Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 96
1. október 2011 LAUGARDAGUR64 sport@frettabladid.is LOKAUMFERÐ laugardagurinn 1. okt. Fram - Víkingur R. kl.14.00 Laugardalsvöllur Valur - KR kl.14.00 Vodafonevöllurinn Keflavík - Þór kl.14.00 Nettóvöllurinn Fylkir - FH kl.14.00 Fylkisvöllur ÍBV - Grindavík kl.14.00 Hásteinsvöllur Breiðablik - Stjarnan kl.14.00 Kópavogsvöllur 99 TOMMY NIELSEN leikur í dag sinn síðasta leik á ferlinum þegar að FH sækir Fylki heim í Árbæinn. Á þeim níu árum sem Tommy hefur leikið með FH hefur liðið aldrei lent neðar en í öðru sæti í efstu deild. FH getur í dag tryggt sér annað sæti deildarinnar. Vinnist leikurinn verður það 100. sigurleikur Tommy í efstu deild á Íslandi. Kolbeinn Tumi Daðason íþróttafréttamaður „Fergie, semdu við hann,“ hljómaði ósjaldan á Old Trafford á árunum 2007-2009. Stuðningsmenn Manchester United skildu ekki hvers vegna Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri félagsins, vildi ekki gera langtímasamning við Carlos Tevez. Argentínumaðurinn, sem var á tveggja ára lánssamningi, fór á kostum í rauða búningnum og var uppáhald stuðningsmannanna. „Ég hefði getað farið út í eiturlyf og endað á botninum en þess í stað komst ég hingað,“ sagði Tevez eitt sinn um leið sína á toppinn. Hann sagði æsku sína í fátækrahverfum Buenos Aires þrátt fyrir allt hafa verið góða. „Ég kynntist gildum á borð við virðingu, auðmýkt og fórn,“ sagði Tevez. Argentínumaðurinn sló í gegn í heimalandinu, í Brasilíu og fyrstu ár sín í enska boltanum. Vandræðin voru þó aldrei langt undan. Hann fór í verkfall hjá Corinthians og kvartaði sáran yfir bráðabirgðahúsakynnum sínum fyrstu dagana hjá West Ham. Hann yfirgaf leikvang Hamranna í fússi eftir „ósanngjarna“ skiptingu og vældi yfir leiktíma og áhugaleysi yfir- manna hjá Manchester United. Þess á milli minnti hann heims- byggðina á að hann væri einn besti knattspyrnumaður heims með frábærum mörkum og frammistöðu. Stolti Argentínumaðurinn sem hafnaði því að gangast undir lýtaaðgerð á ljótu brunasári á andliti sínu og hálsi. „Annað hvort takið þið mér eins og ég er eða ekki. Það sama gildir um tennurnar. Ég mun ekki breyta sjálfum mér,“ hefur Tevez látið hafa eftir sér og uppskorið heilmikla samúð og aðdáun. Enn ein ástæða til þess að leyfa honum að njóta vafans. Nú er öll samúð að baki. Heimþrá, dætur í Argentínu, rigning á Englandi. Öllum er sama. Fram- herjinn sem þénar 46 milljónir íslenskra króna á viku neitar að koma inn á í stórleik í Meistara- deild Evrópu. Fáir stuðnings menn eru líklegir til þess að biðla til knattspyrnu- stjóra síns að semja við kappann í fram- tíðinni. Köttinn í sekknum. Nema hann breyti sjálfum sér. Fullorðni óvitinn með fulla ferðatösku af vand- ræðum. Fullorðni óvitinn FÓTBOLTI Fjögur félög glíma við fall- drauginn í lokaumferð Pepsi-deild- ar karla í dag og öll vilja þau forð- ast það að fylgja Víkingum niður í 1. deildina. Tvö af félögunum fjórum hafa stundað það undan- farna áratugi að bjarga úrvals- deildarsæti sínu á síðustu stundu. Hér erum við að tala um Fram og Grindavík, réttnefnd kraftaverka- klúbba í karla fótboltanum, sem keppa í dag við Keflavík og Þór um að fá að vera áfram með í Pepsi- deildinni sumar ið 2012. Þetta verður í fyrsta sinn í fjög- urra ára sögu tólf liða deildar þar sem fallslagurinn er ekki ráðinn þegar komið er inn í 22. og síð- ustu umferð sumarsins. Keflavík (-6), Fram (-9) og Þór (-12) hafa öll 21 stig í sætum 8 til 10 en Grind- víkingar eru síðan í fallsætinu með 20 stig. Framarar komust upp úr fallsætinu með 2-1 sigri í Grindavík í síðustu umferð sem var þá fjórði sigur Framliðsins í síðustu sex leikjum. Öll fjögur bjarga sér með sigri Staðan í dag er ekki flóknari en það að öll liðin fjögur þurfa bara að treysta á sjálfan sig og tryggja sér úrvalsdeildarsætið með sigri. Fram og Keflavík nægir enn frem- ur aðeins jafntefli og þar spilar inn í að Keflavík og Þór mætast í lokaumferðinni. Framarar hafa bjargað sér átta sinnum frá falli í lokaumferðinni frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. Framliðið hefur aðeins einu sinni farið niður í lokaumferðinni á þessum tíma og það var sumarið 2005 þegar þeir reyndu sjöunda árið í röð að bjarga sæti sínu á síðustu stundu. Grindvíkingar björguðu sæti sínu í lokaumferðinni á sex af fyrstu ellefu árum sínum í efstu deild en þeir féllu í eina skiptið þegar þeir voru síðast í þessari stöðu haustið 2006. Fram og Grindavík þekkja það líka liða best að sleppa við fall- ið þegar þau sitja í fallsæti fyrir lokaumferðina. Fram hefur fjórum sinnum rifið sig upp úr fallsæti í lokaumferðinni og Grindvíkingar hafa náð því þrisvar sinnum. Eyja- menn (2 sinnum) eru eina félagið að auki sem hefur afrekað slíkt oftar en einu sinni. Staða Fram var slæm í ágúst Takist Fram hins vegar að bjarga sér fengi sú björgun eflaust sér kafla í Framsögunni enda fékk Framliðið aðeins eitt stig í fyrstu sex umferðunum og vann enn fremur aðeins einn sigur í fyrstu fimmtán leikjum sínum. Eftir tap á móti Þór í 13. umferð 3. ágúst sat Fram á botni deild- arinnar með 6 stig og menn voru fyrir löngu farnir að sjá Safamýr- arliðið fyrir sér í 1. deildinni næsta sumar. Aðeins Stjörnumenn hafa náð í fleiri stig út úr síðustu sex leikjum og fyrir vikið eru Fram- arar í góðri stöðu til að bjarga sæti sínu í dag. Leikur upp á líf eða dauða Hin tvö liðin í fallbaráttunni í dag, Keflvíkingar og Þórsarar, mætast í leik upp á líf eða dauða í Keflavík. Bæði hafa þau 50 prósenta árang- ur úr slíkri stöðu, Keflavík hefur bjargað sér tvisvar í fjórum til- raunum en Þórsarar hafa bjargað sér einu sinni í tveimur. Bæði eiga þessi lið það sameigin- legt að hafa „bjargað“ sér nokkrum sinnum í sumar að mati flestra en dragast síðan alltaf jafnóðum aftur niður í fallslaginn. Þórsarar þurfa nú að ná í stig á útivöll sem hefur ekki tekist hjá þeim síðan í lok júní. Það er kannski þeim til happs að þeir heimsækja Nettóvöll Kefl- víkinga, en Keflavíkurliðið hefur Kraftaverkaklúbbarnir í hættu Fram og Grindavík kunna það félaga best á Íslandi að bjarga sér frá falli í lokaumferðinni en það hafa þau afrekað 14 sinnum í 16 tilraunum. Fréttablaðið fer yfir fallbaráttuna í lokaumferð Pepsi-deildar karla. TAUGARNAR ÞANDAR Í DAG Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, og þeir Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, Páll V. Gíslason, þjálfari Þórs, og Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, glíma allir við falldrauginn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM, DANÍEL OG ANTON FÓTBOLTI Ólafur Þórðarson mun stýra sínum síðasta leik hjá Fylki í dag þegar FH kemur í heimsókn í Árbæinn. Það varð endanlega ljóst í gær að Ólafur myndi hætta með liðið. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er hann ekki ánægður með stjórn Fylkis, sem hefur til að mynda ekki getað uppfyllt lof- orð um kaup á leikmönnum. Samkvæmt stjórnarmönnum Fylkis hættir Ólafur þó í góðu og mun því stýra liðinu í dag. Víkingar biðu ekki boðanna þegar þeir fréttu að Ólafur væri að losna og samkvæmt heim- ildum hafa þeir þegar náð sam- komulagi við Ólaf. Ekki verður þó greint frá ráðningunni fyrr en eftir loka- umferð Pepsi-deildarinnar í dag. Ólafur verður svo kynntur fyrir leikmönnum Víkings á lokahófi félagsins í kvöld. Ólafur hefur stýrt liði Fylkis síðan 2009 en hann hefur einnig þjálfað lið Fram og ÍA. - hbg Ólafur hættir með Fylki: Tekur við Víkingi í dag Á LEIÐ Í FOSSVOGINN Leikmenn Víkings munu örugglega fá að svitna hjá Óla Þórðar. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Lykilatriðin í fallbarátt- unni í dag ■ Fram og Keflavík nægir jafntefli ■ Grindavík og Þór bjarga sér með sigri ■ Grindavík (-13) og Þór (-12) eru með slökustu markatöluna ■ Keflavík (-6) er með bestu markatöluna ■ Fram hefur náð í 10 stig í síðustu 4 leikjum (3 heimasigrar í röð) ■ Grindavík vann síðast leik 15. ágúst (6 leikir í röð án sigurs, þar af 4 jafntefli) ■ Keflavík hefur fengið 1 stig í síðustu 4 heimaleikjum (3 töp í röð á öllum völlum) ■ Þór hefur tapað 5 útileikjum í röð (1 stig í síðustu 8 útileikjum) Í fallhættu í lokaumferð Árangur félaga í fallhættu í lokaumferð efstu deildar karla síðan þriggja stiga reglan var tekin upp sumarið 1984. (Lágmark 4 skipti) Björgunarhlutfall liða: Fram 89 prósent (8 af 9) Grindavík 86 prósent (6 af 7) Víkingur 57 prósent (4 af 7) Keflavík 50 prósent (2 af 4) Breiðablik 43 prósent (3 af 7) Fylkir 25 prósent (1 af 4) Valur 25 prósent (1 af 4) Þróttur 25 prósent (1 af 4) - Lið með þrjú skipti - ÍBV 100 prósent (3 af 3) KR 100 prósent (3 af 3) FH 67 prósent (2 af 3) KA 33 prósent (1 af 3) aðeins náð í eitt stig út úr síðustu fjórum heimaleikjum sínum. Það verður mikil spenna í dag á Laugardalsvellinum (Fram-Víking- ur), í Keflavík (Keflavík-Þór) og í Vestmannaeyjum (ÍBV-Grinda- vík) og nú er að sjá hvort Fram- arar og Grindvíkingar bæti við fleiri björgunarafrekum og miðað við söguna held ég að enginn sé til- búinn að veðja á móti þeim. ooj@frettabladid.is Fallbaráttan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.