Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 21

Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 21
teins, sonar Absolons. í upphafi er leik- ur hans allgóður, t. d. þegar fundum þeirra feðga ber saman í fyrsta skipti, en cftir því sem á leikinn líður, missir hann með öllu vald á hlutverkinu. Hann hefur fagra rödd, en því miður kann hann ckki að beita henni sem skyldi, einlægni og sannfæringu skortir hann átakanlega mikið, samanber viðbragð hans við játningu föður síns, og því fer fjarri, að hann hafi nægan innileik í ástarsenunum. Honum tekst ekki að túlka þetta hlutverk á lífrænan hátt, og er engu líkara cn að hann sé að lesa það upp úr bók, auk þess kann hann ekki að hlnsta, sem cr ein aðalundir- staðan fyrir velhcppnuðum leik. Katrín Thors kemur hér í fyrsta iVJ.p'ci fram á hinn prófessiónclía sviði. Það er óvenjumikil tign og glæsibragur yfir ö||pm lcik hennar, svipurinn hrcinn og einbeittur, látbragðið fágað og mjúkt. Túlkún hcnnar á Önnu Pétursdóttur er yfirleitt furðu-góð, nokkuð misjöfn að vísu, hún hefir t. d. ekki lært að tempra leik sipn nógsamlega, cn á köflum kveð- Vir svo mikið að henni, að engum manni gptur dulizt, að hér sé efni í mikil- hæfn lcikkonu á fcrðinni. Hún er mjög eðlilcg og sannfærandi, þcgar hún ,,-seið- ir“ Martein til sín, sömuleiðis cr hún ágæt í ástasenunum, eu sjzt er hún í atriðinu, spm leiðir að dauða eiginmanns hennar. Það cr mikill fcngur fyrir ís- lenzkt leikhús að hafa eignazt jafnmikla hæfilcikakonu scm Katrínu. Emilta Borg fer með hlutverk móður Absolons prests. Hún leikur af stóískri ró og spekt. Mikill alvöruþungi fylgir öllu, sem hún scgir, en samt skortir hana tilþrif og geðbrigði þegar á reyn- ir. Eins og þegar hcfir verið bcnt á þá var gcrvi hennar ekki í réttu hlutfalli við aldur hennar. Arpra fíalldórsdóttir lcikur galdranom af framúrskarandi fordæðuskap og tryll- ingi. í lok fyrsta þáttar rís Icikurinn í mesta hæð. Hópsenurnar ágætar hancfa- lögmálin afbragð. Gtsli Halldórsson cr nýliði, serii sann- Frh. á bls. 23 Handtaka Herjólfs-Mörtu (í 1. þætti) LJpphaf annars þáttar FjórSi páttur LÍF og LIST 2t

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.