Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 2
1. október 2011 LAUGARDAGUR2 YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI • Stærð: 149 x 110 x 60 cm Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 ÚTSALA YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI Er frá Þýskalandi Opið laugardag og sunnudag til kl. 16 Segir sögu sína SAMFÉLAGSMÁL Ólafur Skúla- son, fyrrverandi biskup Íslands, reyndi ítrekað að gera frásagnir Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, dótt- ur sinnar, ótrúverðugar með því að segja hana geðveika. Ólafur hafði samband við Stígamót eftir að Guðrún Ebba hafði verið þar í viðtölum og sagði dóttur sína veika á geði og varast skyldi að taka hana trúanlega. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Guðrúnar Ebbu, Ekki líta undan. Samkvæmt upplýsingum frá útgefanda greinir hún í bókinni frá því að faðir hennar hafi einnig reynt að ná fundi með sálfræðingi hennar, en þegar það gekk ekki hafi hann fengið geðlækni til að setja sig í samband við hann í þrí- gang til að bera þau boð að í ætt Guðrúnar Ebbu væri geðveiki. Því væri ekki víst að sálfræðingurinn gerði sér grein fyrir hvað væri að hrjá hana. Þetta væru falskar minningar sem hefði verið komið inn hjá henni í áfengis meðferð, í viðtölum hjá Stígamótum eða hjá sálfræðingnum sjálfum. Í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings segir að Karl Sigur- björnsson biskup hafi komið fyrir rannsóknarnefndina og greint frá því að Guðrún Ebba hafi haft samband við hann sumarið 2008, þegar faðir hennar var nýlátinn, og greint honum frá því að faðir hennar hafi misnotað hana kyn- ferðislega í fjölda ára. Karl hefði reyndar heyrt af því áður, að hún væri að segja sögu sína á öðrum vettvangi. Á sama tíma sagði hún fagráði kirkjunnar um kynferðis- brot frá málinu. Eftir að Guðrún Ebba fékk Biskup sagði dóttur sína vera geðveika Ólafur Skúlason reyndi ítrekað að gera Guðrúnu Ebbu dóttur sína ótrúverðuga með því að segja hana geðveika. Hún sagði Karli Sigurbjörnssyni fyrst frá kyn ferðis- brotum árið 2008. Þetta kemur fram í nýrri bók Guðrúnar Ebbu, Ekki líta undan. áheyrn kirkjuráðs, ári eftir að hún óskaði fyrst eftir því, komu fleiri ásakanir á hendur Ólafi fram í dagsljósið á ný. Í kjöl farið var rannsóknarnefndin sett á laggirnar. Eftir að skýrsla rann- sóknarnefndarinnar kom út bað fagráðið hana afsökunar á þeim mistökum sem gerð voru við með- ferð máls hennar. Í bók sinni greinir Guðrún Ebba frá því þegar hún fór í áfengis- meðferð árið 2003 og leitaði í kjöl- farið til Stígamóta. Hún sagði frá ofbeldinu á námskeiðum á vegum forvarnasamtakanna Blátt áfram og fleiri fjölmennum ráðstefnum á vegum starfsgreina. Guðrún Ebba rifjar upp æsku sína og unglingsár í bók sinni og segir frá því hvernig það var að horfast í augu við þá misnotkun sem hún mátti sæta af hendi föður síns. Elín Hirst sagnfræðingur skráir sögu Guðrúnar Ebbu. Bókin kemur út 10. október næst- komandi. sunna@frettabladid.is Guðrún Ebba greinir frá uppvexti sínum í skugga kynferðisofbeldis í bók sinni sem kemur út 10. október. FJÖLMIÐLAR Ævar Örn Jósepsson rithöfundur hefur tekið að sér að gera nýja verð- launakross- gátu í hverri v i k u f y r i r helgar blað Fréttablaðsins. Krossgáturn- ar verða ekki hefðbundnar samheita kross- gátur heldur ætlar höfundur- inn að spinna blekkingarvef sem lesendur þurfa að ráða fram úr. „Ég hef verið að leysa kross- gátur frá því ég lærði að lesa og rakst á krossgátur í Æskunni,“ segir Ævar. Hann hefur fiktað við að búa til krossgátur í gegnum tíðina en ekki birt gáturnar opinberlega hingað til. Ævar segist byrja á því að setja upp gátuna sjálfa og vinnur svo í vísbendingum sem geta leitt að hverju orði. „Að gera góða krossgátu er svipað og að skrifa glæpasögur. Maður byrjar því að hafa lausn- ina á hreinu og fer svo að villa um fyrir fólki,“ segir Ævar. Hann er verðlaunaður glæpasagna- höfundur en hefur einnig starf- að sem útvarpsmaður og blaða- maður. „Ég er orðinn dálítið leiður á hefðbundnum samheitakross- gátum, þær gefa takmarkaða ánægju til lengdar. Ég hef meira gaman af gátum í þeim stíl sem munu birtast í Fréttablaðinu, þar sem aðeins er reynt að draga fólk á asnaeyrunum og villa um fyrir því, um leið og vísbendingar eru gefnar,“ segir Ævar. - bj / sjá síðu 40 Ævar Örn Jósepsson spinnur blekkingarvef í verðlaunakrossgátu í Fréttablaðinu: Svipað og að skrifa glæpasögur ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON Bragi, verður þrumuguðinn þá í þrumustuði? „Já, maður verður að hamra eldinguna á meðan hún er heit.“ Bragi Valdimar Skúlason samdi lagið Eldingu fyrir nýja íslenska teiknimynd um þrumuguðinn Þór. BANDARÍKIN Bandaríska fiskvinnslufyrirtækið Tri- dent Seafoods hefur samþykkt upphæð sem jafn- gildir um 300 milljónum íslenskra króna í sekt vegna umhverfisspjalla við fjórtán fiskvinnslu- stöðvar fyrirtækisins í Alaska. Trident er eitt nokkurra fyrirtækja sem boðið hafa í Icelandic Group, sem er í söluferli hjá Framtakssjóði Íslands, eiganda fyrirtækisins. Auk þess að greiða sekt í ríkissjóð hefur Tri- dent lofað að eyða sem jafngildir um 3,6 millj- örðum í að hreinsa upp mengun frá fiskvinnslu- stöðvunum, að því er fram kemur í bandaríska dagblaðinu Seattle Times í gær. Fyrirtækið varð uppvíst að því að sturta tugum milljóna kílóa af fiskúrgangi í sjóinn við vinnslu- stöðvar sínar. Mengunin eyddi lífríki á stórum hafsvæðum. Á köflum er úrgangurinn eins og „þykkt slímugt teppi af slori sem kæfir lífríkið í sjónum og trufl- ar alla fæðukeðjuna í sjónum“, sagði Tara Mar- tich hjá bandarísku umhverfisverndarstofnuninni (EPA). Trident er eitt af stærstu fiskvinnslufyrirtækjum heims. Það gerir út fjölda skipa, rekur sautján verk- smiðjur í Bandaríkjunum og hefur um 8.000 starfs- menn í vinnu samkvæmt upplýsingum á vefsíðu fyrirtækisins. - bj Bandaríska fiskvinnslufyrirtækið Trident sektað um milljónir fyrir umhverfisspjöll: Umhverfissóðar vilja Icelandic SJÁVARÞORP Í ALASKA Mengun frá fiskvinnslustöðvum Trident í Alaska hefur lengi verið vandamál sem nú á að taka á, segir talsmaður bandarísku umhverfisverndarstofnunarinnar (EPA). NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Alþingi verður sett með athöfn sem hefst klukkan 10.30 í dag. Að athöfninni lokinni verður fjárlagafrumvarpi næsta árs dreift á Alþingi. Forseti Íslands, vígslubiskup, þingmenn og ráðherrar munu ganga úr þinghúsinu til guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni. Að henni lokinni mun Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, setja 140. löggjafar þing. Þegar þingfundur hefst eftir hádegi verður kosið í nefndir og þingsætum úthlutað. - bj Alþingi sett í dag: Frumvarpi um fjárlög dreift SAMFÉLAGSMÁL Bleiku slauf- unni, árvekni- og söfnunar átaki Krabbameinsfélags Íslands, var hleypt af stokkunum í gær. Vigdís Finnbogadóttir, verndari Krabbameinsfélags Íslands, afhenti fyrstu bleiku slaufurnar til sex hvunndagshetja sem bar- ist hafa við krabbamein. Bleika slaufan var í ár perluð af Zúlú- konum í Suður-Afríku, sem var mikil búbót fyrir þorp sem sam- anstanda af „ömmum“ sem sjá fyrir fjölda barna. - sv Söfnunarátakið hefst á ný: Fyrsta bleika slaufan afhent ÁGÓÐINN TIL KRABBAMEINSFÉLAGSINS Vigdís Finnbogadóttir afhenti fyrstu bleiku slaufur ársins. VOGAR Meirihluti bæjarstjórnar Voga á Vatnsleysuströnd féll í gær, eftir að tillaga um að hafna loftlínu í gegnum land sveitar- félagsins var samþykkt á fundi bæjarstjórnarinnar á miðviku- dagskvöld. Viðbótarkostnaður vegna þess- arar ákvörðunnar getur orðið allt að tólf milljarðar verði kröfum mætt, segir forstjóri Landsnets. Fulltrúar E-listans greiddu atkvæði gegn tillögunni á fund- inum. Þeir tilkynntu síðan sam- starfsflokknum, H-listanum, í fyrrakvöld að ekki væri áhugi fyrir frekara samstarfi í bæjar- stjórn. - hv Meirihlutinn í Vogum springur: Höfnuðu lagn- ingu loftlínu Ekkert siglt til Eyja í gær Allar ferðir Baldurs milli lands og Eyja féllu niður í gær vegna veðurs. Sam- kvæmt ölduspá bendir allt til þess að óvissa ríki með siglingar Baldurs í dag. SAMGÖNGUR AKUREYRI Hluti af flotbryggjunni við Menningarhúsið Hof brotnaði í sundur í óvæntu fárviðri á Akur- eyri í gær. Brakið af bryggjunni barðist í báta sem lágu við hana og losnuðu sumir þeirra frá. Alls urðu sjö bátar fyrir barðinu á brakinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var fyrst áætlað að nota lóðsinn til að ná bát- unum frá, en hann gat ekki athafn- að sig í veðrinu. Því var fenginn kranabíl til að ná brakinu upp úr höfninni. Að sögn lögreglu er erfitt að meta tjónið á bátunum að svo stöddu. Fjöldi björgunarsveitar- manna, hafnarstarfsmenn og eig- endur skútanna tóku þátt í aðgerð- unum. - sv Bátar skemmdust á Akureyri: Bryggja brast í óvæntu roki VÍSINDI Hópur bandarískra og ástr- alskra vísindamanna vinnur nú að þróun pillu sem gerir það kleift að hægt er að innbyrða mikið magn áfengis án þess að missa stjórn á hegðun sinni. Lyfið sem um ræðir byggir á til- raunum sem hafa sýnt fram á að áhrif áfengis á heilastarfsemi eru tvenns konar. Annars vegar hefur áfengi áhrif á taugafrumur og hins vegar áhrif á frumur í heil- anum sem tengjast ónæmiskerf- inu. Lyfið virðist koma í veg fyrir síðari áhrifin, sem valda því meðal annars að ölvað fólk á erfitt með gang og tal. Við tilraunir sýndu mýs sem fengu lyfið engin merki ölvunar þrátt fyrir að hafa verið gefið mikið magn áfengis. - mþl Pilla sem mildar áhrif ölvunar: Kemur í veg fyr- ir drykkjulæti SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.