Svart á hvítu - 01.10.1978, Qupperneq 4

Svart á hvítu - 01.10.1978, Qupperneq 4
c Enn lifir Alþýðuleikhúsið Erna Indriðadóttir Norðanlands gerðist sá merki atburður fyrir rúmum þremur árum síðan að nokkrir leikarar tóku sig saman og stofnuðu leikhóp sem þeir kenndu við alþýðu manna og nefndu Alþýðuleikhúsið. Hópur- inn ferðaðist um landið þvert og endilangt meö leikritin sín Krummagull og Skollaleik. Og ekki nóg með það, heldur fór hann einnig til Norðurlanda og tróð þar upp á ýmsum stöðum við góðar undirtektir heimamanna. En ferðalögin voru dýr og tímafrek. Og ekki lifir maðurinn á lofti einu saman eins og þar stendur, jafnvel ekki þó íslenskt og ómengað sé. Og yfirvöld menningar- og peningamála í landinu sýndu hópnum slíkt skilningsleysi að um tíma leit út fyrir að þeim hefði tekist að ganga af honum dauð- um. En svo bárust mönnum þau tíðindi að Sunn- andeild Alþýðuleikhússins hefði verið stofnuð. Yfir slíkum menningarviðburði gat Svart á hvítu auðvit- að ekki þagaó þunnu hljóði, þannig að útsendari blaðsins bankaði upp á hjá þeim Arnari Jónssyni og Þórhildi Þorleifsdóttur sem eru ein af mörgum stofnendum deildarinnar, til þess að fá nánari fréttir af leikhúsinu. Fer árangur viöræðnanna hér á eftir, í allmjög samþjöppuðu formi þó. Þegar þið stofnið Alþýðuleikhúsið, hvað eruð þið þá óánægð með hjá hefðbundnu leikhúsunum eins og t. d. Þjóðleikhúsinu og Iðnó? Hluti leikaranna sem standa aó Sunnandeild Alþýóuleikhússins. Arnar: Uppbygging hefðbundnu leikhúsanna er í rauninni hömlur á listafólkið. Það hefur nánast ekkert að segja um líf sitt og starf. Það fastræður sig við leikhúsið, en hefur sama og engin áhrif um verkefnaval eða annað sem lýtur að starfi þess. Við teljum að með þessu komi fólk því kannski aldrei til skila sem það raunverulega vill tjá. Jú, það getur verið mjög gott fagfólk, sem er nauðsynlegt líka og allt í lagi, en ef þú ert ekki að fylgja eftir neinu sem þig raunverulega langar til að koma á framfæri, því sem þér finnst að í þinni samtíð, þá er það ekki nógu gott. Og svo vikið sé að pólitísku hlið málsins, þá fer verkefnaval þessara leikhúsa sem náttúru- lega eru á bæjar- og ríkisstyrk, ekki neitt langt frá þeim ramma sem þjóðfélagið setur þeim. Þar eru á kreiki borgaralegar hugmyndir sem hrófla í engu við því munstri sem við lifum í. Það er ekki nema í undantekningartilfellum aö hefðbundið leikhús er M framsækið. Þannig að listgreinin sem slík þróast mjög hægt innan slíkra stofnana. Og það er vegna þess hve fólkið sjálft sem að því vinnur hefur lítið um starf sitt að segja. Og hefðbundið leikhús er stjörnuleikhús. Fólki er skipt niður. Sumir eru snjallari og meiri stjörnur en aðrir, en sumum er alltaf haldió svona sem hálfgerðu undirmálsfólki, í litlum hlutverkum o. s. frv. Og þannig er fólkinu att hverju gegn öðru, sem gerir alla samvinnu töluvert erfiða, en það er einmitt á henni sem allt leikhús- starf byggist. Er þetta öðru vísi hjá frjálsum leikhóp eins og Alþýðuleikhúsinu? Arnar: Vegna þess hve fólkinu er att saman, eru vissir erfiðleikar í hefðbundnu leikhúsi að fá fram heilsteypta sýningu. Sem eru aftur meiri möguleik- ar á í leikhópum á borð við Alþýðuleikhúsió vegna þess hvernig þeir eru uppbyggðir. Þórhildur: Það er miklu minni hætta á firringu þar sem allt starfsfólkið er með í ákvarðanatekt, heldur en þar sem það er meira eða minna óvirkt og « bara kallað til starfa til þess að gera eitthvað sem það hefur aldrei beðið um að fá aó gera, aldrei langaó til að gera og vill helst ekki gera. Þegar fólk er sameiginlega ábyrgt fyrir því sem það er að gera, þá skapar það allt öðru vísi vinnumóral. Þú veist að allt er undir því komið hvernig til tekst. Þjóðleik- 2 SVART A HVÍTU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Svart á hvítu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.