Ný saga - 01.01.1998, Side 76

Ný saga - 01.01.1998, Side 76
Kristján Jóhann Jónsson % lr Mynd 2. Lárus Pálsson sem Hamlet. Aukin þjóðern- iskennd átti sinn þátt í þvi'að sjónarmið Sig- urðar málara náðu sífellt meiri fótfestu Úthýsingin. Þar lætur Tómas eina af persón- um sínum leggja athyglisverða spurningu fyr- ir sýslumann, nefnilega hvort hann ímyndi sér að hann geti gert allt í senn: umnsakað mál, clœmt og hegnt. Drjúgum hundrað árum seinna voru íslenskir sýslumenn ekki enn bún- ir að ráða fram úr þessu svo leita varð svara við sömu spurningu hjá Mannréttindadóm- stóli Evrópu. íslensk leiklist II tekur upp þráðinn 1890 og má berlega sjá á skipulagi bókanna að þá er ýmiss konar efni tiltækt sem höfundurinn get- ur moðað úr. Þá hættir hann líka að vitna til misljósra, fornra umsagna, dregur úr erlend- um samanburðardæmum og frásögnum af óbirtum handritum og fjallar um leiklist sem er nær því formi sem við þekkjum. Fyrst er fjallað um leikhús og önnur leiksvæði en saga húsanna er áður þekkt. Hins vegar minnir út- tekt Sveins á tengsl leiklistarsögu og bygging- arsögu. Eitt af því sem einkennir íslenska menningarsögu er að hún tengist byggingum ekki á sama hátt og hjá þjóðum sem eiga sér eldri borgarmenningu. Þar hefur saga leiklist- arinnar sérstöðu því að eðli sínu samkvæmt þrífst leiklistin alllaf best þar sem fjölmenni myndast. Hús á borð við Glasgow, sem brann 1903, Góðtemplarahúsið, sem var ril'ið 1968, Breiðfjörðsleikhús eða Fjalaköttinn, sem lok- ið var við að rífa 1985 og Iðnó, sem enn stend- ur, hafa verið eða eru minnisvarðar um ís- lenska leiklistarsögu og spurning hvort Góð- templarahúsið og Fjalakötturinn hefðu verið rifin á sínum tíma ef fólk hefði gert sér betri grein fyrir sögulegu hlutverki þeirra. En auð- vitað er við ramman reip að draga þegar handhafar eignarréttar og stjórnvöld samein- ast gegn menningarverðmætum. Skipulag og fjárreiður íslenskra leikhúsa eru að sjálfsögðu hið merkasta efni en ntig langar aðallega til að draga tvennt fram í dagsljósið. Hér sprettur leiklistin upp á heimavistum hjá skólastrákum, hjá iðnaðar- mannasamtökum og góðtemplarareglu og fjármögnun er nokkuð fram eftir öldinni byggð á sameiginlegum sjóðum og deildri áhættu. Þessi fortíð hafði auðvitað sterk áhrif á Leikfélag Reykjavíkur þegar það var stofnað. Sveinn Einarsson telur að stjórnarfyrirkomu- lag LR sé grundvallað á því sem yfirleitt kall- ast lýðræði en Jón Viðar Jónsson telur að um klíkuveldi hafi lengst af verið að ræða.5 Aður var á það minnst að íslenskt leikhús blómstraði í ylnum frá sjálfstæðisbaráttu og rómantískum hugmyndum. Því fylgdu nokkr- ar andstæður sem fljótlega gerðu vart við sig. Frumherjarnir sóttu stanslaust til Danmerkur léttúðuga grínleiki með söngvum sem þóttu prýðilegir til að byrja með. Frægast þessara leikrita er áreiðanlega Ævintýri á göngttför eftir Hostrup. Það leikrit var sýnt hér hvað eftir annað fyrir fullu húsi og ntá el' til vill segja að það hafi breyst í íslenskt verk. Fljótlega snerust áhorfendur hins vegar gegn sýningum af þessu tagi. Aukin þjóðern- iskennd átti sinn þátt í því að sjónarmið Sig- urðar málara náðu sífellt meiri fótfestu og þegar Matthías skrifaði Útilegumennina og Indriði Einarsson Nýjársnóttina, báðir undir handarjaðri Sigurðar, þá urðu vinsældir þess- ara verka ef til vill töluvert meiri en við mátti búast. Bæði verkin vísa mjög eindregið til þjóðernis og frelsis. Annan áratug þessarar aldar kallar Sveinn Einarsson íslenska áratuginn. Það er að vísu ekki alveg nákvæmt orðalag því að verið er að tala um tímabilið frá 1907-20. A þessum árum koma þeir Jóhann Sigur- jónsson og Guðmundur Kamban fram á svið- ið og Einar H. Kvaran skrifar um Lénharð fó- geta sem fyrr á öldinni þótti harla vel heppn- aður þó að hann ætti síðar eftir að lenda í kvikmynd og þola ótrúlegt magn af dönskum háðsglósum. Það er Ijóst af lestri þeirra bóka sem hér eru til umræðu að möguleikar á því að gera sér raunhæfa grein fyrir leikstjórn og leikstíl um síðustu aldamót eru mjög takmarkaðir. Eitthvað má ráða af ljósmyndum og lýsingunt í leikdómum en þeir eru misjafnir og þar rek- ur eitt sig á annars horn. Aðrar ritaðar lýsing- ar á leikstjórn og leikstíl, til dæmis í ævisöguni og bréfum, eru bæði fáar og smáar. Sveinn Einarsson telur í bók sinni að Háskóli Islands sé eini háskóli Norðurlanda sem ekki leggi skipulega slund á fræðslu og rannsóknir í leiklistarsögu. Ef það hefði verið gert hefði ef til vill verið hægt að bjarga frá glölun l'leiri heimildum um það hvernig leikið var í upp- 74
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.