Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 38
heimili&hönnun2 UNDIR SÓLINNI... ● Forsíðumynd: Anton Brink tók myndina á heimili Hildar Sesselju Aðalsteinsdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjóri: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir s. 512 5462 Útlitshönn- uður: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is. CANDY AFSLÁTTARDAGAR heimili& hönnun  SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI  október 2011 Óregluleg perla Glerlistamaðurinn Oiva Toikka er frægur fyrir fallega fugla úr munn- blásnu gleri. Finn- inn er áttræður í ár en hvergi nærri hættur störfum. SÍÐA 2 Íslensk hönnun um allan heim Fimm sýningar á íslenskri hönnun fara fram um allan heim þessa dagana. Í Peking í Kína, Seattle í Bandaríkjunum, Búdapest í Ungverja- landi og tvær í Frankfurt í Þýskalandi. SÍÐA 6 Á sviði hönnunar, og þá eink- um glerlistar, þykir Finninn Oiva Toikka einstakur. Átt- ræður nú í ár er hann enn að og má nefna sem dæmi að Magis hefur á þessu ári sett í framleiðslu hillur í barnaherbergi, í líki há- hýsis. Toikka nam leirlist en helgaði sig síðar al- farið glerlistinni. Hann er rómaður fyrir gler- fugla sína sem hann hefur hannað fyrir glerframleiðandann Iittala í gegnum tíðina, alls kyns litríka fugla sem eru þekktir á heims- vísu en hver fugl er úr munnblásnu gleri. Verk Toikka eru jafnan á glerlistasýningum um víða veröld og munir eftir hann eru á söfn- um um allan heim. Toikka er óvenju- legur að því leyti hve víða hann hefur haslað sér völl. Hann hefur unnið sem sviðs- og búningahönnuður, oftast með einum þekktasta leikstjóra Finna, Lisbeth Landefort, en auk þess hefur hann unnið verkefni fyrir Finnsku óperuna. Öðru hverju hefur hann svo tekið að sér textíl- hönnun fyrir Marimekko. Þegar Toikka hefur verið beð- inn að útskýra verk sín hefur hann sagt: „Barokk er rétta orðið til að lýsa þeim. Enda er upp- runaleg merking þess „óregluleg perla“. juliam@frettabladid.is Magis hóf fram- leiðslu á þessum einstöku barna- herbergishillum nú í ár. Fugl handa börnum úr plasti sem má sitja á. Hannað fyrir Magis. Fuglarnir hans Toikka eru af öllum stærðum og gerðum, uglur, mörgæsir, endur og fleira til og eru allir úr munnblásnu gleri. Oiva Toikka við glerlistaverk sitt í sendiráði Finnlands í Washington fyrir nokkrum árum. Verk hans eru þekkt um víða veröld og Toikka hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna. ● NÝTT HLUTVERK FLÖSKUNNAR Íslenska hönnunarfyrirtækið Bility hefur vakið mikla athygli fyrir frumlegar og öðruvísi vörur en einn hönnuða fyrir- tækisins, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, á heiðurinn af þessum skemmtilegu vösum úr pappa. Hugmyndin byggir á því að gefa gömlu drykkjarflöskunni nýtt hlut- verk en pappaumgjörðin, sem myndar vasa, getur nýst utan um alls kyns gosdrykkja- og safaflöskur. ● ÚR SJÓNUM Óvenjuleg dönsk netverslun, bagus.dk, hefur vakið athygli fyrir muni sem seld- ir eru á vefnum og allir unnir úr við úr skipum. Skip- in eiga það sameiginlegt að hafa siglt í kringum eyj- arnar Jövu, Balí og Lombok. Framleiðslan er styrkt af Danida-verkefninu, sem skal gæta þess að fram- leiðslan fari fram samkvæmt öllum reglugerðum. ● HREKKJAVAKA Þótt enn sé mánuður í hrekkjavökuhátíðina má fara að huga að undir- búningnum. Hátíðin nýtur sívaxandi vinsælda hérlendis þar sem ungir sem aldnir útbúa veit- ingar og skreytingar fyrir kvöldið. Benda má áhugasömum á óvenjulegan myndaþátt í nýj- asta hefti danska blaðsins Bolig Liv en þar eru til- lögur að „fullorðins“ hrekkjavökuskreytingum úr appelsínugulum haustlaufum til að mynda. Toikka hefur hannað nokkrar vörur ætlaðar börnum fyrir Magis, til dæmis þetta skemmtilega tré. Barokk lýsir mér best ● Glerlistamaðurinn Oiva Toikka er fyrir löngu orðinn frægur fyrir yndislega fugla úr munnblásnu gleri. Finninn er áttræður í ár og er hvergi nærri hættur störfum. Glerfyrirtækið Nuutajarvi hefur framleitt kertastjaka eftir Toikka. LEVI’S gallabuxur, verð kr. 9.995 - 11.995.- KORPUOUTLET, KORPUTORGI • Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18 • Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400 Girnilegasti lagermarkaður landsins! NÝ SENDING R áð an di - a ug lý si ng as to fa e hf . Fylgstu með okkur á Facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.