Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 11

Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 11
að eyra þeirra og hvíslaði ljúfustu kvæðum mín- um. Þær, sem voru kurteisar, hældu mér. Hinar brostu háðslega til annarra gesta. Þá reiddist ég, hló hátt, sagði snjalla setningu á frönsku, sem enginn skildi, og drakk glas mitt í botn Svona liðu tvö ár. Ég kynntist lífinu. Allir ung- ir listamenn hafa notið lífsins. Það birtust víst tvær sögur eftir mig. En ég man enn þann dag, er ég var gerður afturreka með þá beztu sögu, sem 'ég hafði samið. Hún hét Ilmur laufsins, dýrlegur óður æsku og ástar. Ég man, að ritstjórinn brosti aumkvandi, um leið og hann sagði, að þetta væri ágæt saga, en hún væri bara heldur klúr. Þann dag var ég reiður. Hann kunni ekki að meta bókmenntir, þetta skoffín. Ég var reiður við sjálfan mig, sem ég fann, að menn höfðu að fífli. Þann dag reif ég öll mín ljóð og sögur, brenndi stóru skáldsöguna mína, brenndi fortíð mína. Nú hætti ég að vera skáld. Ég lét skera hár mitt og raka skegg mitt. Ég fleygði spanjólunni minni og keypti mér segldúkshatt. Ég var ekki lengur skáld. Ég fékk vinnu í skrifstofu, þar sem ég vinn enn. Það er alltaf sama andlega lognið þar inni. Ég veit ekki, hvort ég á að vera að telja andlegan þennan taugaæsing fyrir kosningar. Ég verð eiginlega ékkert æstur. Ég kýs alltaf, eins og ég veit, að forstjórinn kýs. Ég er eiginlega ekkert mjög róttækur eða víðsýnn lengur. Ég veit, að meðan ég var skáld, hefði ég fyrir- litið mig eins og ég er núna. Ég hefði kallað mig smáborgara. Ég er kvæntur. Konan mín er ágætis kona. Mér þykir næstum eins vænt um hana eins og sjálfan mig. Mér datt í hug fyrst eftir að ég kynntist henni að yrkja til hennar. Ég reyndi það. En ég gat það aldrei. Ég var eins og vængstýfður fugl. Ég gat barið vængjunum, en aldrei flogið. Nú er ég löngu hættur að reyna að yrkja til hennar. Ég á fallegt heimili. En nú æði ég aldrei fram- ar um hánótt um gólfið í herberginu mínu, inn- blásinn heilögum skáldanda. Þó að ég heyri vind- >nn gnauða á glugganum piínum, fær það ekki fínustu strengi sálar minnar til að bergmála. Þá finnst mér bara svo gott að sitja inni í hlýrri stofu og halla mér í hægindastólinn. Eiginlega er mig alveg hætt að langa til að yrkja. Þó kemur það stundum, þegar konan mín er í saumaklúbb, og ég er hættur að vinna á skrif- stofunni og hefi háttað litlu telpuna mína og er búinn að vagga henni í svefn og horfi á hana sofa. Þá langar mig stundum til að yrkja friðaróð til alls þess, sem lifir og er. En það getur aldrei orðið. Það er þá stundum eins og eitthvað gráti innra með mér. Eitthvað, sem var til, en er bara minning. Ég held, að það sé skáldið í mér, sem grætur getuleysi sitt. En oftast tek ég bara bók og les. Ég kaupi enn- þá allar bækur, sem mesta athygli vekja. Það eru leifar þess, að ég var fróðastur allra í bók- menntaheirninum. Svo totta ég pípuna mína. Það eru að verða langflest kvöld, sem ég bara les og reyki. Þeim fer stöðugt fækkandi kvöldunum, sem ég finn, að ég á að yrkja friðaróð mannlífsins. Það er gott. Það er vond kennd, sem fylgir því, að gamla skáldið í mér gráti. Þá kemur yfir mig sama tilfinningin og ég held, að hati gripið auðnulausar kvensniftir, sem urðu að bera börn sín út. Sama tilfinning og greip þær, þegar þær heyrðu himbrima góla úti í sumarþokunni. Það er ég Kvæði eftir Jón Jóhannesson Mín hugsjón er frelsi, það frélsi sem var og err frelsið sem glatast um leið og þér tortímið mér. Það finnst engin sála sem frelsast í blindingjans leit að frelsinu handan við staðinn sem enginn veit. Mín boðun-er þessi, að herrann sé þrælanna þræll, að þrællinn sé glaður ef herrann er mettur og sæll, og enn fremur sú, að vér nemum þau réttlætisrök, ef reiðir til áfalls, að bölið sé yðar sök. Og senn mun ég ef til vill Setjast við rísl mitt á ný að semja oss daganna fjúkandi morðeldaský. Ó, hættið að metast um hugsjón og frelsi og veg því hugsjónin, frelsið og vegurinn, það er ég. LÍF og LIST 1J

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.