Hugur - 01.01.2004, Page 35

Hugur - 01.01.2004, Page 35
Skírskotunarlistin 33 fellum þurfti prívatdósent á uppleið, á borð við Gadamer, að sýna allrahanda varkárni. Ég var hyggnari. Hinir þurftu að gera málamiðlanir til að komast áfram. Ekki ég. Hyggindin fólust í því að maður tók þá sem voru nasistar, en þó sannir og skynsamir fræðimenn, enn sem fyrr alvar- lega sem starfsbræður - en sneið þó vitanlega hjá pólitískum sam- ræðum. (Gadamer 1990, 552) Hér víkur frásögn Gadamers nokkuð frá okkar. Gadamer skrifaði í nóvem- ber 1933 undir „fylgisyfirlýsingu prófessora við háskóla í Þýskalandi við Adolf Hitler og hið þjóðernissósíalíska ríki“.8 Þó svo Gadamer haldi því fram að „ekki hafi komið til greina að ganga í flokksfélag“ (Gadamer 1977a, 57) var hann meðlimur Hins þjóðernissósíalíska kennarafélags (Der Nation- alsozialistiche Lehrerbund).9 Loks tókst honum að snúa kringumstæðunum slyngilega sér í hag og árið 1939 hlotnaðist honum staða í Leipzig, „í kjölfar fyrirmæla að ofan“ eins og hann segir réttilega (Gadamer 1977a, 57) og með stuðningi SS-sveitanna. Hann hélt erindi í þjónustu utanlandsáróðurs nas- ista í löndum sem tilheyrðu fasíska bandalaginu eða voru hernumin. Erind- ið „Þjóð og saga í hugsun Herders“ (Volk und Geschichte im Denken Herders) sem Gadamer flutti jafnt í hernuminni Parísarborg árið 1941 sem og frammi fyrir stríðsföngnum herforingjum er ágætt dæmi um íhlutun hans. Hér set- ur Gadamer fram völkischw túlkun á Herder, sem hann sagði síðar að hefði verið „hrein fræðileg stúdía" (Gadamer 1977a, 118). Textinn er endurútgef- inn árið 1967 án völkisch hlutanna og með einhverjum frekari breytingum.11 Með því að lýsa heimspekiframleiðslu sinni við akademískar aðstæður Þriðja ríkisins sem tækifærisstefnu gerir Gadamer sér kleift að endurhæfa hana síðar sem hreina „fræðimennsku". Olíkt öðrum kunnum lærisveini Heideggers, Karl Löwith (1986), notast Gadamer við rökfærslumynstur sem hefur algeran aðskilnað hins fræðilega og hins pólitíska að forsendu. I huga Gadamers voru til tækifærissinnar og nasistar, sem jafnframt voru þó fylli- lega skynsamir fræðimenn. Þannig ver Gadamer and-semítistann og kyn- 8 Um pólitíska þýðingu þessa skjals, sjá George Leaman. Heidegger im Kontext. Gesamtiiberblick zum NS-Engagement der Universitátsphilosophen. Hamborg, 1993, s. 100 ogThomas Laugstien, Philosop- hieverháltnisse im deutschen Faschismus, Hamborg, 1990, s. 29-30. 9 Skjöl Skjalasafns Berlínar sýna að Gadamer var félagsmaður (númer 254.387). Hið þjóðernissósíal- íska kennarasamband var ekki flokkssamtök, heldur starfssamtök sem tengdust flokknum. Gadamer gerðist meðlimur hinnar Þjóðernissósíalísku velferðar þjóðarinnar (NSV) árið 1934 og árið 1938 meðlimur Þýska ríkissambandsins fyrir líkamsæfingar (DRL) (Leaman 1993, 40). 10 Hugmyndafræðilegur forveri þjóðernissósíalismans sem einkenndist m.a. af gyðingahatri, kynþátta- hyggju og andkapítalískri sveitarómantík. 11 Arið 1967 birtir Gadamer texta sem ber titilinn „Herder und die geschichtliche Welt“ (Herder og hinn sögulegi heimur). Textinn var eftirmáli að útgáfu á verki J. G. Herders Auch eine Philosophie der Geschichte zur Bildung der Menschheit (Surkamp/Frankfurt). Itarlega umfjöllun um þennan texta og fyrirlesturinn sem liggur honum til grundvallar, „Volk und Geschichte im Denken Herders“ (1942, Frankfurt), er einnig að finna í bók minni. Þar endurreisi ég hinn opinbera ramma þessarar uppákomu og greini sérkenni hinnar þjóðernissósíah'sku hernámsstefnu í Frakklandi svo og það hlutverk sem hin þýska menningarpólitík og Þýska stofnunin í París gegndu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244
Page 245
Page 246
Page 247
Page 248
Page 249
Page 250
Page 251
Page 252
Page 253
Page 254
Page 255
Page 256
Page 257
Page 258
Page 259
Page 260

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.