Hugur - 01.01.2007, Blaðsíða 199

Hugur - 01.01.2007, Blaðsíða 199
Milli Guðs ogjjöldans 19 7 Sálarbylting og skæruhernaður Athygli vekur að báðum nýjustu bókum Róberts Haraldssonar, Frjálsum öndum og Plotting Against a Lie, lýkur á fimm áratuga gamalli gagnrýni leikhúsfræð- ingsins Erics Bentley á sjálfan sig og samnemendur sína við Oxford: Sú kynslóð háskólastúdenta sem ég tilheyrði á fjórða áratug aldarinnar leit með megnustu fyrirlitningu á þann einstakling sem hafði „einungis áhuga á að frelsa sálu sína“ og vanrækti þar af leiðandi hið raunverulega verkefni, að breyta heiminum. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því að hvötin til þessara áköfu umbóta var að skelfilega miklu leyti ótti við sjálf- ið, skortur á að viðurkenna sjálfið. Við gerðum gys að veruleikaflótta vissra ljóðskálda og einstaklingshyggju þeirra en komum ekki auga á að félagsleg sameiningarstefna gat verið æðsta stig veruleikaflóttans, og á hinn bóginn að ekki er hægt að hugsa sér heilsusamlega fórnfysi eða ósérplægni sem ekki er grundvölluð á sjálfsvirðingu. (FA 220)192 Þótt þessi endurtekna tilvitnun sé ekki orð Róberts sjálfs - sem sjaldnast tjáir grundvallarafstöðu sína með beinum hætti — gefur hún prýðilega mynd af hans eigin áherslum. Afarkostirnir sem Róbert sækir í þessa tilvitnun er andstæðan á milli þeirra sem trúa á frelsun sálarinnar og hinna sem vilja breyta heiminum. Ástæða þess að sumir hafa meiri trú á síðari leiðinni en þeirri fyrri álítur Róbert vera einhvers konar persónuleikabrest, þ.e. skort á sjálfsvirðingu eða ótta við sjálf- ið sem kæft er í veruleikaflótta félagshyggjunnar. Hann telur áhrif slíkrar ótta- sleginnar vantrúar á sjálfið hafa haft afdrifarík áhrif á þann „harmleik 19. og 20. aldar sem drepið er á í flestum hugleiðingum þessarar bókar [þ.e. Frjálsra anda]. Þetta er sú tilhneiging 19. aldar, sem bitnaði svo harkalega á 20. öldinni, að hafna sígildri heimspeki og kröfum hennar um sjálfsþekkingu og sjálfsrækt, og kalla í staðinn eftir því að menn einbeiti sér að því einu að breyta og umbylta heim- inum.“ (FA 219)193 Mannkynssaga undanfarinna tveggja alda er þannig útskýrð 192 Sjá einnig Róbert H. Haraldsson, PlottingAgainst a Lie} s. ii2-ii3.Tilvitnunina er nánar tiltekið að finna í lok bókarinnar ef viðaukinn er undanskilinn. 193 Notkun Róberts á hugtakinu „sígildur" cr nokkuð frjálsleg. Ætla mætti að átt sé við heimspeki fornaldar en orðalagið „Thoreau og aðrir sígildir heimspckingar" (FA 54) sýnir svo ekki verður um villst að „sígild heimspeki" vísar einnig til sjálfsræktarheimspeki transendentalistanna. Eins og Róbert bendir hins vegar sjálfur á „hefur reynst einkar erfitt að viðurkenna Emerson og Thoreau sem mikla heimspekinga í bandarískri heimspeki.“ (FA 254) Þeir eru því ekki sígildir í þeirri merkingu að þeir séu heimspekileg skyldulesning heldur í þeim afmarkaða skilningi Róberts að þeir stundi sjálfsræktarheimspeki. En jafnvel þótt þessi afmarkaða notkun orðsins sé höfð í huga er ekki ljóst hvað Róbert á við þegar hann segir bók sína „í aðra röndina rannsókn á vægi (sígildrar) heimspeki nú um stundir. Sú heimspeki birtist ekki einvörðungu, eða aðallega, í kennslustoíum háskólaheimspekinga, og jafnvel ekki eingöngu í ritum sígildra heimspekinga. Hana er ekki síður að finna í ljóðum, leikritum, skáldsögum, dægurlögum, kvikmyndum, ritum náttúruspekinga", skrifar Róbcrt sem „tekur til skoðunar ljóð Stephans G. Stephanssonar, leikrit Ibsens, ritgerðir Laxness, ásamt siðfræði Aristótelesar og náttúruspeki Thoreaus" (FA19). Þegar fúllyrt er að sígilda heimspeki sé ekki eingöngu að finna í ritum sígildra heimspekinga virðist notkun orðsins vera nokkuð laus í reipunum. Þetta er óheppilegt í ljósi þess að bókin er á kápunni og víðar auglýst sem „rannsókn á vægi sígildrar heimspeki í samtímanum". I fljótu bragði virðist mér Róbert fyrst og fremst eiga með „sígild heimspeki" við afar ólíkar tegundir sjálfsræktarheimspeki andstætt heimspeki sem Róbcrt telur ekki sígilda heldur ógilda, þ.e. femíníska, póstmóderníska og umbótasinnaða heimspeki. Sú fyrstnefnda vegna þess að hún neitar að beygja sig undir heilagleika hefðarinnar, sú póst- móderníska sökum þess að hún dregur hið miðlæga sjálf sjálfsræktarheimspekinnar í efa og sú þriðja vegna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.