var kappleikur sem hann ætlaði sér að vinna. Leik væri ekki lokið fyrr en flautað hefði verið til leiksloka – líkt og hann kenndi okkur sem þjálfari. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hve duglegur og hug- rakkur hann var og áfram um að hafa sigur. Ekki var síður aðdáun- arvert að sjá þann stuðning og hvatningu sem Systa og strákarnir veittu honum í þessari hörðu bar- áttu. Síðastliðið haust stóðum við nokkrir félagar Tóta fyrir góðgerð- arleik í samvinnu við handknatt- leiksdeild Stjörnunnar, til styrktar honum vegna mjög fjárfrekrar meðferðar erlendis. Þar mátti sjá marga félaga unga og aldna frá ár- um áður sýna þessum góða dreng vináttu, hlýhug og styrk í verki. Um leið og við kveðjum góðan vin, vottum við Systu og bræðrunum Gunnari, Sveini og Agli okkar inni- legustu samúð á þessari sorgar- stundu. Baldur Ó. Svavarsson og Magnús Teitsson. Í dag kveðjum við Þórarin Sig- urðsson góðan vin og Stjörnu- félaga. Hann barðist við illvígan sjúkdóm af miklu hugrekki og leit- aði allra leiða til að sigra en skjótt skipast veður í lofti og nú hafði vin- ur okkar ekki betur. Við kynnt- umst Tóta þegar við stofnuðum meistaraflokksráð kvenna í hand- bolta í Stjörnunni. Það var gaman að fá að taka þátt í uppbyggingu handboltans á þessum árum og margt var brallað. Fjáraflanir voru af ýmsum toga og ferðalög bæði innan- og utanlands voru fastir lið- ir. Tóti var góður liðsmaður sem alltaf var hægt að leita til. Hann var viðbúinn að takast á við öll þau verkefni sem sinna þurfti. Eflaust hefur Tóta oft fundist við „stelp- urnar“ bæði háværar og fyrirferð- armiklar en þegar lætin í okkur voru sem mest brosti hann sínu ljúfa brosi. Í dag er gott að eiga allar minn- ingarnar um Tóta hvort sem þær tengjast skemmtunum eða starfi fyrir handboltann og í framtíðinni eigum við eftir að ylja okkur við þær. Þau vináttubönd sem bundin voru á þessum árum hafa styrkst með árunum og í dag höldum við óformlega súpufundi, tökum stöð- una og rifjum upp gamlar minn- ingar. Í veikindum sínum stóð Tóti ekki einn. Systa, strákarnir og fjöl- skyldan öll stóðu þétt við bakið á honum. Við sendum Systu og öllum ást- vinum Tóta okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum Guð að milda sára sorg þeirra. Við þökkum Tóta samfylgdina og biðjum fjöl- skyldu hans og ástvinum öllum Guðs blessunar. Blessuð sé minn- ing Þórarins Sigurðssonar. Margrét, Sigurveig og Bergþóra. Það er fátt sem gefur lífinu meira gildi en samneyti við gott fólk. Einstaklinga sem eru heiðar- legir, gefandi og láta sér annt um aðra. Þannig var Tóti mágur. Hann var ákveðinn en sanngjarn, kröfu- harður en þó mest gagnvart sjálf- um sér, ósérhlífinn og einstaklega trúr sér og sínum. Hann hélt stóra systkinahópnum sínum saman, studdi og leiðbeindi í blíðu og stríðu. Nú er skarð fyrir skildi. Systa og strákarnir voru stóra gleðin og kjölfestan í lífi Tóta. Þau voru einstaklega samheldin og frá fyrstu tíð heyrði ég vart annað en þau hjónin nefnd saman, það var alltaf Tóti og Systa. Saman tókust þau á við veikindi Tóta, börðust af bjartsýni og einstöku æðruleysi. Þegar útséð var með frekari með- ferð hér á landi leitaði Tóti sjálfur til sérfræðinga erlendis. Slíkur var viljinn og þrautseigjan. Meðferðin þar gaf honum gott ár. Synirnir þrír hafa verið foreldrunum stoð og stytta enda Tóti einstaklega stoltur af þeim og þá ekki síður barnabörnunum. Afahlutverkið fór honum vel. Nú er þessi önd- vegismaður fallinn frá langt um aldur fram. Nú verða samveru- stundir liðinna ára að dýrmætri minningu. Nú fá spjall og skoð- anaskipti dýpri merkingu. Við komum hér á kveðjustund að kistu þinni, bróðir að hafa við þig hinzta fund og horfa á gengnar slóðir. Og ógn oss vekja örlög hörð, en ennþá koma í hópinn skörð, og barn sitt faðmi byrgir jörð, vor bleika, trygga móðir. En minning þín er mjúk og hlý og mun oss standa nærri. Með hverju vori hún vex á ný og verður ávallt kærri. Ef lífsins gáta á lausnir til, þær ljóma bak við dauðans þil. Og því er gröfin þeim í vil, sem þráðu útsýn stærri. (Magnús Ásgeirsson.) Blessuð sé minning Þórarins Sigurðssonar. Elsa B. Friðfinnsdóttir. Seint mun ég gleyma þeirri stundu fyrir tæpum þremur árum þegar Þórarinn samstarfsmaður minn kom til mín og sagði mér að hann hefði greinst með illvígan sjúkdóm. Honum var skiljanlega mjög brugðið. Áttum við þá langt samtal þar sem hann sagði mér m.a. nánar frá greiningunni og hvers konar meðferð hann ætti fyrir höndum. Nú þegar Þórarinn er allur átta ég mig á því að þetta var í fyrsta og eina skiptið í okkar samtölum sem hann var langt niðri. Allar götur síðan þegar við ræddum saman var hann bjart- sýnn og tilbúinn að berjast enda mikill keppnismaður. Leiðir okkar Þórarins lágu fyrst saman fyrir hálfum öðrum áratug í Hug hf. Við Tóti unnum þá sam- an í þrjú ár áður en leiðir skildi um stund. Strax þá kom fram sá góði eiginleiki hans sem ég átti eftir að kynnast enn betur síðar, þ.e. skilningur og þekking á þörf- um viðskiptavina og hæfileiki til að vinna með þeim að úrlausn verkefna. Við sameiningu Hugar og AX hugbúnaðarhúss fyrir fjór- um árum lágu leiðir okkar Tóta aftur saman. Það var mér þá ómetanlegt að geta leitað til hans með hvers kyns verkefni. Gilti þá einu hvort slíkt sneri að málefnum einstakra viðskiptavina, sam- starfsmanna eða aðra hluti starfs okkar. Alltaf var hægt að treysta á hollráð Tóta og vilja til að finna farsæla lausn.Við sjáum á bak ein- stökum samstarfsmanni og félaga sem gaf sig alltaf allan í verkefni dagsins og átti að baki gifturíkt ævistarf. Hugur okkar er með eig- inkonu Tóta, og fjölskyldunni allri. Megi góður Guð veita þeim styrk í sorginni. Gunnar Ingimundarson. Mig langar að minnast Álfheiðar samstarfskonu minn- ar sem kenndi í Öskjuhlíðarskólan- um. Við kynntumst í Öskjuhlíð- arskóla, ég að vinna í kennslustof- unni við hliðina á hennar. Álfheiður Björk Einarsdóttir ✝ Álfheiður BjörkEinarsdóttir fæddist í Reykjavík 28. maí 1945. Hún lést á Landspítalanum 23. apríl síðastliðinn. Útför Álfheiðar fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 4. maí 2010. Álfheiður hafði á orði þegar hún var spurð að því hversu lengi hún hefði starfað við skólann, að hún hefði verið teiknuð með innréttingu skólans á sínum tíma, svo lang- ur væri hennar starfsferill. Þannig var þegar ég var í náminu mínu á menntavísindasviði HI leitaði ég til Álf- heiðar, þar sem hún var svo góð ensku. Alltaf var hún tilbúin að gefa af tíma sínum. Verkefnið mitt fjallaði um útinám, stærðfærði og hug- myndir Comeniusar um menntun, nám og hvernig hver og einn nem- andi gæti nýtt hæfileika sína til fulls. Við lesturinn spunnust margar góðar hugmyndir. Fyrr en varði vorum við komnar á flug hvað hægt væri að gera margt skemmtilegt í skólastarfi. Já, við vorum eiginlega búnar að hanna og gera nýtt umhverfi í hugar- skotinu sem bauð upp á stærð- fræðinám úti á lóðinni með hæð- um, vogum, steinum. Alls kyns góðar hugmyndir kviknuðu sem gaman væri að koma í verk sem innihéldu bæði nám, leikni og mikla rökhugsun. Álfheiður vildi gjarnan koma með með nýjar hug- myndir með breytta kennsluhætti, fannst stundum vanta nýja strauma í skólana. Það var ekki amalegt þegar hljómsveitir komu til að spila og taka lagið í skólanum að geta tekið lagið um hana Álfheiði Björk. Ekki margir sem geta státað af svo fal- legu nafni, hin eina og sanna Álf- heiður Björk á staðnum, Eyfi og félagar sungu háum rómi af mikilli gleði og undir tóku 10. bekkjar nemendur ásamt öðrum nemend- um skólans, enda fannst þeim ekki leiðinlegt að syngja. Álfheiður var falleg og flott kona og lét skoðanir sínar óhikað í ljós en alltaf var þó stutt í húm- orinn. Hennar verður sárt saknað og skrítið að geta ekki kastað á hana kveðju inni í sinni stofu næst þegar ég kem í heimsókn. Já, inn- réttingin er orðin svolítið vönt- unarleg og tómleg. Ég vil kveðja þig, kæra vinkona, og þakka þér allar góðar stundir í borðstofunni yfir kaffibolla og spjalli eftir að skólastarfi lauk á góðum eftir mið- dögum. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Aðstandendum votta ég sam- úð og bið Guð að styrkja þá í sinni sorg. Áslaug Reynisdóttir. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.